Innlent

Hagnaður tæplega þrefaldaðist

Hagnaður þeirra tuttugu félaga í Kauphöllinni sem greiningardeild KB banka gerir afkomuspár fyrir fór nálægt því að þrefaldast fyrstu mánuði þessa árs, samanborið við sama tíma í fyrra. Hagnaðurinn nú nam tæpum sextíu milljörðum króna en um tuttugu og tveimur milljörðum í fyrra. Hagnaður þeirra var þó undir væntingum greiningardeildar á þriðja ársfjórðungi en sjávarútvegsfélög og sölusamtök komu betur út en gert var ráð fyrir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×