Fleiri fréttir

Ættmenni vilja hann ekki

Sjö frændur og frænkur George Bush hafa sett á fót heimasíðu þar sem fólk er hvatt til þess að kjósa hann ekki. Ættingjarnir, sem skildir eru forsetanum í þriðja ættlið, en hafa aldrei hitt hann, segja nausynlegt að lækna Bandaríkin af veikindunum sem þau hafi þjáðst af síðan Bush tók við völdum árið 2000.

Hagnaðurinn 6,3 milljarðar

Straumur hefur hagnast um tæpa 6,3 milljarða króna eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins. Þetta er 168 prósenta hækkun frá því í fyrra. Hagnaður fjárfestingarbankans eftir skatta á þriðja ársfjórðungi þessa árs nam rúmum þrem milljörðum króna, en hagnaður á sama tíma í fyrra var 1.471 milljón. Heildareignir Straums eru nú 68,4 milljarðar.

Framsókn sökuð um sinnaskipti

Elsa B. Friðfinnsdóttir, Framsóknarflokki segir að svo virðist sem flokkurinn hafi breytt um stefnu og opni á skólagjöld í framhaldsnámi. Vitnar hún til orða Dagnýjar Jónsdóttur, þingkonu flokksins í Fréttablaðinu í gær. Þar sagði Dagný: "Framsóknarflokkurinn...hafnar skólagjöldum í grunnnámi í ríkissreknum háskólum."

9 ráðherrar á Norðurlandaráðsþing

Búast má við að Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra verði starfandi forsætisráðherra öðru sinni í næstu viku vegna þátttöku Halldórs Ásgrímssonar og átta annarra ráðherra í þingi Norðurlandaráðs í næstu viku frá 1. til 3. nóvember.

Fjöldi barna fær stuðning

Hundruð barna hafa hlotið styrki frá Velferðarsjóði barna, að sögn Ingibjargar Pálmadóttur framkvæmdastjóra hans, auk ýmissar starfsemi að velferðarmálum barna.

Fjárfestar í kísilduftið

Gengið hefur verið frá samkomulagi við fjárfesta vegna fyrirhugaðrar kísilduftverksmiðju í Mývatnssveit, að sögn Sigbjörns Gunnarssonar sveitarstjóra.

Heimildamynd um Kabúl

"Íslenska sveitin" heimildamynd í fullri lengd um íslensku friðargæsluna í Kabúl, verður frumsýnd í kvikmyndahúsum í Reykjavík á fullveldisdaginn 1. desember.

Guðfríður hlaut jafnréttisverðlaun

Skákfrömuðurinn, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir hlýtur jafnréttisverðlaun Jafnréttisráðs í ár, en verðlaunin voru afhent í þrettánda sinn í dag. Guðfríður Lilja gat þó ekki sjálf veitt verðlaununum viðtöku þar sem hún er stödd á ólympíuskákmótinu á Mallorka, og tóku foreldrar hennar við viðurkenningunni í fjarveru hennar.

Fjölgun árangurslausra fjárnáma

Árangurslaus fjárnám á einstaklinga hafa aukist um rúmlega 50 prósent á fyrstu níu mánuðum þessa árs, miðað við sama tíma í fyrra. Mest er aukningin á milli áranna 2003 og 2004 hjá aldurshópnum 26 til 30 ára </font /></b />

Aldrei jafnara

Það stefnir í æsilegar kosningar í Bandaríkjunum því að munurinn á forsetaframbjóðendunum John Kerry og George Bush er hverfandi nú þegar aðeins vika er í kosningarnar.

Bæjarstjórn samþykkti blokkir

Bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkti í gær að fjórar umdeildar blokkir yrðu byggðar á Hrólfsskálamel en ákvað um leið að koma til móts við andstæðinga framkvæmdanna með því að fækka íbúðum og lækka húsin. Minnihlutinn telur breytingarnar ganga of skammt.

Blá föt og rautt bindi

Þótt þeir George W. Bush og John Kerry séu á öndverðum meiði í flestum málum þá eru þeir samstiga í fatavali: dökkblá jakkföt, hvít skyrta og rautt bindi.

Vísitalan hríðlækkar

Verð á hlutabréfum í Kauphöll Íslands lækkaði verulega í dag, annan daginn í röð. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um rúm sjö prósent á tveimur dögum.

Sjálfsmorð tuttugu sinnum líklegri

Sjálfsmorð eru tuttugu sinnum líklegri meðal fanga en hins almenna borgara. Mesta hættan er við upphaf afplánunnar og við uppkvaðningu þungra dóma. Karlmaður sem dæmdur var í gær í þriggja ára fangelsi fyrir gróft kynferðisofbeldi gagnvart stjúpdóttur sinni framdi sjálfsvíg í kjölfar dómsins.

Enn ekkert að gerast

Enn situr allt fast í kennaradeilunni, og staðan sú sama og fyrir helgi. Ríkissáttasemjari hefur ekki miðlunartillögu í undirbúningi enn sem komið er. Formlegur sáttafundur sem átti að hefjast klukkan fimm í dag, var enn ekki hafinn skömmu fyrir fréttir.

Skipverjarnir sluppu ómeiddir

Þrír skipverjar á bátnum Ósk KE sluppu ómeiddir þegar eldur kviknaði í stýrishúsi bátsins út af Garðskaga í gær. Tjón hleypur á milljónum króna.

Á röngum stað á röngum tíma

Ellefu ára gömul afgönsk stúlka og 23 ára gömul bandarísk kona létust í sjálfsvígssprengjuárásinni sem beint var gegn íslenska friðargæsluliðinu í Kabúl á laugardag. Afganska stúlkan hefur ekki verið nefnd með nafni í erlendum fjölmiðlum. Hún var ein af fjölmörgum börnum sem lifa á því að betla og selja notaðar bækur til útlendinga á götum Kabúl. Hún lést af sárum sínum á sjúkrahúsi snemma á sunnudagsmorgun. Bandaríska konan sem lést hét Jamei Michalsky og var frá bænum Cokato í Minnesota.

Áttu ekki að yfirgefa flugvöllinn

Hallgrímur Sigurðsson, yfirmaður friðargæsluliðsins í Kabúl, segir að hann hafi verið að sækja teppi í verslun í borginni þegar ráðist var á íslensku friðargæsluliðana í Kabúl á laugardag.

Kristinn nýtur stuðnings

Framsóknarfélög í Norðvesturkjördæmi samþykkja nú hvert af öðru stuðningsyfirlýsingar við Kristinn H. Gunnarsson alþingismann um leið og fordæmd er brottvikning hans úr þingnefndum.

Staða Samfylkingar óásættanleg

Staða Samfylkingarinnar innan Reykjavíkurlistans er óásættanleg miðað við fylgi flokksins í borginni. Þetta kom fram í máli Andrésar Jónssonar, formanns Ungra jafnaðarmanna, á fundi Samfylkingarfélags Reykjavíkur í gærkvöld þar sem rætt var um Reykjavíkurlistann, árangur hans og framtíð.

Skemmdir kannaðar

Kafarar hafa kannað skemmdirnar sem urðu á bryggjunni í Neskaupstað á sunnudag þegar Baldvin Þorsteinsson EA sigldi á bryggjukantinn. Erfitt reyndist að meta þær vegna lélegs skyggnis. Sérfræðingur frá Siglingamálastofnun er farinn austur til að meta tjónið.

Demókratar hægrisinnaðir

Það sem telst vera til hægri eða vinstri í stjórnmálum í Evrópu er alls ekki það sama og hægri og vinstri í bandarískum stjórnmálum.

Eigum að leyfa fjölbreytni

Tvær tólf ára stúlkur voru í síðustu viku reknar úr frönskum skóla fyrir að neita að taka ofan höfuðslæðu. Ingvill Plesner er sérfræðingur í trúfrelsismálum og mannréttindum og er stödd hér á landi við rannsóknarstörf á vegum Háskólans á Akureyri. Hún hefur sérstaklega skoðað nýleg lög í Frakklandi sem banna nemendum að ganga með áberandi trúartákn.

Kalkþörungaverksmiðja að rísa

Gerð landfyllingar undir kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal er langt komin. Stefnt er að því að verksmiðjan taki til starfa síðla næsta árs. Heimamenn segja tilkomu hennar ígildi stóriðju fyrir byggðina.

Mikið tjón vegna eldsvoða

Íslendingar sýna ekki nægilega aðgæslu við eldamennskuna og gleyma sér allt of oft, með skelfilegum afleiðingum. Eignatjón vegna eldsvoða af völdum rafmagns nam um þrjú hundruð milljónum króna á síðasta ári.

Ökuriti fækkar óhöppum

Bílslysum hefur fækkað um fimmtíu prósent hjá þeim fyrirtækjum sem hafa sérstakan ökurita í bíl sínum, sem skráir niður allar upplýsingar um á hvaða hraða menn keyra og eftir hvaða götum á hverjum tíma.

Refsilaust að kýla tönn úr löggu

Dómari hjá Héraðsdómi Reykjaness komst að þeirri niðurstöðu að ekki bæri að fangelsa mann sem kýldi lögregluþjón í Keflavík, þannig að hann missti tönn. Lögreglumaðurinn segir ótrúlegt að lögreglan sé ekki betur varin en þetta; ódýrara sé að sparka í hund en lögregluþjóna. Hann fær enn höfuðverkjaköst.

Nýr meirihluti L-lista og D-lista á Héraði

Forráðamenn L-lista félagshyggjufólks og D-lista Sjálfstæðisflokks, undirrituðu í kvöld samkomulag um samstarf í meirihluta bæjarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs. Listarnir eru sammála um að ganga til viðræðna við Eirík Björn Björgvinsson, fráfarandi bæjarstjóra Austur-Héraðs, um starf bæjarstjóra hins nýja sveitarfélags.

Kennsla í skólum Ísafjarðarbæjar

Víða í grunnskólum landsins eru stundakennarar við störf. Kennt er til dæmis í öllum grunnskólum sveitarfélags Ísafjarðarbæjar nema á Flateyri.

Fundartími ekki ákveðinn

Ekki hefur verið ákveðið hvenær undanþágunefnd kennara og sveitarfélaga fundar. Undanþágunefnd átti síðast fund á föstudag.

Leiðbeinendum í skólum fækkar

Leiðbeinendur, þeir sem ekki hafa lokið kennaranámi, starfa í rétt tæplega 70 prósentum grunnskóla landsins. Þeim hefur fækkað um 216 milli áranna 2003 og 2004.

Óbreytt staða í kennaradeilunni

"Það gerðist ekkert á fundinum. Staðan er ekki önnur en var kvöldinu áður," sagði Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambands Íslands eftir að fundi þeirra og launanefndar sveitarfélaganna lauk rétt um átta leytið í gærkvöldi.

Kærði viku eftir árásina

Í dómnum er látið að því liggja að kona hafi unnið til áverkanna," segir Jónína Bjartmarz, alþingismaður og lögfræðingur, um dóm sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku þar sem refsingu yfir manni vegna heimilisofbeldis var frestað. Guðmundur L. Jóhannesson, héraðsdómari, dæmdi málið.

Bílþjófur kominn í fangelsi

Maður fæddur árið 1982 var handtekinn í fyrrakvöld í tengslum við rannsókn fjölda bílþjófnaða sem lögreglan í Reykjavík og lögreglan í Kópavogi unnu saman að.

Stal páskaeggi og átti hass

Í Héraðsdómi Reykjavíkur var nítján ára piltur dæmdur í þriggja mánaða skilorðbundið fangelsi og sextán ára piltur dæmdur í tveggja mánaða skilorðbundið fangelsi fyrir þjófnaðarbrot. Mál þriðja piltsins var skilið frá þessu máli.

Skilorð fyrir ýmis brot

Rúmlega tvítugur maður var, í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir, brot gegn lögreglulögum, fíkniefnabrot og vopnalagabrot.

Komst ekki hjá sektinni

Fertugur karlmaður var, í Héraðsdómi Reykjaness, dæmdur til að greiða 50 þúsund króna sekt í ríkissjóð, fyrir hraðakstur.

Hefur dælt peningum í borgina

Stefán Jón Hafstein er að snúa málum á haus með því að saka ríkisstjórnina um að halda Reykjavíkurborg og sveitarfélögunum í fjársvelti að sögn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, borgarfulltrúa og þingmanns Sjálfstæðisflokksins.

Þingflokkur biðjist afsökunar

Málflutningur Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, er í fullu samræmi við almennan vilja kjósenda flokksins. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar Framsóknarfélagsins í Dalasýslu. Á fundinum var stuðningsyfirlýsing við Kristinn samþykkt einróma.

Jarðakaup gagnrýnd

Framsóknarfélagið Dalasýslu lýsir þungum áhyggjum af söfnun fárra auðmanna á jörðum, og ríkisstuðningi þeim tengdum.

300 miljóna tjón vegna bruna

Eignatjón vegna eldsvoða af völdum rafmagns nam um 300 milljónum króna í fyrra samkvæmt ársskýrslu Löggildingarstofu um bruna og slys af völdum rafmagns árið 2003. Áætlað er að brunar vegna rafmagns hafi verið um 850 í fyrra. Fækkaði þeim töluvert miðað við árið 2002 og eignatjón dróst saman.

Úrslit standa þrátt fyrir svindl

Þó að kosningasvindl hafi augljóslega átt sér stað í kosningunum í Afganistan er nánast útilokað að kosningarnar verði dæmdar ógildar að sögn kosningaeftirlitsmanns.

Samþykktu brottflutning landnema

Ísraelska þingið samþykkti í gærkvöld áætlun Ariels Sharon forsætisráðherra um brottflutning ísraelskra landnema frá Gaza og fjórum svæðum á Vesturbakkanum. Auk landnemanna draga Ísraelsmenn herlið, sem verndað hefur landnemabyggðirnar á þessum svæðum, til baka. 

Ekki kjósa Bush frænda

Sjö fjarskyldir ættingjar George W. Bush Bandaríkjaforseta hafa opnað vefsíðu þar sem kjósendur eru beðnir um að kjósa ekki frænda þeirra.

Rice vill að Arafat hætti

Þeir þjóðarleiðtogar sem enn ræða við Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna, eiga að þrýsta á hann að hætta. Þetta segir Condoleezza Rice, þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta.

Sjá næstu 50 fréttir