Fleiri fréttir

Bush skipar nýjan stjóra CIA

George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur valið eftirmann George Tenet í starf forstjóra leyniþjónustunnar, CIA. Sá heitir Porter Goss og er þingmaður repúblikana. Hann er auk þess formaður þeirrar deildar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings sem fjallar um leyniþjónustustofnanir Bandaríkjanna.

Kjúklingar hömluðu umferð

Loka þurfti sænskum vegi í hátt í hálfan sólarhring vegna þess að hann var þakinn í kjúklingum. Nokkur þúsund kjúklingar gengu lausir eftir að flutningabíll sem flutti þá hvolfdi skammt frá Gautaborg.

Með upptökur af byggingum

Pakistanskur maður sem var handtekinn í Charlotte í Bandaríkjunum í síðasta mánuði hafði í fórum sínum myndbandsupptökur af byggingum í ýmsum bandarískum borgum, þar á meðal Atlanta, Houston, Dallas og New Orleans. Bandaríska dómsmálaráðuneytið greindi frá þessu fyrr í dag.

Grunaður um höfuðkúpubrot

Karlmaður á þrítugsaldri situr í gæsluvarðhaldi á Akureyri grunaður um að hafa höfuðkúpubrotið annan mann og veitt honum fleiri áverka. Fórnarlambið var lagt inn á gjörgæsludeild.

Fjórar sprengingar í Istanbúl

Tveir eru látnir og ellefu eru sárir eftir fjórar sprengingar í Istanbúl í Tyrklandi í nótt. Hryðjuverkamenn tengdir Al-Kaída samtökunum hafa lýst sprengingunum á hendur sér. 

Hryðjuverkamaður látinn laus?

Marokkómaður, sem grunaður er um að hafa aðstoðað hryðjuverkamennina 11. september 2001, verður ef til vill látinn laus í Þýskalandi vegna þess að Bandaríkjamenn vilja ekki leyfa lykilvitnum, sem eru í haldi þeirra, að bera vitni.

Sextíu kílómetra sjósundi lokið

Viktoría Áskelsdóttir sunddrottning lauk í dag Breiðafjarðarsundi sínu. Upp úr hádegi synti hún inn í höfnina í Stykkishólmi þar sem bæjarstjórinn tók á móti henni og fjölmenni fagnaði henni vel.

90% féllu „eftir“ stríð

Níu af hverjum tíu föllnum hermönnum í Írak féllu eftir að George Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að meiriháttar átökum í Írak væri lokið. Ekkert lát er á árásum uppreisnarmanna í borgunum Najaf og Bagdad.

Ein hefur leitað til Stígamóta

Ein kona hefur leitað til Stígamóta vegna nauðgunar á útihátíð um verslunarmannahelgina, að sögn Guðrúnar Jónsdóttur hjá Stígamótum.

Flugleiðir ekki til Hong Kong

Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Flugleiða, segir að ekki séu uppi áætlanir um að hefja áætlunarflug til Hong Kong en íslensk yfirvöld undirrituðu loftferðasamninga við Hong Kong í fyrradag.

Flestir skattar verði 15%

Verslunarráð Íslands vinnur að heildstæðum tillögum í skattamálum sem gefnar verða út í byrjun næsta árs. Vinnuheiti verkefnisins er "15 prósenta landið Ísland". Grunnhugmyndin sem gengið er út frá er að virðisaukaskattur og tekjuskattar einstaklinga og fyrirtækja verði fimmtán prósent.

Ekki sjálfsafgreiðsla út á landi

Bensínneytendur njóta ekki sjálfsafgreiðsluverðs á bensínstöðvum Olíufélagsins ESSO víða á landsbyggðinni. Pétur Steingrímson ætlaði sjálfur að dæla bensíni við stöðina í Varmahlíð í Skagafirði um síðustu helgi. "Þá var mér sagt að það stæði ekki til boða og ég yrði að greiða fyrir fulla þjónustu," segir hann.

Fyrst allra yfir Breiðafjörð

"Mér líður furðuvel, enda búin að koma við í heita pottinum," sagði Viktoría Áskelsdóttir sem lauk í gær sundi yfir Breiðafjörð, fyrst allra.

Hrein markleysa

Fulltrúar Landsvirkjunar fara frjálslega með hugtakið fimmhundruð ára flóð í fréttum af vatnavöxtum í Jökulsá á Brú að sögn Viðars Hreinssonar hjá Náttúruvaktinni. Hann segir þær fullyrðingar "hreina markleysu" í ljósi þess að vatnsmagn hafi verið mælt síðan 1965.

Mikill þurrkur á Austurlandi

"Þetta er mun meiri þurrkur en venjulega ," segir Freysteinn Sigurðsson hjá Orkustofnun en lítið sem ekkert hefur rignt í sumar frá Þistilsfirði austur á Fljótsdalshérað. Freysteinn segir þetta valda því að gróður spretti illa og skrælni auk þess sem vatnsból á stöku bóndabæjum eða í sumarhúsum gætu tæmst. Lítið vatn er í lækjum og sprænum.

Hitametið slegið víða um land

Hitamet í ágúst var slegið í dag. Tuttugu og níu stig voru í Skaftafelli og á Þingvöllum. Í höfuðborginni flúði fólk unnvörpum úr vinnunni og út í sólina.

Kvenkyns forstjórar á lægri launum

Þótt meira en helmingi fleiri konur hafi unnið sem forstjórar í fyrra en árið 2000 hafa þær langtum lægri laun en karlkyns kollegar þeirra. Þetta kemur fram í samantekt úr tölum Tekjublaðs Frjálsrar verslunar.

2 milljónir í flóttamannabúðum

Fimmtíu þúsund manns hafa látið lífið í átökum í Súdan og hátt í tvær milljónir manna hafast við í flóttamannabúðum. Íslensk kona sér um daglegan rekstur heilsugæslu í flóttamannabúðum í Darfúr fyrir Alþjóða Rauðakrossinn. 

Gljúfrasteinn opnaður brátt

Framkvæmdum við safn Halldórs Laxness að Gljúfrasteini er að mestu lokið og verður það opnað fyrir gestum 4. september. Aðstandendur safnsins hafa metnaðarfullar hugmyndir um framtíð þess.

Aurskriða í Japan

Ótrúlegar myndir náðust af aurskriðu í Nara-héraði í Japan í dag en það var hópur opinberra embættismanna sem náði myndunum. Miklar rigningar hafa verið á svæðinu undanfarnar vikur og voru embættismennirnir komnir til að rannsaka jarðveginn.

Sagðist of feitur til að nauðga

45 ára gamall flugvirki, sem dæmdur var í gær fyrir að hafa haft samræði við 12 ára dóttur vinahjóna sinna, sagðist fyrir dómi hafa verið of feitur til að nauðga.

Sprengjueyðingar umfangsmeiri

Sprengjueyðing er að verða sífellt umfangsmeira verkefni hjá Landhelgisgæslunni og er hún orðin mjög vel tækjum búin, með sprengjueyðingavélmenni og fleira. Þá er aukin áhersla á varnir gegn hryðjuverkum en síðar í mánuðinum verður hér á landi umfangsmesta æfingin til þessa í þeim efnum.

Landhelgisdeila við Noreg

Norðmenn hafa einhliða tekið ákvörðun um að banna veiðar á alþjóðlega hafsvæðinu við Svalbarða. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir að ekki verði tekið mark á ákvörðun Norðmanna. "Við munum halda áfram veiðum," segir hann. Landhelgisdeila er í uppsiglingu milli Íslendinga og Norðmanna. <b><font face="Helv" color="#008080"></font></b>

Fjármögnun meðferðar sprautufíkla

Heilbrigðisyfirvöld ætla að reyna að koma til móts við SÁÁ vegna kostnaðar við meðferð sprautufíkla sem háðir eru ópíumefnum. Samtökin segjast ítrekað hafa reynt á undanförnum árum að vekja athygli stjórnvalda á málinu en hvorki heilbrigðisráðherra né formaður heilbrigðisnefndar Alþingis kannast við það. 

Hitametið fallið

Hitamet ágústmánaðar féll í gær á nokkrum stöðum á landinu. Hitinn mældist hæstur 29,1 stig í Skaftafelli. Fyrra hitamet var 27,7 stig á Akureyri árið 1971. Áfram er búist við góðviðri þrátt fyrir að veður fari hægt kólnandi næstu daga.

Undrast veðurblíðu

Veðrið hefur sett mikinn svip á mannlífið síðustu daga. Erlendir ferðamenn á Þingvöllum eru undrandi yfir miklum hlýindum og ferðamenn í Reykjavík segja veðrið hafa komið þeim skemmtilega á óvart. Erill hjá meindýraeyði.

Leitað að fjórtán ára dreng

Leit er hafin að fjórtán ára þýskum dreng sem orðið hafði viðskila við föður sinn á Fljótsdalsheiði í morgun.

Verkfall í síðustu 4 skipti

Aðeins einu sinni á síðasta áratug hafa sjómenn og útvegsmenn samið um kjaramál sín á milli. Stjórnvöld hafa þrisvar sett lög á verkfall sjómanna. Sjómannasambandið ber ekki traust til að svo verði ekki raunin nú. </font /></b />

Kvennaathvarf á eyðieyju

Öryggi ofsóttra kvenna er ekki nægilega tryggt segja forsvarsmenn danskra kvennaathvarfa við Berlingske Tidende. Tillögur um opnun kvennaathvarfs á hinni afskekktu eyju Anholt, þar sem aðeins 160 manns búa, hefur vakið háværar þjóðfélagsumræður í Danmörku.

Athyglin beinist nú að Bush

Meðan sjónir Bandaríkjamanna beindust einkum að John Kerry, forsetaframbjóðanda Demókrata, tókst honum að bæta ímynd sína nokkuð en náði samt ekki að hrista svo neinu nam upp í kosningabaráttunni.

Til liðs við Afríska þjóðarráðið

Nú hyggst Nýi Þjóðarflokkurinn í Suður-Afríku, arftaki Þjóðarflokksins gamla sem tók upp aðskilnað kynþáttanna þar í landi, ganga til liðs við sinn forna fjanda, Afríska þjóðarráðið, sem áratugum saman barðist gegn aðskilnaðarstefnunni og náði síðan völdum í fyrstu frjálsu kosningunum í landinu árið 1994.

Prestur gerði grín að Bush eldri

George Bush Bandaríkjaforseti brosti breitt þegar séra Martin Luther Agnew predikaði yfir forsetafjölskyldunni í messu í gærmorgun, þrátt fyrir að presturinn hafi hvatt söfnuðinn til þess að losa sig við eigur sínar og gert létt grín að George H.W. Bush eldri, föður forsetans.

Víkja ekki fyrir sjúkrabílum

Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, segir það vera orðið nokkuð áberandi vandamál að bílstjórar víki ekki þegar sjúkra- og lögreglubílar gefi merki um slíkt með blikkandi ljósum og sírenum.

Sex lík í blóði drifinni íbúð

Fjórir hafa verið handteknir í tengslum við hrottaleg morð í Flórída í Bandaríkjunum. Lík fjögurra manna og tveggja kvenna fundust í heimahúsi í bænum Deltona, 40 kílómetrum norður af Orlando. Aðkoman var hroðaleg, líkin illa útleikin og blóðslettur um allt.

Kornskurður hafinn í Eyjafirði

Kornsláttur hófst í Eyjafirði í gær og hefur hann aldrei hafist fyrr. Bóndinn í Grænuhlíð í Eyjafjarðarsveit sló 4,5 hektara af byggi og hefur uppskeran aldrei verið betri eða 5 tonn af hektara.

SUF vill efla hlut kvenna

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna lýsir yfir áhyggjum af versnandi stöðu kvenna innan Framsóknarflokksins. Í ályktun sem samþykkt var á fundi SUF í gær segir að brýnt sé að við val á forystumönnum flokksins sé gætt að því að hlutur kvenna sé eigi lakari en 40 % líkt og stefnumörkun í lögum flokksins geri ráð fyrir.

Flóttafangarnir fundnir

Tveir fangar sem struku úr öryggisfangelsi í Svíþjóð voru handteknir í gær í bænum Grenna, norður af Jonköping. Fyrr um daginn hafði sá þriðji verið handtekinn en fangarnir struku í síðustu viku. <em>Dagens Nyheder</em> segir fimmtíu lögreglumenn hafa tekið þátt í leitinni.

Þrumuveður á Suðurlandi

Þrumur og eldingar geisuðu á Suðurlandi í nótt og fylgdu úrhellis skúrir í kjölfarið. Um tíma fór rafmagn af Hveragerði og Ölfusi en ekki er vitað til þes að tjón hafi hlotist af. Að sögn veðurfræðings á Veðurstofunni var mjög hlýtt og rakt loft að ganga inn á landið sem olli ójafnvægi í loftstraumum og verður þá þrumuveður.

Stíflan hækkuð enn frekar

Þótt Jökulsá á Dal hafi setið á sér í gær ákváðu sérfræðingar Landsvirkjunar á fundi sínum í gær að hækka varnargarðinn ofan við stíflustæðið enn frekar en orðið er. Ætlunin er að stíflan nái 498 metra hæð yfir sjávarmáli.

6 látnir og 17 særðir

Bílsprengja varð sex manns að bana og særði sautján í borginni Baquba, norður af Bagdad, í Írak í morgun. Sprengjan sprakk fyrir utan hús ríkisstjóra á svæðinu sem var fluttur á spítala en ekki er vitað um afdrif hans.

Slys á Gjábakkavegi

Kona slasaðist, þó ekki lífshættulega, þegar jepplingur og rútubíll lentu í árekstri á Gjábakkavegi á milli Þingvalla og Laugarvatns í gær. Konan var í jepplingnum en engan í rútunni sakaði. Þá slasaðist frönsk ferðakona þegar bíll hennar valt á veginum inn í Lakagíga.

Ástralska barnið fundið

Áströlsk móðir er himinlifandi eftir að þriggja vikna dóttir hennar, sem var rænt frá henni fyrir utan verslunarmiðstöð í fyrrakvöld, er komin í leitirnar.

Blindþoka á Holtavörðuheiði

Nokkrir bílar fóru út af veginum yfir Holtavörðuheiði í blindþoku sem gerði þar upp úr miðnætti. Vegfarandi segir að um tíma hafi ekki sést handa skil og við það bættist að vegna vegaframkvæmda hafði Vegagerðin tekið niður stikur á nokkrum kafla og ekki var búið að mála miðlínu á veginn.

Bjargað úr jarðgöngum á Indlandi

Tuttugu byggingaverkamönnum, sem höfðu setið fastir í jarðgöngum eftir miklar rigningar í afskekktu þorpi á Himalayja-svæðinu á Indlandi, var bjargað í nótt. Göngin eru hluti byggingaframkvæmda við orkuver og höfðu mennirnir verið innilokaðir í sólarhring.

Hlutur kvenna efldur

Stjórn ungra Framsóknarmanna ályktaði á fundi sínum í gær að brýnt sé að efla hlut kvenna í forystusveit flokksins. Nú sé svo komið að erfitt sé að fá konur til að taka að sér störf innan ungliðahreyfingarinnar og endurnýjun kvenna þar hafi því verið hægari en æskilegt væri, og hið sama eigi við annars staðar í flokknum.

Sjá næstu 50 fréttir