Mannskæðustu átök í mánuð 28. júlí 2004 00:01
Átök dagsins í dag í Írak voru þau mannskæðustu frá því að Írakar tóku aftur við völdum fyrir réttum mánuði. Að minnsta kosti 111 manns létust í tveimur bílsprengingum og bardögum milli skæruliða og hermanna. Dagurinn í dag var blóðugur í Írak. Hátt í sjötíu manns létust í öflugri bílsprengingu í Baquba í morgun og rúmlega 40 létust í bardögum milli skæruliða og hermanna í suðurhluta Íraks. Þá slösuðust 11 bandarískir hermenn í árás á herstöð Bandaríkjamanna utan við Ramadi, einn lést og nokkrir slösuðust í sprengingu í Bagdad og lögregluþjónn var mirtur í Kirkúk. Sprengingin í Baquba var gríðarlega öflug og splundruðust rúður á nærliggjandi kaffihúsum, framhliðar húsa rifnuðu og eldur kviknaði í fjölmörgum bifreiðum. Sprengingin átti sér stað utan við ráðningarstöð lögreglunnar í miðborg Baquba. Nokkur fjöldi manna hafði safast saman utan við ráðningarstöðina í þeim tilgangi að ganga til liðs við þjóðvarnarlið Íraka, þegar lítil Toyota-rúta sprakk í loft upp á markaðstorgi sem ráðningarstöðin stendur við. Allt tiltækt heilbrigðisstarfsfólk úr nærliggjandi bæjum var kallað út til þess að huga að hinum særðu. Að minnsta kosti 68 létu lífið í sprengingunni og á sjötta tug særðust og óttast er að tala látinna gæti enn átt eftir að hækka. Sprengingin er sú mannskæðasta síðan 24. júní, þegar 89 manns létu lífið í samræmdum árásum skæruliða í mið- og norðurhluta Íraks. Síðan valdaskiptin áttu sér stað í Írak fyrir nákvæmlega mánuði síðan hafa fjölmargar sprengjuárásir átt sér stað í bænum Baquba, sem er tæpa 50 kílómetra norður af Bagdad. Árásirnar hafa einkum beinst að þjóðvarnarliði Íraka og hersveitum Bandaríkjamanna. Hinir látnu í dag voru hins vegar langflestir óbreyttir borgarar. Suð-austur af Bagdad geysuðu harðir bardagar á milli skæruliða og írakskra, úkraínskra og pólskra hermanna í morgun. Sjö írakskir lögreglumenn létust í bardögunum og 35 skæruliðar féllu í valinn en ekki varð mannfall meðal pólskra eða úkraínskra hermanna. Þá særðust 10 lögreglumenn í átökunum og 40 skæruliðar voru handteknir. Auk fyrrgreinds blóðbaðs lést einnig einn maður og nokkrir særðust í sprengingu fyrir utan lögreglustöð í Bagdad í morgun. Ráðamenn í Írak hafa nú miklar áhyggjur vegna ráðstefnu sem haldin verður í Baghdad eftir þrjá daga, þar sem 1000 manna hópur þingmanna og sendifulltrúa kemur saman og velur 100 manna þjóðarráð, sem verður nýrri stjórn Íraka innan handar. Óttast er að árásirnar í dag séu skilaboð skæruliða fyrir fundinn í Bagdad.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent Fleiri fréttir „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Sjá meira