Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stjórnmálasamband við Sambíu Ísland og Sambía hafa undirritað viljayfirlýsingu um stofnun stjórnmálasambands milli ríkjanna. Hjálmar W. Hannesson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, undirritaði yfirlýsinguna fyrir Íslands hönd í New York sl. föstudag. 26.7.2004 00:01
Danir drepa í Stöðugt fleiri Danir drepa í sígarettunum fyrir fullt og allt samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups. Flestir þeirra sem hætta að reykja eru á aldrinum 25-34 ára en þrátt fyrir það eru reykingamenn enn fjölmennastir í þessum aldurshópi. 26.7.2004 00:01
Átök í kjölfar mótmælakeðju Sex Palestínumenn voru drepnir í átökum við ísraelskar hersveitir á Vesturbakkanum í gær. Þá sendu ísraelskar þyrlur flugskeyti á byggingar í Gazaborg í kjölfar árásar vígamanna á félagsmiðstöð landtökumanna þar sem sex börn særðust. 26.7.2004 00:01
SS hækkar nautakjötsverð Sláturfélag Suðurlands hefur nú hækkað verð á nautgripakjöti til bænda um 6%. Eftir þessar verðbreytingar greiðir SS nú hæsta verð á landinu fyrir lang flesta flokka nautgripakjöts að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. 26.7.2004 00:01
Gripið verði til refsiaðgerða Evrópusambandið vill að Sameinuðu þjóðirnar grípi til refsiaðgerða gegn Súdönum bindi þeir ekki þegar í stað enda á átökin í Darfur-héraði. Bandaríkjamenn hafa þegar lýst sig sömu skoðunar og telja átökin í Súdan jafngilda þjóðarmorði. 26.7.2004 00:01
Fyrrverandi skólastjóri sýknaður Fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskólans, Jón Árni Rúnarsson, var í dag sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru um að hafa dregið sér tæplega 29 milljónir króna á sjö ára tímabili í starfi sínu hjá skólanum. Hann var hins vegar dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals og fjársvik. 26.7.2004 00:01
Sjómannafélagið skrifaði undir Boðuðu verkfalli háseta á skipum Hafrannsóknarstofnunar var aflýst síðdegis þegar samningar tókust milli fjármálaráðuneytisins og Sjómannafélags Reykjavíkur. Vegna hugmynda um skerðingu eða niðurfellingu sjómannaafsláttar geta hásetarnir sagt samningnum upp eftir tvö ár.</font /> 26.7.2004 00:01
Erlendir þingmenn í hvalaskoðun Hér á landi eru staddir sex þingmenn frá Bretlandi og Þýskalandi á vegum Alþjóða dýraverndunarsjóðsins, IFAW, til að kynna sér málefni hvalveiða og hvalaskoðunar. 26.7.2004 00:01
Sprenging á McDonald´s í Mexíkó Sprenging skók McDonald´s-skyndibitastað í Mexíkóborg í morgun. Yfirvöld hafa ekki enn viljað greina frá hvað olli sprengingunni eða hvort einhverjir hafi slasast. Að sögn embættismanns á borgarskrifstofum Mexíkóborgar er veitingastaðurinn í verslunarmiðstöðinni Lindavista Plaza í norðurhluta borgarinnar. 26.7.2004 00:01
Líðan forsætisráðherra góð Líðan Davíðs Oddssonar forsætisráðherra er eftir atvikum góð og framfarir hans eðlilegar, samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu. </font /></b /> 26.7.2004 00:01
Höfrungar og selir í Thames Höfrungar og selir eru meðal þeirra dýrategunda sem hafa endurnýjað heimkynni sín í Thames-ánni í London. Á viktoríutímabilinu, fyrir um tvö hundruð árum, varð Thames svo menguð að nær öllu dýralífi í ánni var eytt. 26.7.2004 00:01
Eigandi Austurbæjar ósáttur Formaður skipulags- og byggingarnefndar segir minni líkur nú en áður að niðurrif Austurbæjar verði heimilað. Viðbrögð við grenndarkynningu ráði þar einna mestu. Eigandi hússins segist ósáttur, verði niðurrif ekki leyft. Hugsar næsta leik. 26.7.2004 00:01
Bók Ómars uppseld Bók Ómars Ragnarssonar, <em>Kárahnjúkar - með og á móti</em>, rýkur út og er nánast alltaf biðröð út á götu þegar Ómar áritar bókina að því er segir á heimasíðu JPV-útgáfu sem gefur bókina út. Bókin kom út á miðvikudag og seldist hún upp á svipstundu. Hún er væntanleg aftur í búðir síðar í þessari viku. 26.7.2004 00:01
Hryðjuverkabæklingur í Bretlandi Breska ríkisstjórnin hefur varið meira en milljarði íslenskra króna í því skyni að uppfræða almenning um hvernig bregðast eigi við ef hryðjuverkaárás ætti sér stað. 26.7.2004 00:01
Sjúkrahús í endurbyggingu hrundi Heil álma í fjögurra hæða sjúkrahúsi sem var í endurbyggingu hrundi til grunna í Kabúl í Afganistan í dag. Ekki er vitað hve margir voru í byggingunni þegar hún hrundi en ljóst er að nokkrir eru fastir í rústunum. 26.7.2004 00:01
300 lögreglumenn í skotbardaga Aðgerðin Drekaveiðin eða „Dragon Hunting“ var hrundið af stað í morgun til að handsama einn harðsvíraðasta glæpamann Taívans. Chang She-ming er grunaður um aðild að fjölda skotárása og listinn yfir glæpi er langur. Lögregla fékk vísbendingar um að Chang héldi til í Suður-Taívan og samstundis voru yfir 300 lögreglumenn sendir á staðinn. 26.7.2004 00:01
Sri ófundin - maðurinn þegir enn Leit lögreglunnar að Sri Rhamawati hefur engum árangri skilað, né heldur yfirheyrslur yfir manninum sem grunaður er um að vera valdur að hvarfi hennar. Lögregla segir yfirheyrslur fara fram þegar aðstæður gefi tilefni til. Maðurinn, sem setið hefur í gæsluvarðhaldsvist á Litla Hrauni frá 6. júlí, var síðast yfirheyrður á laugardag. 26.7.2004 00:01
Má ekki yfirgefa Ísrael Hæstiréttur Ísraels setti í gær hömlur á ferða- og tjáningarfrelsi Ísraelsmannsins Mordechai Vanunu sem ljóstraði upp um kjarnaofn Ísraelsmanna árið 1986. 26.7.2004 00:01
Miklir skógareldar í Portúgal Miklir skógareldar geisa nú í Portúgal. Stærstu eldarnir eru í Arrabida-þjóðgarðinum um fimmtíu kílómetra suður af höfuðborginni Lissabon. Nærliggjandi strendur og hús hafa verið rýmd og 150 slökkviliðsmenn börðust við eldana í nótt. Hitinn í Portúgal er hátt í fjörutíu gráður um þessar mundir sem gerir slökkvistarf mjög erfitt. 26.7.2004 00:01
Giftar án þess að vita það Suður-afrískar konur eru eindregið hvattar til að athuga reglulega hvort þær hafi verið giftar án þeirrar vitundar. Sérstakri herferð var hleypt af stokkunum eftir að upp komst um meira en þrjú þúsund ólögleg hjónabönd. 26.7.2004 00:01
Nánast engar umbætur í brunavörnum Ekkert hefur verið gert í brunavörnum á tveimur þriðju hluta gistiheimila sem voru með ófullnægjandi brunavarnir í fyrra. Lagfæringar hafa verið gerðar á fimm gistiheimilum af fimmtán en ekkert þeirra er þó með viðunandi brunavarnir að öllu leyti. 26.7.2004 00:01
ÁTVR brýtur áfengislög Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins brýtur gegn áfengislögum með því að auglýsa áfengi. Forstjóri ÁTVR segir stofnunina ekki ganga eins langt og heildsalar en tekur undir með þeim að skýrari reglur vanti um áfengisauglýsingar hér á landi. 26.7.2004 00:01
Brosandi bílar Uppfinningamenn hjá bílaframleiðandanum Toyota hafa fengið einkaleyfi í Bandaríkjunum fyrir hugmynd að bíl sem sýnir tilfinningar. 26.7.2004 00:01
Dráp og mannrán halda áfram Vígamenn í Írak drápu átta manns í dag, þar á meðal háttsettan embættismann úr innanríkisráðuneytinu. Ekkert lát er á mannránum en tveimur Jórdönum og tveimur Pakistönum var rænt í dag til viðbótar við þá sjö gísla sem hafa setið í haldi í rúma viku. 26.7.2004 00:01
Fyrrverandi skólastjóri sýknaður Fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskóla Íslands var í dag sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af því að hafa svikið tæplega 29 milljónir króna frá skólanum. Hann var hins vegar dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa dregið sér 450 þúsund krónur frá Viðskipta- og tölvuskólanum. 26.7.2004 00:01
Boðaður í skýrslutöku Jón Gerald Sullenberger hefur verið boðaður í skýrslutöku fyrir héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Skýrslutakan er vegna lögreglurannsóknar á forsvarsmönnum Baugs að því er fram kom í fréttum Útvarpsins. 26.7.2004 00:01
Efnahagsmál ráða líklega úrslitum Efnahagsmál koma líklega til með að ráða úrslitum í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í haust. Flokksþing demókrata hefst í kvöld en þar verður John Kerry formlega tilnefndur sem forsetaframbjóðandi þeirra. 26.7.2004 00:01
Starfsfólk fæst ekki Mikið álag er á starfsfólki slysa- og bráðadeildar Landspítala háskólasjúkrahúss og fólk getur þurft að bíða klukkustundum saman eftir þjónustu. Starfandi lækningaforstjóri segir ástæðuna ekki vera fjársvelti heldur fáist fólk einfaldlega ekki til starfa. 26.7.2004 00:01
Frelsum Bobby „Frelsum Bobby“ samtökin verða stofnuð hér á landi til að freista þess að frelsa Bobby Fischer úr varðhaldi í Japan og búa honum áhyggjulaust ævikvöld á Íslandi. Á morgun verður sett upp vefsíða undir nafninu „Free Bobby“ og er markmiðið að ná þannig til heimsbyggðarinnar allrar. 26.7.2004 00:01
Aðgerðir ESB gegn Súdan Evrópusambandið samþykkti í dag að grípa til aðgerða gegn Súdan, beiti súdönsk stjórnvöld sér ekki fyrir friði í Darfúr-héraði. 26.7.2004 00:01
Tíundi hver fangi er útlendingur Erlendur föngum hefur fjölgað mikið í íslenskum fangelsum síðustu ár. Sjö erlendir fangar voru í eða luku afplánun árið 2000 en voru þrjátíu árið 2003. Georg Lárusson hjá Útlendingastofnun segir tölurnar vera í samræmi við þróun útlendingamála á Íslandi. 26.7.2004 00:01
Leita Sri í dag Slysavarnarfélagið Landsbjörg mun leita að Sri Rahmawati á svæðum í nágrenni Reykjavíkur ásamt lögreglu í dag, að sögn Ómars Smára Ármannssonar hjá lögreglunni í Reykjavík. 26.7.2004 00:01
Tvenn jarðgöng og nýir vegir Unnið er að umfangsmiklum vega- og gatnaframkvæmdum víða um land í sumar. Ekki má gleyma jarðgöngunum, en boranir og sprengingar eru í fullum gangi við tvenn göng. Fjármagn til nýframkvæmda af þessu tagi nemur 7,2 milljörðum á árinu. 26.7.2004 00:01
Tölvur spá vætu suðvestanlands Samkvæmt tölvuspám, einkum frá Danmörku og Bretlandi, er gert ráð fyrir vætusömu veðri sunnan- og vestanlands um verslunarmannahelgina. Norðlendingar og Austfirðingar fái hins vegar blíðuna. 26.7.2004 00:01
Lést í eldsvoða í Reykjavík Kona á níræðisaldri lést í eldsvoða í fjölbýlishúsi við Sundlaugaveg í Reykjavík í nótt. Það var um sexleytið í nótt sem vegfarandi sá reyk leggja út frá húsinu og hringdi strax í neyðarlínuna. Í húsinu eru fjórar íbúðir og var konan ein á efri hæð þess. 25.7.2004 00:01
Fimm slösuðust í bílveltu Fimm manns slösuðust, þar af einn lífshættulega, eftir að bíll fór út af veginum og valt við Vatnsskarðsnámur á veginum til Krýsuvíkur á tíunda tímanum í gærkvöld. Krýsuvíkurvegi var lokað á kafla um tíma vegna slyssins. 25.7.2004 00:01
Norðmenn orðnir latir Norðmenn leita nú leiða til að endurvekja vinnugleði hjá fólki í landinu. Ósérhlífnin og harkan sem einkenndu norska alþýðu áður en landið varð ríkt af olíu virðast vera á undanhaldi og eftir þrjá áratugi af velsæld virðist letin vera að ná tökum á norku vinnufólki. 25.7.2004 00:01
Björgunarsveit náði í Dana Flugbjörgunarsveitin á Hellu sótti í nótt danskan ferðamann um fertugt sem hafði læstst í baki, um hálfan annan kílómetra frá Hrafntinnuskeri. Beiðni barst á ellefta tímanum í gærkvöld um að sækja manninn en hann hafði þá hringt í Neyðarlínuna. 25.7.2004 00:01
Áströlum og Ítölum hótað Ástralíu og Ítalíu hafa borist hótanir um hryðjuverk frá samtökum sem talin eru tengjast Al-Kaída. Í tilkynningu frá samtökunum er farið fram á að löndin dragi heri sína til baka frá Írak og verði það ekki gert muni holskefla bílasprenginga ganga yfir borgir landanna. Blóðbað muni eiga sér stað og lífi borgara landanna verði breytt í hreinasta helvíti. 25.7.2004 00:01
Norðmenn afhendi ekki Nóbelinn Ungliðahreyfing norska miðflokksins, Senterpartiet, hefur látið þá skoðun í ljós að Norðmenn eigi ekki lengur skilið þá virðingu og þann heiður sem fylgir því að veita friðarverðlaun Nóbels. Ástæðan sé fylgispektin við ofbeldisfulla utatnríkisstefnu Bandaríkjastjórnar. 25.7.2004 00:01
Hellisheiðin annar vart álaginu Mikil og þétt umferð hefur verið um Hellisheiðina í sumar og nú er svo komið að vegakerfið annar vart álaginu. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, segir umhugsunarvert hvort leyfa eigi ýmiss konar áheitaferðir um veginn þar sem sýnt sé að umferðarþunginn er mjög mikill flesta daga. 25.7.2004 00:01
Gefur 150 milljóna lottóvinning Óþekktur lottóvinningshafi í Japan hefur ákveðið að láta þær rúmu 150 milljónir króna sem hann vann á föstudaginn renna óskiptar til fórnarlamba nýlegra flóða í Japan. Vinningshafinn, sem virðist búa yfir einstakri gjafmildi, segist vonast til þess að fórnarlömb flóðanna verði aðnjótandi sömu heppni og fylgdi miðanum. 25.7.2004 00:01
Réttarhöldunum sífellt frestað Réttarhöldum yfir morðingja hálfíslenskrar konu í Pensacola í Bandaríkjunum hefur verið frestað í áttunda sinn. Lögfræðingar, sem sérhæfa sig í að verja hagsmuni brotaþola, fylgjast grannt með málarekstrinum. 25.7.2004 00:01
100 dagar til kosninga John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata, segist staðráðinn í að sannfæra kjósendur um það á næstu þremur mánuðum að hann sé betur til þess fallinn að verja landið gegn hryðjuverkum heldur en George Bush. 25.7.2004 00:01
13 skæruliðar drepnir Varnarliðsmenn í Írak drápu þrettán skæruliða í hörðum bardögum utan við borgina Baquba í morgun. Skæruliðarnir réðust til atlögu með sprengjuvörpum og handsprengjum á varnarliðsmenn þar sem þeir aðstoðuðu bandaríska hermenn við að brjóta á bak aftur skyndiáhlaup í Baquba. 25.7.2004 00:01