Fleiri fréttir

Berjast við sjóræningja

Malasía, Singapúr og Indónesía ætla að senda sérstakar flotadeildir út á Malakka-sund til þess að berjast gegn sjóræningjum. Meira en eitt sjórán á dag var framið þar á síðasta ári. Malakka-sund er ein mikilvægasta sjóleið heimshafanna en um það fer um fjórðungur sjóflutninga í heimsviðskiptum.

Írakar fá Saddam á morgun

Íröksk stjórnvöld fá lögsögu yfir Saddam Hússein á morgun og ellefu háttsettum flokksfélögum hans. Saddam verður þó ekki seldur Írökum í hendur í orðsins fyllstu merkingu því hann verður áfram í gæsluvarðhaldi hjá Bandaríkjaher.

Líklega mistök flugmanna

Flest bendir til þess að mistök flugmanna hafi orðið til þess að Dornier-flugvél Íslandsflugs magalenti á Siglufjarðarflugvelli í síðustu viku. Fulltrúar frá Rannsóknarnefnd flugslysa fóru með flugrita flugvélarinnar til aflestrar í Englandi í gær og verða niðurstöðurnar skoðaðar síðar í dag.

Þarf fleiri en kusu Ólaf Ragnar

Fleiri þurfa að kjósa gegn fjölmiðlalögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu til að fella lögin úr gildi en kusu Ólaf Ragnar Grímsson forseta lýðveldisins þriðja kjörtímabilið í röð, verði þess krafist að minnst 44% atkvæðabærra manna synji lögunum.

Samfylkingin stærst

Samfylkingin fengi 33,6% atkvæða ef kosið yrði til Alþingis nú, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallups. Sjálfstæðisflokkurinn fengi 31,1%. Könnunin var gerð á tímabilinu frá 26. maí til 24. júní. Úrtakið var 2.638 manns en 63% þeirra svöruðu.

Umboðsmaður vísar frá kvörtun

Umboðsmaður Alþingis hefur vísað frá kvörtun fréttastjóra Stöðvar 2 og Bylgjunnar vegna ákvörðunar Davíðs Oddssonar forsætisráðherra að neita að svara spurningum fréttastofunnar eftir að forseti Íslands synjaði fjölmiðlalögunum staðfestingar.

Samstarf gegn hryðjuverkum

Mikið hefur verið fjallað um aukið samstarf ríkja gegn hryðjuverkum á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem nú fer fram. Lagt hefur verið til að auka upplýsingaflæði á milli aðildarríkja bandalagsins og samstarfsríkja til að sporna við alþjóðlegum hryðjuverkum.

Netnotkun eykst

Netnotendum fjölgar ekki á Íslandi. Fækkar ekki heldur - og Íslendingar státa líkast til enn af heimsmeti í Netnotkun þrátt fyrir að hún standi í stað þriðja árið í röð. Fjórir af hverjum fimm Íslendingum nota Netið. Þetta kemur fram á vef Tæknivals, <strong><a href="http://www.taeknival.is" target="_blank">taeknival.is</a></strong>

Jarðgöng undir Vaðlaheiði í bígerð

Undirbúningsfélag um jarðgöng undir Vaðlaheiði, austan Akureyrar, telur að göngin geti orðið að veruleika eftir sex ár ef allur undirbúningur gengur að óskum. KEA hefur þegar ákveðið að leggja fram hundrað milljónir króna í hlutafé vegna ganganna.

Barroso reiðubúinn að taka við

Forsætisráðherra Portúgals, José Manuel Durao Barroso, tilkynnti nú áðan að hann væri reiðubúinn að taka við embætti forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins af Ítalanum Romano Prodi í nóvember.

Hafsteinn á Ólympíuleikana

Hafsteini Ægi Geirssyni, siglingamanni úr Siglingaklúbbnum Þyt í Hafnarfirði, hefur verið boðin þátttaka á Ólympíuleikunum í Aþenu nú í sumar. Hafsteinn hefur sl. fjögur ár stefnt markvisst að þátttöku í leikunum og á HM sem fram fór í Tyrklandi í maí var hann aðeins tveimur sætum frá því að tryggja sér ólympíusæti.

Kynlífslyf fyrir konur

Vísindamenn í Bandaríkjunum telja sig í fyrsta skipti hafa þróað kynlífslyf fyrir konur sem virki örugglega.

Ákæruvaldið fær á baukinn

Ákæruvaldið fær á baukinn í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í fjársvikamáli sem kveðinn var upp í dag. Um er að ræða mál þar sem maður var ákærður í níu liðum fyrir að hafa svikið fé úr fjórum tryggingafélögum á árunum 1989-1991.

Kvikmynd um ímyndarsköpun

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt styrk að upphæð 165 þúsund krónur til gerðar heimildarmyndar um ímyndarsköpun tveggja bæjarfélaga á Íslandi. Myndin verður gerð í samstarfi við mannfræðiskor félagsvísindadeildar Háskóla Íslands og Kvikmyndaskóla Íslands.

24 starfsmenn Sþ létust

Tuttugu og fjórir starfsmenn Sameinuðu þjóðanna létu lífið í Afríkuríkinu Síerra Leóne í dag þegar þyrla þeirra flaug á fjallshlíð í vesturhluta landsins. Ekkert bendir til annars en að þetta hafi verið slys.

Utankjörfundarkosning nauðsyn

Svokölluð Þjóðarhreyfing - viðbragðshópur sérfræðinga - telur nauðsynlegt að boðið verði upp á utankjörfundarkosningu í þjóðaratkvæðagreiðslunni um fjölmiðlalögin.

Uppsagnir meinatækna

Meinatæknafélag Íslands mótmælir harðlega þeirri ákvörðun að öllum meinatæknum á Heilsuverndarstöð Íslands var sagt upp í dag með aðeins þriggja daga fyrirvara en uppsagnirnar taka gildi 1. júlí.

Ítrekaðar athugasemdir við skipið

Tyrkneska skipið sem losnaði af strandstað út af Straumsvík í gær fer í sérstaka skoðun hér á landi samkvæmt svokölluðu Parísarsamkomulagi sem tekur til öryggis skipa.

Nýr Dettifossvegur á næsta ári

Framkvæmdir við nýjan Dettifossveg, vestan Jökulsár, eiga að hefjast á næsta ári. Áætlað er að verkið í heild kosti allt að 1200 milljónum króna.

Ófremdarástand í Súdan

Yfir þrjátíu þúsund manns hafa verið drepnir í Darfur-héraði í Súdan undanfarið eitt og hálft ár. Þeir sem eftir lifa svelta heilu hungri.

Þarf fleiri en kusu Ólaf Ragnar

Níutíu og fjögur þúsund kjósendur þarf til að fella fjölmiðlalögin úr gildi í væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu, verði þess krafist að minnst 44% atkvæðisbærra manna greiði atkvæði gegn þeim. Það eru mun fleiri en kusu Ólaf Ragnar Grímsson um helgina.

Barroso tekur við í haust

José Barroso, forsætisráðherra Portúgals, hefur þekkst boðið um að verða forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Aðildarríkin sættust á þessa niðurstöðu eftir hörð átök. Barroso tekur við stöðunni í haust og fær það hlutverk að sannfæra borgara álfunnar um gagnsemi Evrópusambandsins.

Lög gegn klámi felld úr gildi

Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi í dag úr gildi lög sem miða að því að hindra aðgang barna að klámefni á internetinu. Lög þessa efnis voru samþykkt að tilhlutan dómsmálaráðuneytisins árið 1998.

Saddam afhentur á morgun

Írakar fá lögsögu yfir Saddam Hússein á morgun og hann verður leiddur fyrir írakskan dómstól. Talið er að ein milljón manna hafi látið lífið í stjórnartíð hans.

Ísraelsmaðurinn lést af ofkælingu

Ísraelsmaðurinn sem fannst látinn skammt frá Hrafntinnuskeri í fyrrinótt lést af völdum ofkælingar. Ekki er ástæða til að ætla að maðurinn hafi verið veikur fyrir.

Bannað að setja takmarkanir

Bannað er að setja takmarkanir á fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu og óhugsandi er að halda hana án þess að kostur verði gefinn á því að greiða atkvæði utan kjörfundar. Þetta segja Jónatan Þórmundsson lagaprófessor og félagar hans í Þjóðarhreyfingunni.

Deila við Norðmenn í uppsiglingu

Enn ein fiskveiðideilan við Norðmenn er í uppsiglingu. Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt að erlend skip megi að hámarki veiða 80.000 tonn af síld á Svalbarðasvæðinu til 15. október. Framkvæmdastjóri LÍÚ segir ekki koma til greina að hlíta þessu.

Liháinn má koma aftur

Litháinn sem Hæstiréttur dæmdi að hefði ranglega verið vísað úr landi hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort hann snýr aftur hingað til lands. Honum er það þó algerlega frjálst. Forstjóri Útlendingastofnunar er staðfastlega þeirrar skoðunar að rétt ákvörðun hafi verið tekin þegar manninum var vísað úr landi.

Sýknaður vegna tafa á málsmeðferð

Keflvíkingur var í dag sýknaður af ákæru um tryggingasvik vegna þess að ámælisverður dráttur hafði orðið á málsmeðferðinni. Vitni voru dáin og málsskjöl svo máð af elli að ekki var hægt að lesa þau.

„Það vantar einn í hópinn!“

Það vantar einn í hópinn! Það er yfirskrift þjóðarátaks VÍS gegn umferðarslysum. Sjónum er nú beint sérstaklega að aðstandendum þeirra sem látast í umferðinni. Kona sem missti föður sinn í bílslysi fyrir þremur áratugum segir að sér verði enn hverft við þegar hún heyrir af banaslysum í umferðinni.

Norsku krónprinshjónin í Garðabæ

Það var glatt á hjalla í Garðabæ í dag þegar norsku krónprinshjónin fengu í fyrsta skipti tækifæri til þess að komast út á meðal fólks. Gríðarleg stemning var í Garðatorgi þar sem stór hópur barna beið í eftirvæntingu eftir hinum tignu gestum og ætlaði sér að syngja fyrir þá.

Enn verið að kanna skemmdir

Ekki er enn ljóst hversu miklar skemmdir hafa orðið á tyrkneska súrálflutningaskipinu Kiran Pacific sem strandaði um 3,3 sjómílur norðvestur af Straumsvíkurhöfn á laugardag. Skipið losnaði af standstað á mánudag með hjálp dráttarbátsins Hamars frá Hafnarfirði.

Unnið í samráði við hagsmunaaðila

Innan samgönguráðuneytisins er því vísað á bug að ekki hafi verið unnið að því að koma á reglum um skipaskráningu íslenskra kaupskipa en félag skipstjórnarmanna hefur þungar áhyggjur af mikilli fækkun Íslendinga í áhöfnum þeirra erlendu skipa sem hér starfa fyrir íslenskar kaupskipaútgerðir.

Menntaskólinn Kópavogi fullsetinn

Menntaskólinn í Kópavogi er fullsetinn og getur ekki tekið við fleiri nýnemum, segir Steinnunn Inga Óttarsdóttir, áfangastjóri skólans.

Vilja vinna með Íslandi

Hagsmunir Íslands og samtaka Grænfriðunga fara saman hvað varðar vernd og viðhaldi á vistkerfi hafsins og því þurfa þessir aðilar að vinna saman, segja talsmenn Grænfriðunga.

Veldur vandræðum þriggja milljóna

Mikil örtröð myndaðist í neðanjarðarlestum Lundúna í gær er fjöldi fólks freistaði þess að komast til sín heima áður en sólarhringsverkfall lestastarfsmanna skall á.

Tugmilljóna tjón

Mörghundruð sérsmíðaðra armbandsúra og um þúsund silfurhnífapörum var stolið frá danska silfursmiðnum Georg Jensen. Úrin og hnífapörin höfðu verið smíðuð að ósk Rania Jórdaníudrottningar og var áletrun jórdönsku konungsfjölskyldunnar grafin í gripina.

Ólíkar reglur milli landa

Starfshópur um þjóðaratkvæðagreiðslu kannaði sérstaklega reglur í öðrum löndum. Þær eru afar breytilegar. Misjafnt hvort sett séu skilyrði um tiltekna lágmarksþátttöku eða atkvæðavægi og hvort úrslit séu bindandi eður ei.

Netklámsbann brot á stjórnarskrá

Hæstiréttur Bandaríkjanna telur að lög sem eiga að vernda börn gegn klámi á Netinu brjóti líklega í bága við stjórnarskrárákvæði Bandaríkjanna um tjáningarfrelsi. Í annað skiptið sendi rétturinn málið aftur til undirréttar.

Nýr forsætisráðherra í Pakistan

Chaudry Shujat Hussain var kjörinn forsætisráðherra af þjóðþingi landsins í gær með 190 atkvæðum gegn 76. Hussain sem er dyggur bandamaður yfirmanns herafla landsins tekur við af embættinu af Zafarullah Khan Jamali.

Tekinn af lífi

Íraskir andspyrnumenn skutu bandarískan gísl til bana samkvæmt tilkynningu sem birtist á sjónvarpsstöðinni Al-Jazeera. Bandaríski hermaðurinn Keith Maupin var tekinn í gíslingu í apríl síðastliðnum ásamt sjö öðrum Bandaríkjamönnum.

Kostnaður við hvern nema eykst

Gert er ráð fyrir að kostnaður á hvern framhaldskólanema í dagskóla verði 563 þúsund í ár. Hann hækkar um 48 þúsund frá því í fyrra. Frá árinu 2000 hefur kostnaðurinn hækkað um 198 þúsund krónur á hvern nemenda, eða um tæplega 43 prósent, samkvæmt tölum frá menntamálaráðuneytinu.

Þrettán ár fyrir stríðsglæpi

Stríðsglæpadómstóllinn í Haag hefur dæmt Serbann Milan Babic í þrettán ára fangelsi fyrir þjóðernishreinsanir í Krajina-héraði í Króatíu.

Grindhvaladráp í Vági

Tæplega 30 grindhvölum veiddust í fjörunni í Vágí á Suðurey í Færeyjum í fyrrakvöld.

Missti sextán ára son í bílslysi

"Ég hef bæði misst foreldra og bróður en þetta er eitthvað sem ekki er hægt að lýsa. Veröldin hrundi," segir Lárus Kjartansson, lögreglumaður sem missti son sinn, Magnús Örlyg, í umferðarslysi skammt frá Nesjavallavirkjun árið 1996.

Sjá næstu 50 fréttir