Fleiri fréttir

Bush vill gleyma þrætum

Andi friðar og vinsemdar sveif yfir vötnum á fundi Bush Bandaríkjaforseta og leiðtoga Evrópusambandsins í dag. Svo virðist sem samstaða ríki um að gleyma þrætum og leiðindum undanfarinna missera og horfa þess í stað til framtíðar.

Oriana kemst í höfn

Eitt stærsta skemmtiferðaskip heims, Oriana, neyddist til að sigla út úr ytri höfninni í Reykjavík í dag vegna hvassviðris. Síðdegis var ákveðið að það legðist að bryggju í Sundahöfn til að unnt yrði að koma farþegunum aftur um borð.

Eiginkonur kjósa ekki

Forsetaframbjóðendurnir þrír hafa auðvitað ekki hugmynd um hverjir kjósa þá og hverjir ekki. Eitt geta þeir þó allir verið vissir um, og það er að eiginkonur þeirra greiða þeim ekki atkvæði. Það er forvitinlegt að allar eiginkonur frambjóðendanna eru útlendingar og enginn þeirra hefur kosningarétt á Íslandi.

Auðir seðlar taldir sér

Forsíðufyrirsögn Morgunblaðsins í dag um að auð atkvæði verði birt sérstaklega túlkar Mörður Árnason alþingismaður sem skilaboð blaðsins til lesenda um að skila auðu í forsetakosningunum

Kjörsókn mun minni en 1996

Kjörsókn nú er mun minni en í forsetakosningunum árið 1996 og í alþingiskosningunum í fyrra. Framkvæmd kosninganna hefur víðast hvar gengið mjög vel. Slæmt veður gæti þó sett strik í reikninginn í Suðurkjördæmi, því ekki hefur verið hægt að fljúga með atkvæði frá Vestmannaeyjum og útlitið fyrir kvöldið er slæmt.

Frambjóðendur á kjörstað

Forsetakosningar fara fram á Íslandi í dag, í sjötta sinn í sögu lýðveldisins. Þótt allar líkur séu á því að Ólafur Ragnar Grímsson verði endurkjörinn með meirihluta atkvæða verður horft til þess hversu margir kjósendur munu nota tækifærið til að lýsa andstöðu sinni við hann.

Ólafur Ragnar með 85,6 % atkvæða

Samkvæmt fyrstu tölum úr Reykjavíkurkjördæmi norður, Suðvesturkjördæmi og Norðausturkjördæmi er Ólafur Ragnar Grímsson með ríflega 85% fylgi. Auðir seðlar eru tæpur fjórðungur.

Fylgi Ólafs 70% í Suðurkjördæmi

Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar er rúm 70% samkvæmt fyrstu tölum, úr Suðurkjördæmi. Það breytir þó litlu um fylgi hans á landsvísu, það er rúm 85%.

Engin samkeppni hjá Ólafi

Sænska dagblaðið Dagens Nyheter greindi frá umræðunni um fjölmiðlalögin á Íslandi í gær samfara því að fjalla um forsetakosningarnar. Segir blaðið að Ólafur Ragnar Grímsson muni vafalaust sigra með yfirgnæfandi meirihluta.

Polítískt stríð á Íslandi

Í gær greindi danska dagblaðið Politiken frá því að Íslendingar gengju nú til forsetakosninga á meðan þeir væru staddir í stærstu pólitísku deilum sem um gæti á Íslandi.

Kenni ómálaefnalegri umfjöllun um

"Ég er með meira fylgi en Kristur hafði á sínum tíma og læt þessa krossfestingu ekki stöðva mig," sagði Ástþór Magnússon þegar fyrstu tölur úr forsetakosningunum lágu fyrir.

Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi

Í Norðvesturkjördæmi hafa nú verið talin 500 atkvæði en talning þar fór seint af stað. Litlar breytingar eru á fylgi frambjóðendanna miðað við fyrstu tölur úr öðrum kjördæmum.

Meirihluti andvígur ESB-aðild

Rúmur helmingur þeirra sem afstöðu tóku í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins kvaðst andvígur umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Hlutfall óákveðinna er hærra en andvígra og fylgjandi. Niðurstaðan undirstrikar sterkt fylgi við umsókn segir formaður Samfylkingarinnar.

Rúmlega 5.000 búnir að kjósa

Alls voru 5336 manns búnir að skila inn utankjörstaðaratkvæði til sýslumannsins í Reykjavík í gær en kosningar um forseta Íslands fara fram á morgun.

Loðnan fundin

"Það er langur vegur frá því að hægt sé að fullyrða nokkuð þrátt fyrir að þetta gefi okkur vissulega von," segir Hjálmar Vilhjálmsson, loðnusérfræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun, en nokkur loðna hefur fundist fyrir norðan Hornbjarg og djúpt norður af Húnaflóa.

Fréttablaðið eykur forskot sitt

Fréttablaðið er sá fjölmiðill á Íslandi sem flestir nota á hverjum degi og er forskot þess sem mesta lesna dagblaðs landsins er enn að aukast, samkvæmt nýrri fjölmiðlakönnun Gallup. Að meðaltali lesa 69 prósent Fréttablaðið á hverjum degi en 51 prósent Morgunblaðið.

Stauraskelfar teknir úr umferð

Reykjavíkurlögreglan tók fjóra ökumenn úr umferð í nótt vegna ölvunaraksturs. Tveir þeirra voru reyndar ekki lengur á ferð þegar lögregla skarst í leikinn, því þeir höfðu ekið bílum sínum á sitt hvorn ljósastaurinn og eyðilagt bílana, en sluppu þó báðir ómeiddir. Þeir voru vel við skál, en auk þess voru tveir teknir í átaki lögreglu, sem hófst eftir miðnætti, þar sem 80 ökumenn voru stöðvaðir.

Lokar fyrir flugumferð

Reynt verður að ná Dornier flugvél Íslandsflugs, sem magalenti á Siglufjarðarflugvelli í fyrrakvöld, af flugbrautinni í dag, en hún lokar fyrir flugumferð um völlinn. Í ljós er komið að vélin er mun meira skemmd en talið var í fyrstu og er tryggingafélag vélarinnar að meta hvort það borgi sig að gera við hana, eða dæma hana ónýta.

Sjómaður sóttur af þyrlu

Þyrla og Fokker vél Landhelgisgæslunnar sóttu í gær fárveikan sjómann um borð í spænskan togara , sem var djúpt vestur af landinu. Togarinn sigldi á fullri ferð í átt til landsins til móts við þyrluna þar sem hann var utan flugdrægni hennar þegar beiðnin barst. Leiðangurinn gekk vel og var maðurinn lagður inn á Landspítalann til meðhöndlunar.

Meirihluti telur stríðið mistök

Í fyrsta sinn frá því í stríðinu í Víetnam telur nú meirihluti Bandaríkjamanna að hernaðaraðgerðir hafi verið mistök. Ný könnun leiðir í ljós að 55 prósent aðspurðra telja stríðið í Írak hafa dregið úr öryggi Bandaríkjanna. Meirihluti Bandaríkjamanna telur að stríðið í Írak hafi verið mistök.

Hóta kjarnorkusprengingu

Norður-Kóreustjórn hefur hótað að framkvæma tilraunakjarnorkusprengingu, sem túlkað er sem enn ein tilraun stjórnvalda til að beita þrýstingi á þau ríki sem sitja að samningaborði í Peking, og reyna að ná samkomulagi um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu.

Kaupa Karen Millen og Whistles

Baugur Group mun væntanlega kaupa verslanakeðjurnar Karen Millen og Whistles fyrir hundrað milljónir punda, eða sem nemur ríflega þrettán milljörðum króna. Dagblaðið Times kveðst hafa þetta eftir traustum heimildum.

Sluppu vel úr árekstri

Sjö manns, þar af tvö börn, sluppu með ólíkindum vel í hörðum árekstri tveggja bíla á þjóðveginum á móts við gatnamótin að Munaðarnesi í gærkvöldi. Bíll, sem verið var að aka fram úr öðrum bíl, lenti beint framan á bíl, sem kom úr gagnstæðri átt. Eru báðir bílarnir ger ónýtir.

Eldur í Kassagerðinni

Eldur kviknaði þegar glussarör sprakk í stórri umbúðapressu í Kassagerðinni við Héðinsgötu um klukkan þrjú í nótt. Slökkviliðið sendi mikið lið á vettvang þar sem verksmiðjuhúsið er stórt og mikill eldsmatur er í því.

Noregsvefur opnaður

Noregsvefurinn á Íslandi verður opnaður í dag í norska sendiráðinu í Reykjavík. Noregsvefurinn er sniðinn að staðháttum allra landa sem hýsa opinber norsk sendiráð og/eða sendiskrifstofur og íslenska útgáfan hefur veffangið <a href="http://www.noregur.is/">www.noregur.is</a>.

86% eiga tölvu

Í febrúarmánuði árið 2004 voru 86% heimila á Íslandi með tölvu og fjögur af hverjum fimm heimilum gátu tengst interneti. Heimilum sem nota ADSL, SDSL eða annars konar xDSL tengingu fjölgar úr 40% árið 2003 í 54% árið 2004. Þetta eru niðurstöður rannsóknar Hagstofunnar á notkun heimila og einstaklinga á tæknibúnaði og interneti.

Allawi sker upp herör

Nýr forsætisráðherra Íraks, Iyad Allawi, kveðst ætla að ganga á milli bols og höfuðs á gömlum stuðningsmönnum Baath-flokksins og erlendum skæruliðum, sem hann segir bera ábyrgð á öldu ofbeldisverka í landinu. Ríflega hundrað manns fórust í fjölda árása í gær, en talið er að hryðjuverkamenn reyni nú að varpa skugga á valdaskiptin í landinu í næstu viku, og grafa undan nýjum stjórnvöldum þar.

Eftirmaður Prodis enn ekki fundinn

Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, hyggst von bráðar ákveða hvort hann kallar saman sérstakan fund þjóðarleiðtoga Evrópusambandsríkjanna á þriðjudag til að ákveða endanlega hver verður næsti framkvæmdastjóri sambandsins.

Flugriti og hljóðriti sendir út

Flugriti og hljóðriti Dornier-flugvélarinnar, sem magalenti á Siglufjarðarflugvelli í fyrrakvöld, verða sendir út til rannsóknar í Bretlandi í dag og niðurstöðu er að vænta á þriðjudag. Vélin er hugsanlega ónýt. Rannsóknarnefnd flugslysa hefur ekki enn tekið fullnaðarskýrslu af flugmönnunum tveimur, sem voru um borð, en það verður væntanlega gert á mánudag.

Baugur kaupir Karen Millen

Baugur keypti í dag meirihluta í bresku verslunarkeðjunni Karen Millen á tæplega sextán milljarða króna. Kaupin hafa vakið mikla athygli á Bretlandi og er greint frá þeim á forsíðu viðskiptavefs BBC í dag. Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segist ánægður með kaupin þar sem þau styrki enn frekar stöðu félagsins.

Framkvæmdastjórn fyrir dóm

Evrópuþingið ætlar að draga framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fyrir dóm. Ástæðan er umdeildur samningur við Bandaríkin, sem gerir ráð fyrir því að persónuupplýsingum verði safnað um flugfarþega í nafni baráttunnar gegn hryðjuverkum.

Olíubíll ók á strætisvagn

Níutíu létust þegar olíubíll með sautján þúsund lítra af bensíni ók á kyrrstæðan strætisvagn í suðurhluta Írans í gærkvöldi. Líkin eru svo illa farin að erfitt er að bera kennsl á þau.

Loðnan mætt á svæðið

Fyrsta loðnan á þessari sumarvertíð er komin að bryggju í Bolungarvík um borð í loðnuskipinu Gullbergi VE, og er löndun að hefjast. Skipið fékk fullfermi, eða rúm 1200 tonn norður af Horni. Flugmaður tók eftir því í fyrrakvöld að háhyrningar voru þar í æti, sem reyndist vera loðna.

Öflugri margmiðlun í Þjóðminjasafn

Þjóðminjasafn Íslands og Bakkavör Group hafa undirritað samstarfssamning til þriggja ára. Samningurinn styrkir safnið í þeirri viðleitni að gera Þjóðminjasafn Íslands nútímalegt með öflugri margmiðlun og tölvuveri auk annara þátta sem snúa að nýjustu straumum í sýningartækni.

Steypireyður á Skjálfandaflóa

Steypireyður, sem er stærsta skepna veraldar, hefur haldið sig á Skjálfandaflóa að undanförnu, sem er afar fátítt. Hefur skepnan sést vel frá hvalaskoðunarbátum Húsvíkingi. Þykir þetta tíðindum sæta á þessum slóðum, og láta menn sér helst detta í hug sú skýring að nú er að hefjast á Húsavík ráðstefna um málefni hvala, frá ýmsum sjónarhornum.

Fyrirtækin losa um budduna

Reikna má með því að fyrirtæki losi aðeins um budduna á þessu ári og verji meira fé en undanfarin ár til endurnýjunar á tölvubúnaði og öðru sem lýtur að upplýsingatækni, að því er fram kemur á <a href="http://www.taeknival.is/" target="_blank"><strong>vef Tæknivals.</strong></a>

World Press Photo í Kringlunni

Ljósmyndasýningin World Press Photo var opnuð í Kringlunni í dag og stendur til 18. júlí. World Press Photo samkeppnin hefur verið haldin árlega síðan árið 1955 og er stærsta keppni sinnar tegundar. 4176 atvinnuljósmyndarar frá 124 löndum tóku þátt í ár. Rúmlega 63 þúsund myndir voru sendar inn sem er þátttökumet.

Ástþór á Gauknum annað kvöld

Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi mun halda móttöku fyrir stuðningmenn sýna annað kvöld á Gauk á stöng í miðbæ Reykjavíkur. Ástþór kynntist konu sinni Natalíu Wium á Gauk á Stöng á á styrktartónleikum mæðrastyrksnefndar fyrir um þremur árum og þótti þeim við hæfi að bjóða stuðningsfólki sínu þangað. Móttakan verður 26. júní milli 22 og 00.

Fallið frá kæru

Fallið hefur verið frá kæru til Hæstaréttar vegna gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir þremur Palestínumönnum sem komu til Íslands í maí með fölsuð eða stolin vegabréf. Mönnunum var vísað úr landi á þriðjudag og miðvikudag, samkvæmt úrskurði Útlendingastofnunar, og eru þeir nú í Noregi, þar sem samþykkt var að taka við þeim.

Opinn skógur á Snæfoksstöðum

Opnunarhátíð, Opins skógar á Snæfoksstöðum, verður haldin á morgun klukkan tvö. Opinn skógur er samstarfsverkefni skógræktarfélaganna, Olís og Alcan á Íslandi, er miðar að því að opna skóga og gera þá aðgengilega. Lögð er áhersla á upplýsingar um lífríki, náttúru og sögu viðkomandi svæðis.

Alfreð áfram formaður borgarráðs

Alfreð Þorsteinsson var endurkjörinn formaður borgarráðs í morgun. Stefán Jón Hafstein var kjörinn varaformaður í stað Árna Þórs Sigurðssonar. Borgarráð var kjörið til eins árs á fundi borgarstjórnar í gær, fimmtudaginn 24. júní.

Gunnar Örn ákærður

Gunnar Örn Kristjánsson, fyrrverandi endurskoðandi Tryggingarsjóðs lækna, hefur verið ákærður fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, með því að hafa á árunum 1993-2001 vanrækt skyldur sínar sem löggiltur endurskoðandi ársreikninga Tryggingarsjóðsins.

ÚA dæmt til að greiða bætur

Útgerðarfélag Akureyringa var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmt til að greiða manni tæplega 16 milljónir króna í skaðabætur vegna slyss sem hann varð fyrir um borð í frystitogaranum Hólmadrangi ST-70 í nóvember árið 1999.

Viðvörun frá Veðurstofu

Veðurstofan varar við hvassviðri á sunnanverðu landinu í nótt og á morgun. Gert er ráð fyrir að vindur verði allt að 25 m/s til fjalla með slagveðursrigningu.

Sjá næstu 50 fréttir