Menning

Hlátra­sköll hjá heitum hönnuðum

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var líf og fjör í Grósku í síðustu viku á fyrirlestraröðinni Tölum um.
Það var líf og fjör í Grósku í síðustu viku á fyrirlestraröðinni Tölum um. Hönnunarmiðstöð

Ungir og upprennandi hönnuðir komu saman í Grósku í síðustu viku og tóku púlsinn á stefnum og straumum í listheiminum. Tilefnið var fyrirlestraröðin Tölum um sem Hönnunarmiðstöð stendur fyrir í vetur og viðfangsefnið í þetta sinn var sköpunargleðin.

Hönnuðir og listamenn stigu á stokk og kynntu það sem þeir höfðu aðallega verið að fást við að undanförnu í sinni sköpun. Mikið var um hlátrasköll og fjör og gleðin var í fyrirrúmi.

Á svið stigu Birta Fróðadóttir arkitekt, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir myndlýsir, Logi Pedro vöruhönnuður, Júlíanna Ósk Hafberg fatahönnuður og myndlistarkona, Sóley Jóhannsdóttir fatahönnuður og Þorgeir K. Blöndal grafískur hönnuður. Búi Bjarmar Aðalsteinsson, hönnuður og stofnandi Grallaragerðarinnar, hélt utan um dagskrána af sinni alkunnu snilld.

Hér má sjá vel valdar myndir frá fyrirlestrinum: 

Halldóra Vífilsdóttir og Gréta Hlöðversdóttir.Hönnunarmiðstöð
Anna María Bogadóttir og Regína Bjarnadóttir.Hönnunarmiðstöð
Tómas Viðar og Bjarki Þ. Wiium.Hönnunarmiðstöð
Sigga Heimis, Eyjólfur Pálsson, Hildur Sigurðardóttir og Hlín Reykdal.Hönnunarmiðstöð
Logi Pedro og Búi Bjarmar Aðalsteinsson skáluðu í kaffi við þennan stemningsmann.Hönnunarmiðstöð
Búi Bjarmar var kynnir á fyrirlestrinum.Hönnunarmiðstöð
Eyjólfur Pálsson eigandi Epal í góðum félagsskap.Hönnunarmiðstöð
Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvarinnar, opnaði og lokaði fyrirlestrinum.Hönnunarmiðstöð
Kolbeinn Jara Hamíðsson, Anna Róshildur Benediktsdóttir og Dagur Eggertsson. Hönnunarmiðstöð
Sigríður Margrét, Fannar Pálsson og Alexandra Ósk Bergmann.Hönnunarmiðstöð
Viðfangsefni fyrirlestrarins var sköpunargleðin.Hönnunarmiðstöð
Júlíanna Ósk Hafberg var með erindi. Hönnunarmiðstöð
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir fór á kostum.Hönnunarmiðstöð
Hlátur og fjör.Hönnunarmiðstöð
Sóley Jóhannsdóttir ræddi við gesti um fatahönnun.Hönnunarmiðstöð
Þorgeir K. Blöndal grafískur hönnuður. Hönnunarmiðstöð
Margt um manninn og myndlistarmaðurinn Pétur Geir lét sig ekki vanta.Hönnunarmiðstöð
Brot úr fyrirlestri Lóu.Hönnunarmiðstöð
Birta Fróðadóttir var með erindi um arkitektúr.Hönnunarmiðstöð





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.