Íslenski boltinn

Al­gjört bíó í Eyjum: Ó­trú­legt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu

Sindri Sverrisson skrifar
Bjarki Björn Gunnarsson trúði vart eigin augum þegar gula spjaldið fór tvisvar á loft og það rauða þar með í kjölfarið.
Bjarki Björn Gunnarsson trúði vart eigin augum þegar gula spjaldið fór tvisvar á loft og það rauða þar með í kjölfarið. Sýn Sport Ísland

Það gekk vægast sagt mikið á í fyrri hálfleik í leik ÍBV og FH í neðri hluta Bestu deildar karla í fótbolta í dag. Leikmaður ÍBV fékk tvö gul spjöld á sömu sekúndunni og þar með rautt eftir að liðsfélagi hans hafði skömmu áður klúðrað algjöru dauðafæri með ótrúlegum hætti.

Þrátt fyrir allt saman voru Eyjamenn 1-0 yfir þegar liðin gengu til búningsklefa en hægt er að fylgjast með textalýsingu frá leiknum með því að smella hér.

Omar Sowe kom ÍBV í 1-0 og var nálægt því að skora aftur á 35. mínútu en skaut í stöng og út. Þaðan barst boltinn út á Heiðmar Þór Magnússon fyrir opnu marki en skot hans fór einhvern veginn í þverslána eins og sjá má hér að neðan og trúði Heiðmar vart eigin augum.

Skömmu síðar reif svo dómarinn Gunnar Oddur Hafliðason upp gula spjaldið tvisvar á sömu sekúndunni og rak Bjarka Björn Gunnarsson af velli. Bjarki var togaður niður af Guðmundi Andra Tryggvasyni og ýtti við honum þar sem þeir lágu á miðjum vellinum. Hann hellti svo úr skálum reiði sinnar en erfitt er að segja til um nákvæmlega hvað olli því að gulu spjöldin urðu tvö og gekk Bjarki vægast sagt ósáttur af velli.

Tíu Eyjamenn enduðu á að vinna leikinn 3-1 og fögnuðu þar með sínum fyrsta sigri í meira en þrjá mánuði.

Það var þegar orðið ljóst fyrir leikinn í dag að ÍBV myndi falla úr Bestu deildinni og einnig má segja að það sé öruggt að FH haldi sæti sínu í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×