Bíó og sjónvarp

Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Ís­landi

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Jeremy Strong fer með hlutverk Marks Zuckerberg í The Social Reckoning.
Jeremy Strong fer með hlutverk Marks Zuckerberg í The Social Reckoning.

Kvikmyndin The Social Reckoning, sem fjallar um stóra Facebook-lekann árið 2021 sem afhjúpaði varhugaverða stjórnunarhætti fyrirtækisins, hefur fengið dræmar viðtökur hjá bæði gagnrýnendum og áhorfendum. Viðtökurnar hafa verið svo dræmar að hætt var við sýningu á kvikmyndinni á Íslandi, um þremur vikum fyrir frumsýningu.

Konstantín Mikaelsson, framkvæmdastjóri Smárabíós, staðfesti við blaðamann að The Social Reckoning yrði ekki sýnd á Íslandi en upphaflega stóð til að frumsýna hana hérlendis 8. október síðastliðinn.

Ákvörðunin um að hætta við að sýna kvikmyndina hérlendis hafi verið tekin fyrir rúmum þremur vikum, þó nokkru fyrir frumsýninguna, vegna dræmrar aðsóknar í forsýningum. Smárabíó hefði engu ráðið um ákvörðunina heldur var hún tekin af erlendum dreifingaraðilanum, Sony Pictures.

Konstantín segir það alveg gerast að hætt sé við sýningar á kvikmyndum en það sé nokkuð sjaldgæft að það sé gert með svona skömmum fyrirvara. Ekki liggur fyrir hvort hætt hafi verið sýningar á myndinni annars staðar en hún virðist vera sýnd víðast hvar erlendis.

Kvikmyndin er framhald hinnar geysivinsælu The Social Network (2010) sem David Fincher leikstýrði og fjallaði um upphaf samfélagsmiðilsins Facebook og stofnanda þess, Mark Zuckerberg. Handritshöfundurinn Aaron Sorkin, sem skrifaði handrit fyrri myndarinnar, er höfundur og leikstjóri framhaldsins og með helstu hlutverk fara Jeremy Strong, Mikey Madison og Jeremy Allen White.

The Social Reckoning fjallar um það þegar Frances Haugen (Madison), verkfræðingur hjá Facebook, vann með blaðamanninum Jeff Horwitz (Allen White) að því að uppljóstra um varhugaverða stjórnunarhætti hjá Mark Zuckerberg (Strong) og stjórn Facebook með stórum gagnaleka árið 2021. Lekinn sýndi að Facebook hafði haldið upplýsingafalsi og umdeildu efni kerfisbundið að notendum sínum um þriggja ára skeið á sama tíma.

Vonir stóðu til að framhaldið gæti fylgt eftir góðum viðtökum fyrri kvikmyndarinnar, sem hlaut Óskarsverðlaun, góða dóma og rakaði inn 224 milljónum dala (um 27 milljarða króna) á heimsvísu. 

Raunin var allt önnur og halaði The Social Reckoning inn aðeins átta milljónum dala á heimsvísu um síðustu helgi sem var meira að segja minna en verstu spár. Markaðssérfræðingur telur ástæðuna fyrir dræmu genginu vera að fólk hafi ekki eins sterka taug til Facebook og það gerði í árdaga miðilsins.

„Satt að segja var Facebook miklu meira aðlaðandi umfjöllunarefni árið 2010. Í dag er það orðið að meira hjálpargagni og sagan sem er sögð í The Social Reckoning er öðruvísi og að öllum líkindum meira krefjandi frá markaðslegu sjónarhorni. Þegar þú blandar því við misjafna dóma og þá mætirðu miklum mótbyr á erfiðum bíómarkaði,“ sagði Paul Dergarabedian, markaðsfræðingur hjá Rentrak, við Hollywood Reporter.

The Social Reckoning er hins vegar ekki eina kvikmyndin í ár sem fjallar um misgjörðir tækniforstjóra í Sílikondalnum því nýverið komu út heimildarmyndirnar Musk um Elon Musk og You Can See Everything um Elizabeth Holmes, stofnanda Theranos. Þá styttist í kvikmyndina Artificial eftir Luca Guadagnino með Andrew Garfield í hlutverki Sams Altman, forstjóra OpenAI. Ólíkt Social Reckoning hafa þær þrjár þó fengið prýðilega dóma hjá gagnrýnendum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.