Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Þorsteinn Hjálmsson skrifar 16. október 2026 18:31 Sveinn Margeir Hauksson og Aron Bjarnason í baráttunni í kvöld. vísir/Guðmundur Víkingar sigruðu Breiðablik 1-2 í Kópavoginum í kvöld í miklum hitaleik þar sem rauða spjaldið fór fjórum sinnum á loft. Sigurmark leiksins var svo úr efstu hillu beint úr aukaspyrnu. Fór leikurinn þó fremur hægt af stað og greinilegt að spennustigið hjá leikmönnum var nokkuð lágt komandi inn í leikinn. Mikill hasar kom þó í leikinn á 20. mínútu, en þá fékk Jónatan Guðni Arnarsson boltann úti á vinstri kantinum og keyrði inn á völlinn og lét vaða. Lá boltinn í netinu og mögulega hægt að setja spurningarmerki við Aron Snæ Friðriksson í marki Víkinga. Aðeins mínútu síðar voru heimamenn í Breiðablik orðnir einum manni færri. Blikar reyndu þá að spila upp úr öftustu línu. Anton Ari Einarsson kom þá með sendingu inn á miðjuna á Anton Loga Lúðvíksson sem var of seinn að átta sig og Valdimar Þór Ingimundarson komst á undan honum í boltann. Anton Logi renndi sér því á rassinn og felldi Valdimar Þór sem hefði verið kominn einn í gegn. Ívar Orri Kristjánsson, dómari leiksins, lyfti því upp rauða spjaldinu. Daníel Hafsteinsson fær faðmlag frá fyrirliðanum. Hann skoraði en fékk rautt spjald undir lokin.vísir/Guðmundur Eftir þessar viðburðaríku tvær mínútur tóku Víkingar öll völd á vellinum og lágu á heimamönnum. Sama hvað Víkingar reyndu þá fór boltinn ekki í netið. Á 41. mínútu fékk Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks rautt spjald fyrir kjaftbrúk. Óli Valur Ómarsson leikmaður Breiðabliks braut þá á Stíg Diljan Þórðarsyni á miðjum vellinum og Ívar Orri kallaði Óla Val til sín. Óli Valur var afar ósáttur með það tiltal og sömuleiðis má segja það sama um Ólaf Inga sem lét vita af því og fékk að fjúka fyrir vikið. Staðan var 1-0 í hálfleik. Sveinn Margeir Hauksson og Aron Bjarnason í baráttunni í kvöld.vísir/Guðmundur Sama leikmynd var í síðari hálfleik og í þeim fyrri eftir rauða spjaldið. Víkingar höfðu öll tök á leiknum og Blikar reyndu að verja forystu sína. Víkingar voru nálægt því að jafna á 58. mínútu þegar Daníel Hafsteinsson átti skot í slá frá vítapunkti. Fjórum mínútum seinna jafnaði hann þó metin. Vann hann þá boltann á vítateigshorni Blika eftir misheppnaða stutta hornspyrnu hjá Víkingum. Daníel kom boltanum fyrir sig og lagði hann í fjærhornið fram hjá fullum teig af mannskap. Á 68. mínútu kom eitt af mörkum tímabilsins. Víkingar fengu þá aukaspyrnu u.þ.b. 30 metrum frá marki. Sveinn Margeir Hauksson, nýkominn inn á, tók spyrnuna og negldi honum í samskeytin með beinni rist. Rosalegt flug á boltanum sem Anton Ari í markinu átti ekki séns í. Allt ætlaði svo um koll að keyra undir restina. Daníel Hafsteinsson braut þá groddaralega af sér og fylgdi vel á eftir og upp hófust miklar stympingar á milli manna, slagsmál. Var niðurstaðan að þeim loknum sú að Daníel fékk reisupassann líkt og Ásgeir Helgi Orrason sem lét mest að sér kveða í liði Blika í þessum hasar. Leiknum lauk því með 19 leikmönnum inni á vellinum og var mörgum hverjum verulega heitt í hamsi við leikslok. Atvik leiksins Í ljósi mýmargra atvika þá hafði rauða spjaldið á Anton Loga í fyrri hálfleik afdrifaríkustu áhrifin. Leikmyndin breyttist algjörlega við það að Blikar urðu manni færri. Hins vegar verður að nefna sigurmarkið hér einnig, sem var stórglæsilegt í meira lagi. Stjörnur og skúrkar Sveinn Margeir er hetja leiksins í raun. Víkingar ætluðu ekki að ná inn öðru marki þrátt fyrir mörg góð tækifæri, en þá þurfti bara eina neglu af 30 metrum frá norðanmanninum. Þótt slagsmál selji þá er það ákveðinn svartur blettur á leiknum. Þátttakendur þeirra slagsmála taka það til sín. Dómarar Ívar Orri Kristjánsson var ekki að kæla rauða spjaldið í kvöld. Mörg stór atvik í þessum leik og mikil pressa á Ívari Orra í leik sem var þó lítið undir í, horfandi á töfluna. Leikstjórnin hefði hæglega getað verið betri til þess að tempra leikinn og missa hann ekki í það ójafnvægi sem hann sveiflaðist í. Að því sögðu þá frá mér séð reyndist rétt að víkja Antoni Loga af velli í fyrri hálfleik. Stemning og umgjörð Mikill hiti var í stúkunni í kvöld. Ætli flóðljósin og föstudagskvöldið skapi það andrúmsloft? Sungust stuðningsmennirnir á með söngvunum „Íslandsmeistarar, já Íslandsmeistarar“ og „Bikarmeistarar, já Bikarmeistarar“ sem eru ekki frumlegustu söngvarnir sem heyrst hafa. Lokaleikur tímabilsins var á Eikarvellinum og geta Blikar gengið sáttir frá borði hvað varðar umgjörð á vellinum á þessu tímabili. Sölvi Geir: „Þetta er búið að gerast tvisvar sinnum of oft“ „Fyrst og fremst sáttur með að ná þessum þrem stigum. Þetta var hörku leikur. Mér fannst jafnræði í byrjun leiks. Menn að þreifa á hvor öðrum og Blikarnir skora þarna mark á okkur og mér fannst svona vanta kraftinn í okkur. Síðan breytir rauða spjaldið leiknum og við tökum yfir leikinn og gerum það vel,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkinga, eftir sigurinn í Kópavoginum í kvöld. „Við erum með pressu á þá allan tímann sem við erum einum fleiri og hefðum hæglega getað skorað fleiri mörk. Við klúðrum fullt af dauðafærum. Leikurinn breytist rosalega við rauða spjaldið. Við gerðum vel. Við vorum að þrýsta þeim niður og vorum að vinna þessa seinni bolta og halda sókninni lifandi og við fínstilltum okkur aðeins í hálfleik og töluðum um að vera þolinmóðir. Þeir vörðust vel og Anton Ari var að verja eins og skepna, við þurftum bara að vera þolinmóðir. Þetta kom undir restina með glæsilegu marki hjá Sveini Margeiri.“ Aðspurður út í hasarinn undir lok leiksins hafði Sölvi Geir þetta að segja. „Ég sá ekki atvikin en ef Daníel hefur gert eitthvað þá er það ekki nógu gott. Við eigum að geta haldið hausnum og þetta er annar leikurinn í röð þar sem Daníel fær rautt spjald. Hann verður að geta haldið hausnum og það eru stympingar í leikjunum og það er einhver sem er seinn í tæklingar. Hann þarf að læra af þessu, þetta er búið að gerast tvisvar sinnum of oft. Ég sá svo sem ekki atvikið. Ég missti bara af þessu.“ Að lokum var Sölvi Geir spurður út í lokaleikinn og veisluhöldin sem verða í kringum þann leik, þegar skjöldurinn fer á loft. „Ég er ekki í veisluhöldum en ég býst við því að búið sé að undirbúa mikið og þetta verður skemmtilegt kvöld. Við munum taka á móti bikarnum og það er alltaf gaman og skemmtilegt kvöld þegar við lyftum bikarnum fyrir framan áhorfendur okkar. Ég get ekki beðið. Það er líka mikilvægt fyrir okkur að koma vel stilltir inn í þann leik og klára þetta eins og Íslandsmeistarar, með meistaraframmistöðu. Ég krefst þess af mínum leikmönnum að þeir klári þetta tímabil og svo fögnum við bara. Miklu skemmtilegra að fagna þannig líka.“ Íslenski boltinn Fótbolti Bónus-deild karla Víkingur Reykjavík Breiðablik