Fótbolti

Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern

Aron Guðmundsson skrifar
Amin Cosic í baráttunni með undir 21 árs landsliði Íslands
Amin Cosic í baráttunni með undir 21 árs landsliði Íslands Guðmundur/Vísir

Amin Cosic og liðsfélagar hans í norska meistaraliðinu Viking náðu óvæntu jafntefli gegn stórveldinu Bayern Munchen í Meistaradeild Evrópu á dögunum. Íslendingurinn greip tækifærið og fékk mynd af sér með stjörnu Bayern sem var þó skúrkurinn í liðinu í leiknum.

Amin Cosic og liðsfélagar hans í norska meistaraliðinu Viking náðu óvæntu jafntefli gegn stórveldinu Bayern Munchen í Meistaradeild Evrópu á dögunum. Íslendingurinn greip tækifærið og fékk mynd af sér með stjörnu Bayern sem var þó skúrkurinn í liðinu í leiknum.

Dramatískt jöfnunarmark undir lok leiks á heimavelli sá til þess að Viking tryggði sér 3-3 jafntefli gegn Bayern í umræddum leik í Meistaradeildinni.

Þeir norsku höfðu komist tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik en gæðin í Bayern Munchen sönnuðu sig og sneru leikmenn liðsins leiknum sér í vil.

Michael Olise, leikmaður Bayern Munchen, var hins vegar rekinn af velli í seinni hálfleik eftir að Zlatko Tripic, liðsfélagi Cosic hjá Viking, hafði komist í hausinn á honum.

Olise fékk fyrra gula spjaldið sitt í leiknum fyrir að stöðva skyndisókn með því að brjóta á leikmanni Viking. Eftir brotið ákvað hann svo að kasta boltanum í andlitið á Tripic sem norski fyrirliðinn gerði mikið úr.

Olise var því rekinn af velli með rautt spjald og Viking gekk á lagið, jafnaði leikinn í kjölfarið og tryggði sér dýrmætt stig.

Michael Olise og Amin Cosic eftir leik Viking og Bayern MunchenMynd: Amin Cosic á Instagram

Eftir leik fékk Amin Cosic, sem er hluti af öflugu undir 21 árs landsliði Íslands, mynd af sér með Olise sem hann lítur greinilega mikið upp til. Tveir öflugir sóknarmenn en Olise var skúrkurinn þetta kvöld.

„Draumur,“ skrifar Cosic við myndina af sér og Olise, sem hann birti á Instagram, eftir leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×