Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Samúel Karl Ólason skrifar 1. október 2026 11:14 Elbridge Colby, stefnumálastjóri varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna, og Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO. Colby hefur tekið stóran þátt í endurskoðun Bandaríkjamanna á viðveru bandarískra hermanna í Evrópu. EPA/OLIVIER MATTHYS Ríkisstjórn Donalds Trump er að sniðganga nokkra mikilvæga bandamenn Bandaríkjanna og evrópsk hergagnafyrirtæki fyrir fund sem halda á í mánuðinum. Fundurinn á að snúast um framtíð Atlantshafsbandalagsins en mörgum af þeim aðildarríkjum sem verja hvað mestu til varnarmála hefur ekki verið boðið á hann.
Fundurinn á að vera haldinn í Póllandi seinna í október en á meðal þeirra sem hafa ekki fengið boð á hann eru Frakkar, Bretar og ríkisstjórnir Eystrasaltsríkjanna. Þar á meðal eru ríki sem hafa aukið fjárútlát til varnarmála í takt við kröfur ríkisstjórnar Trumps. „Við erum að gera allt sem hefur verið krafist af okkur,“ sagði einn embættismaður frá ríki sem verið er að sniðganga við blaðamann Politico. „Við erum að reyna að átta okkur á því hver viðmiðin eru og hver tilgangur þessara funda er. Það er ekki búið að segja okkur mikið.“ Hafa ýtt undur sundrung Trump og hans helstu ráðherrar og embættismenn hafa fyrir ýtt undir sundrung innan bandalagsins. Sjálfur hefur Trump ítrekað talað um að NATO geri ekkert fyrir Bandaríkin og að önnur ríki bandalagsins myndu ekki koma Bandaríkjunum til aðstoðar. Þá hefur hann gefið til kynna að hann myndi ekki aðstoða önnur ríki í bandalaginu, ef ráðist yrði á þau. Í Hvíta húsinu og í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna er nú verið að endurskoða viðveru bandarískra hermanna í Evrópu. Sú endurskoðun byggir að einhverju leyti á spurningalista sem Bandaríkjamenn sendu á ríkisstjórnir annarra NATO-ríkja í sumar. Sjá einnig: Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Spurningarnar á þessum lista sneru að miklu leyti að því hvernig umræddar ríkisstjórnir hafa og geta í framtíðinni stutt við utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Hann snerist einnig um vopnakaup frá Bandaríkjunum og hvort ríkisstjórnirnar væru tilbúnar til að taka afstöðu gegn áætlunum innan Evrópusambandsins um að leggja áherslu á uppbyggingu hergagnaframleiðslu í Evrópu. Það hefur reynst verulega óvinsælt í Bandaríkjunum og hafa embættismenn Trump kvartað sáran yfir því en væntanleg hernaðaruppbygging í Evrópu er að stórum hluta til komin vegna ótta ráðamanna þar um að Bandaríkin séu ekki lengur eins áreiðanlegir bandamenn og þeir hafa verið. Sjá einnig: Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Þá var einnig þrýst á þessar ríkisstjórnir að segja sig frá Rómarsamþykktinni um stofnun Alþjóðlega sakamáladómstólsins. Sjá einnig: Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Ráðamenn víða í Evrópu eru sagðir hafa áhyggjur af því að Trump-liðar ætli sér að refsa tilteknum ríkjum heimsálfunnar, sem þeim finnst ekki haga sér í takt við vilja Trumps. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Trumps, hefur varað meinta bandamenn Bandaríkjanna við því að styðji þeir ekki hagsmuni Bandaríkjanna verði afleiðingar af því. Hafa haldið tvo fundi fyrir Elbridge Colby, stefnumálastjóri varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna, mun leiða fundinn í Póllandi en hann mun hafa haldið tvo sambærilega fundi fyrr á árinu. Á þá fundi bauð hann Norðmönnum, Svíum, Finnum, Pólverjum, Þjóðverjum og Hollendingum. Einn embættismaður sem sótti þá fundi heldur því fram við Politico að þeim hafi ekki verið ætlað að ýta undir sundrung innan NATO, heldur væri þeim ætlað að styrkja bandalagið. Hann viðurkenndi þó að innan NATO væri reiði meðal embættismanna ríkja sem hefðu ekki fengið boð á fundina. Eftir fyrsta fundinn, sem haldinn var í Noregi, skrifaði Colby á X að hann hefði fundað með NATO-bandamönnum sem væru að mæta skuldbindingum sínum um fjárútlát til varnarmála og væru tilbúnir til að gera meira fyrir NATO. Saman væru þessi ríki að róa í átt að nýju bandalagi. Þá sagði hann að þessir tilteknu bandamenn væru ekki að biðja um ölmusu. Many important allies in Europe are ready to move fast and do the work needed for Europe to take primary responsibility for its conventional defense. What these allies are asking for is not a handout but a hand up: clarity, collaboration, and cooperation on things like planning… pic.twitter.com/HAll9RsGlI— Under Secretary of War Elbridge Colby (@USWPColby) June 9, 2026
Bandaríkin Donald Trump NATO Hernaður Öryggis- og varnarmál Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira