Upp­gjörið: Breiða­blik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálf­leik

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Framarar halda áfram að vera jafnir KR í öðru sætinu.
Framarar halda áfram að vera jafnir KR í öðru sætinu. Anton/Vísir

Fram vann 3-4 sigur í stórskemmtilegum leik gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli í 20. umferð Bestu deildar karla. Fram skoraði öll fjögur mörk sín í fyrri hálfleik, Blikar bitu frá sér í seinni en gerðu ekki nóg. 

Með sigrinum er Fram búið að jafna KR að stigum í 2. sæti deildarinnar en Fram er í 3. sæti á markatölu. KR og Fram eru bæði með 43 stig en Víkingur situr á toppnum með 51 stig. Breiðablik er í fjórða sæti með 30 stig.  

Blikar byrjuðu betur en Fram svaraði fljótt

Blikar byrjuðu leikinn betur og tóku forystuna strax á 6. mínútu leiksins eftir vel útfærða hornspyrnu. Höskuldur Gunnlaugsson spilaði boltanum stutt en fékk hann aftur og gaf á fjærstöngina, Kristófer Ingi Kristinsson dempaði hann svo fyrir Davíð Ingvarsson sem kláraði færið vel meðfram jörðinni.

Eftir að hafa lent undir tók Fram algjörlega yfir leikinn og jöfnunarmarkið lá í loftinu. Hlynur Freyr Karlsson kastaði sér vel fyrir nokkur skot en gat ekki haldið því endalaust áfram. Eftir að þrjú dauðafæri höfðu farið forgörðum jafnaði Fram leikinn.

Róbert Hauksson skoraði jöfnunarmarkið á 15. mínútu með föstu skoti við vítateigslínuna. Róbert lagði svo upp annað mark Fram aðeins tveimur mínútum síðar, þegar hann spretti upp hægri kantinn í skyndisókn og fann Harald Einar Ásgrímsson á fjærstönginni.

Þriðja og fjórða markið fyrir hálfleik

Framarar voru hvergi nærri hættir og fundu netið í þriðja sinn á 34. mínútu. Vuk Oskar Dimitrijevic var þar á ferð en hann fylgdi eftir vörðu skoti frá Haraldi Einari.

Fram skoraði svo fjórða mark sitt á 44. mínútu þegar Breiðablik mistókst ítrekað að hreinsa boltann úr vítateignum. Á endanum rataði boltinn í netið þegar Kennie Chopart klippti boltann og skoraði sitt tíunda deildarmark í sumar. Anton Ari Einarsson var mjög ósáttur með sig, að hafa ekki varið skoppandi skotið frá Kennie, en það breytti því ekki að Blikar fóru þremur mörkum undir inn í hálfleikshlé.

Blikar bitu frá sér

Breiðablik svaraði hressilega fyrir sig í upphafi seinni hálfleiks.

Davíð Ingvarsson skoraði annað mark Breiðabliks og sitt annað mark á 56. mínútu, þegar hann lagði boltann í autt markið eftir góða fyrirgjöf frá Höskuldi Gunnlaugssyni en Óli Valur Ómarsson átti snilldarsendinguna sem að hóf sóknina.

Óli Valur lagði svo sjálfur upp þriðja mark Breiðabliks aðeins þremur mínútum síðar, þegar hann lyfti boltanum yfir vörnina á Þorleif Úlfarsson. Þorleifur tók vel á móti boltanum með bringunni og þrumaði honum í þaknetið til að skora sitt fyrsta mark í sumar.

Jónatan Guðni Arnarsson var síðan næstum því búinn að fullkomna endurkoma strax í næstu sókn en Viktor Freyr Sigurðsson varði skot hans virkilega vel og kom í veg fyrir fjórða mark Breiðabliks.

Undir lok leiks reyndu Blikar hvað þeir gátu til að koma jöfnunarmarkinu fyrir en Framarar vörðust vel.  

Fram náði að svara öllum tilraunum Breiðabliks í lokin og endaði leikurinn með mikilvægum 4-3 sigri Fram.

Viðtöl 

„Þetta var svo sannarlega ekki leikplanið“

Ólafur Ingi horfði á hryllingsmynd í fyrri hálfleik Breiðabliks í kvöld.vísir / guðmundur

„Ömurlegur fyrri hálfleikur hjá okkur. Við byrjum leikinn sterkt, komumst yfir og erum að búa til stöðurnar sem við vildum en svo eftir 1-0 markið þá breyttist það alveg. Við fórum að spila þetta upp í hendurnar á þeim og reyna erfiða hluti, sem gengu ekki upp. Við buðum þeim bara upp á þessi mörk, við áttum erfitt með að koma boltanum frá og vorum bara barnalegir á köflum,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, eftir leik.

Viðvörunarbjöllur fóru að hringja hjá Breiðabliki um leið og liðið komst yfir. Fram ógnaði trekk í trekk áður en jöfnunarmarkið kom loksins. Hvers vegna náðu Blikarnir að bregðast betur við og vakna þegar Fram fór að banka hressilega á hurðina hjá þeim?

„Það er góð spurning, við erum búnir að ræða þetta lengi og tala um þetta mörgum sinnum. Þetta var svo sannarlega ekki leikplanið, að spila svona inn í pressuna hjá þeim trekk í trekk. Þarna er game management hjá okkur mjög lélegt og ég er mjög hissa, á þessum tímapunkti á tímabilinu, að við séum enn þá að gera þessi mistök. Þarna þurftum við bara að snúa liðinu við. Ef við þurfum að fara á bakvið hápressu Fram þá eigum við bara að gera það, snúa þessu við, en við spiluðum frekar bara inn í þeirra pressu og þar fer leikurinn.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira