Erlent

Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Ber­lín

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
48th Berlin Christopher Street Day (CSD) Pride Parade
Getty

Minnst einn lést og 14 særðust alvarlega í hátíðarhöldum hinsegin daga í Berlín, að sögn lögreglu þar í borg. Grunur er um að sendiferðabíl hafi verið ekið á mannfjölda í Tiergarten-garðinum í vesturhluta miðborgar Berlínar.

Umfangsmikil leit standi yfir að þeim grunaða og fólk sé hvatt til að forðast svæðið, segir í færslu lögreglunnar í Berlín á samfélagsmiðlum. Mikill viðbúnaður bæði lögreglu og slökkvilið er á svæðinu. 

Sendiferðabíllinn hafi verið skilinn eftir á vettvangi og ökumaður hans flúið, segir í umfjöllun Berliner Zeitung. Atvikið hafi átt sér stað um tíuleytið að staðartíma í kvöld. 

Pride-hátíðinni, sem haldin er árlega, hefur verið aflýst en hundruð þúsunda tóku þátt í hátíðarhöldunum í dag.

Kai Wegner, borgarstjóri Berlínar, segir í færslu á X að atvikið hafi verið árás á „frjálsa og opna samfélagið okkar.“

„Berlín er borg frelsisins – og frelsi okkar hefur í dag orðið fyrir hræðilegri árás. Hugur minn er hjá fórnarlömbunum, fjölskyldum þeirra og vinum,“ skrifar hann. 

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×