Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Sindri Sverrisson skrifar 15. maí 2026 20:35 Morgan Rogers fagnar hér fyrsta marki leiksins en hann lagði líka upp annað mark Villa. Getty/Catherine Ivill Aston Villa tryggði sér í kvöld sæti í Meistaradeild Evrópu, í annað sinn á þremur árum, með frábærum 4-1 sigri á heimavelli gegn Liverpool í slag liðanna í 4. og 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Morgan Rogers kom Villa yfir undir lok fyrri hálfleiks með frábæru skoti í kjölfar stuttrar hornspyrnu. Virgil van Dijk jafnaði metin með skalla á 52. mínútu, eftir aukaspyrnu Dominiks Szoboszlai, en Ungverjinn rann svo á rassinn með boltann nærri eigin vítateig sem gerði Rogers auðvelt fyrir að leggja upp mark fyrir Ollie Watkins á 57. mínútu. Watkins bætti svo við seinna marki sínu á 73. mínútu eftir að Giorgi Mamardashvili hafði varið tvö skot í röð, áður en John McGinn skoraði fjórða mark Villa með frábæru skoti undir lokin, eftir stutta sendingu frá Watkins. Van Dijk minnkaði svo muninn með sínu öðru marki, aftur eftir sendingu Szoboszlai, í uppbótartíma en það dugði skammt. Með sigrinum er Villa í 4. sæti með 62 stig, þremur stigum fyrir ofan Liverpool og sjö stigum fyrir ofan Bournemouth sem er í 6. sæti og á tvo leiki eftir. Liverpool dugar að vinna Brentford á heimavelli í lokaumferðinni um næstu helgi, til að tryggja sig inn í Meistaradeildina en þangað fara fimm efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar. Standings provided by Sofascore Ef Villa tapar fyrir Manchester City í lokaumferðinni gæti liðið dregist niður í 5. sæti á nýjan leik. Ef og aðeins ef Villa endar í 5. sæti og vinnur Evrópudeildina þá mun liðið sem endar í 6. sæti einnig fá sæti í Meistaradeild Evrópu. Enski boltinn Aston Villa FC Liverpool FC