Tónlist

Stjörnufans hjá Birni á Edition

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Vaka Njáls, Ásgerður Diljá, Gugga í gúmmíbát, Villi Vill og Kolfinna Nikulásdóttir mættu á tónleika Birnis á staðnum ROOF á Reykjavík EDITION.
Vaka Njáls, Ásgerður Diljá, Gugga í gúmmíbát, Villi Vill og Kolfinna Nikulásdóttir mættu á tónleika Birnis á staðnum ROOF á Reykjavík EDITION. Elísabet Blöndal

Sannkölluð tónlistarveisla tók yfir skemmtistaðinn ROOF í síðastliðinni viku þegar Birnir stóð fyrir tónleikum. Ásamt honum þeytti Benni B-ruff skífum og stjörnurnar Flóni og Tatjana komu fram.

Staðurinn er staðsettur á Reykjavík EDITION hótelinu og ekki að undra að mikill fjöldi fólks mætti til að berja stjörnurnar augum og dansa við tryllta tóna. 

Mikið stjörnufans var á viðburðinum og meðal gesta voru stjörnulögmaðurinn Villi Vill, leikstjórinn Kolfinna Nikulásdóttir, ljósmyndarinn og tískudrottningin Sigríður Margrét, Vaka Njálsdóttir vörumerkjastjóri Collab, Ásgerður Diljá markaðsstjóri Aurum, áhrifavaldurinn Gugga í gúmmíbát, stjörnukokkurinn Haukur og svo lengi mætti telja. 

Birnir hefur fyrir löngu haslað sér völl sem einn vinsælasti rappari og tónlistarmaður landsins og leikur sér á mörkum hip-hops og raftónlistar. Hann gaf nýverið út annað lag með danssveitinni GusGus en hefur líka unnið með ýmsum röppurum á borð við Herra Hnetusmjör, Jóhann Kristófer og Flóna. 

Hér má sjá vel valdar myndir af gleðinni: 

Birnir í góðum gír.Elísabet Blöndal
Skvísur í brúnu.Elísabet Blöndal
Birnir og Flóni tóku nokkur vel valin lög saman.Elísabet Blöndal
Haukur kokkur og Arnór Snær stuðbolti í elegant yfirhöfnum. Elísabet Blöndal
Sigyn Jara, Sölvu Páll, Fannar Elí og Stefanía Linnet smart og smá í stíl.Elísabet Blöndal
Skartgripahönnuðurinn Karó, markaðsskvísan og ljósmyndarinn Sigríður Margrét og María Hrund verslunarstjóri Andrá glæsilegar.Elísabet Blöndal
María Hrund, Sigríður Margrét, Karólína og Thelma.Elísabet Blöndal
Birnir.Elísabet Blöndal
Tatjana Dís rísandi stjarna.Elísabet Blöndal
Pæjur!Elísabet Blöndal
Þessir glæsilegu gestir voru í góðum fíling.Elísabet Blöndal
Tvær með tískuna upp á tíu.Elísabet Blöndal
Björt kvöld á ROOF.Elísabet Blöndal
Tatjana Dís að þeyta skífum.Elísabet Blöndal
Glæsilegir í gír.Elísabet Blöndal
Fátt sem segir sumar meira en að sitja úti.Elísabet Blöndal
Villi Vill og Kolfinna Nikulásdóttir glæsileg tvö.Elísabet Blöndal
Vaka Njálsdóttir og Ásgerður Diljá skvísur.Elísabet Blöndal
Gellur!Elísabet Blöndal
Flóni og Gugga í gúmmíbát.Elísabet Blöndal
Trylltar buxur.Elísabet Blöndal
Skál!Elísabet Blöndal
Stuð.Elísabet Blöndal
Stemning við barinn.Elísabet Blöndal
Knús!Elísabet Blöndal
Flöskuborðsfljóð!Elísabet Blöndal
Benni B-ruff er goðsögn í DJ bransanum.Elísabet Blöndal
Mikið stuð!Elísabet Blöndal
Elegant herrar.Elísabet Blöndal
Stiginn trylltur dans.Elísabet Blöndal
Birnir og Flóni í fíling.Elísabet Blöndal
Strákarnir.Elísabet Blöndal





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.