Stjarnan - Valur 2-4 | Vals­menn vinna þriðja leikinn í röð

Valur Páll Eiríksson skrifar
Tryggvi Hrafn skoraði tvö og lagði upp eitt mark í kvöld.
Tryggvi Hrafn skoraði tvö og lagði upp eitt mark í kvöld. vísir

Valur sótti 2-4 sigur gegn Stjörnunni í Garðabæ í 4. umferð Bestu deildar karla. Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði tvö mörk fyrir Valsmenn og þegar honum tókst ekki að klára þrennuna lagði hann bara upp á liðsfélaga í staðinn. 

Stjarnan náði að jafna leikinn tvisvar eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik en Valur var með yfirhöndina og vann verðskuldaðan sigur með tveimur mörkum til viðbótar í seinni hálfleik. 

Lúkas Logi Heimisson skoraði fyrsta mark Valsmanna með góðu skoti. Andri Rúnar skoraði tvö mörk fyrir Stjörnuna en Tryggvi Hrafn hafði tekið forystuna á ný fyrir Valsmenn inn á milli. 

Tryggvi Hrafn hélt áfram að reynast Stjörnunni erfiður í seinni hálfleik. Hann setti þriðja mark Vals, sitt annað mark, á 55. mínútu. 

Tryggvi hótaði síðan þrennunni en klúðraði dauðafærum. Þá lagði hann bara upp mark fyrir liðsfélaga sinn Bjarna Mark Antonsson, sem skoraði með glæsilegri klippu og gulltryggði sigurinn.

Nánari umfjöllun og viðtöl eru væntanleg á Vísi von bráðar. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira