Selur húsið sitt til að komast á HM í fótbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. mars 2026 18:59 Andy Milne hefur mætt á níu heimsmeistaramót til að styðja við bakið á enska landsliðinu í fótbolta en aldrei séð liðið vinna þann stóra. Hann sjálfur er þó oftast með bikarinn í stúkunni. Getty/Richard Sellers/ Þeir sem vilja fylgjast með heimsmeistaramótinu í fótbolta í sumar verða að gera ráð fyrir að það kosti skildinginn.
Hátt miðaverð, rándýr ferðakostnaður sem er alltaf að hækka og svo má ekki gleyma fæði og uppihaldi en Bandaríkjamenn ætla svo sannarlega að græða pening á gestum mótsins. Englendingurinn Andy Milne hefur því ákveðið að selja húsið sitt til að fjármagna HM-ferðina í sumar. „Þetta mun kosta heilmikla peninga,“ sagði hinn 62 ára gamli Milne við Mirror. Sumir kannast kannski við andlit hans frá fyrri mótum. Milne er nefnilega að fara á sitt tíunda heimsmeistaramót í fótbolta. Hann hefur farið á níu karlamót og eitt kvennamót. 🏴 This is England super fan Andy Milne. 👉 He's been following England for 40 years 👉 He's been to 8 World Cups and 9 EUROs👉 No doubt he'll be at the final tomorrowWill he see England lift the EUROs for the first time in history?#EURO2024 pic.twitter.com/JScr41KgqI— Football Tweet ⚽ (@Footballtweet) July 13, 2024 Oft sést hann halda á eftirlíkingu af sigurverðlaununum, sjálfum heimsbikarnum. Til að geta bætt enn einu heimsmeistaramótinu við í sumar hefur Milne nú sett sitt annað hús, sem er á Norður-Englandi, á sölu fyrir 58 milljónir íslenskra króna. „Síðasta mót í Katar (2022) var gjöf til mín sjálfs. Ég hafði sparað í mörg ár fyrir það. Við höfum átt annað heimili í 27 ár, svo það virtist vera rétti tíminn til að fá pening fyrir það,“ sagði Milne en hann er kennari á eftirlaunum. Þrátt fyrir að Milne reyni að ferðast ódýrt er hann viss um að það verði dýrt. Ferðin felur nefnilega ekki bara í sér einn, tvo eða þrjá leiki. Hann ætlar að vera á staðnum í sjö vikur og er með miða alla leið í úrslitaleikinn. Húsið sem nú er til sölu hefur Milne leigt út í langtímaleigu. Hann býr nú í Taílandi en fylgist þó enn náið með enska fótboltalandsliðinu. Þegar hann er á landsleikjum verður mikið um myndatökur með öðrum stuðningsmönnum. Aftonbaldet fjallar um Andy Milne.@Sportbladet „Ég er þekktur alls staðar, jafnvel af skoskum stuðningsmönnum. Skotarnir bjóða mér alltaf í drykk. Einn bauð mér í Piña colada og annar bauð mér í romm og lime,“ sagði Milne. England mætir Króatíu, Gana og Panama í úrslitakeppninni. HM fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Opnunarleikurinn verður spilaður 11. júní og er hann á milli Mexíkó og Suður-Afríku. "I've had a fantastic time!" ⚽England superfan Andy Milne praises the experience of being in Germany for Euro 2024 🌎 pic.twitter.com/2LNjNHkS6y— Sky Sports News (@SkySportsNews) June 20, 2024
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gri/Nja - Breiðablik | Nýliðar með meistara í heimsókn FH - Fram | Komnar á mikið flug Þór/KA - Víkingur | Enn í leit að fyrsta sigrinum Stjarnan - ÍBV | Hörkuleikur í Garðabæ Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Styrmir nýr formaður hjá Val Sjá meira