Rodri daðrar opinberlega við Real Madrid Sindri Sverrisson skrifar 26. mars 2026 09:02 Rodri varð að sætta sig við tap gegn Real Madrid á Santiago Bernabeu á dögunum en gæti vel hugsað sér að það yrði hans heimavöllur í framtíðinni. Getty/Diego Souto Spænski landsliðsmiðjumaðurinn Rodri, handhafi Gullboltans 2024, hefur nú viðurkennt að það yrði erfitt fyrir hann að hafna tilboði frá Real Madrid. „
Ég á eitt ár eftir af samningnum mínum við Manchester City. Á einhverjum tímapunkti setjumst við niður og ræðum málin,“ sagði Rodri við spænsku útvarpsstöðina Onda Cero. „Þó að ég hafi spilað með Atlético Madrid þá held ég dyrunum opnum varðandi Real Madrid. Maður getur ekki snúið baki við bestu félögunum,“ sagði Rodri. Þessi 29 ára miðjumaður kom nefnilega til City frá Atlético Madrid á sínum tíma, árið 2019, og hefur undir handleiðslu Pep Guardiola orðið einn besti leikmaður heims, sérstaklega í sinni stöðu. Hann sleit hins vegar krossband í hné haustið 2024, skömmu eftir að hafa sagt á blaðamannafundi að álagið á leikmenn væri orðið slíkt, vegna fjölgunar leikja, að þeir gætu neyðst til að fara í verkfall. Í viðtalinu við Onda Cero, í landsleikjahléinu sem nú stendur yfir, minntist Rodri einmitt einnig á hið mikla álag sem fylgir því að spila með toppliði í bestu landsdeild heims; ensku úrvalsdeildinni. 🚨 Rodri: “I have one year left on my contract at Man City. At some point we'll have to sit down and talk”.“Real Madrid is NOT a closed door for me”, told Onda Cero. pic.twitter.com/nAcaZxR75p— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) March 26, 2026 „Ég myndi auðvitað vilja snúa aftur [í spænsku deildina einn daginn]. Þetta hófst allt hjá mér í La Liga og ég fylgist enn með deildinni þó að ég geri það ekki eins mikið og áður. Og ég verð að viðurkenna að enska úrvalsdeildin er minn veikleiki. Þetta er frábær deild en á sama tíma mjög krefjandi svo hún reynir á þolmörk manns. Ég er búinn að vera þar í sjö ár núna og tek eftir því hvað tíminn líður en í augnablikinu er ég mjög ánægður þar,“ sagði Rodri. „Ég er í augnablikinu að jafna mig af meiðslum og það sem ég hef áhyggjur af núna er að ná aftur á mitt besta stig, í mitt fyrra form. Ekki samningsmálin. Það kemur að þeim. En núna sérstaklega með HM handan við hornið er nauðsynlegt að ég komist á mitt besta stig,“ sagði Rodri.
Spænski boltinn Enski boltinn Manchester City Real Madrid CF Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Fleiri fréttir Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Sjá meira