Fullkomin helgi fyrir hetju City: Sigur okkar er áfall fyrir Arsenal Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. mars 2026 06:01 Nico O'Reilly fagnar fyrsta marki sínu fyrir Manchester City í úrslitaleiknum á Wembley. Grtty/Julian Finney Nico O'Reilly var hetja Manchester City í sigrinum á Arsenal í úrslitaleik enska deildabikarsins og hann vonast til að þetta högg fyrir topplið ensku úrvalsdeildarinnar muni hafa jákvæð áhrif fyrir City-menn í titilbaráttunni.
City vann lið Mikel Arteta 2-0 og lyfti Pep Guardiola bikarnum í fimmta sinn á ferlinum. Níu stig skilja liðin tvö að á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og þau mætast aftur á Etihad-leikvanginum þann 19. apríl. Guardiola sagði eftir leikinn að hann efaðist um að úrslit Carabao-bikarsins hefðu áhrif á titilbaráttuna. En O'Reilly – sem tryggði sigurinn gegn Arsenal með tveimur mörkum – telur að þetta muni auka pressuna á toppliðið þegar það reynir að tryggja sér sinn fyrsta enska meistaratitil í meira en tuttugu ár. Þetta er áfall fyrir þá „Hundrað prósent, þetta er áfall fyrir þá og við þurfum að byggja á þessu og ná skriðþunga með þessum sigri núna. Um leið og landsleikjahléinu lýkur þurfum við að gefa í og berjast hart,“ sagði O'Reilly. „Við eigum leik til góða í ensku úrvalsdeildinni, við eigum eftir að spila við þá á okkar heimavelli. Við erum enn þá í enska bikarnum. Liverpool er erfiður leikur og við vitum það, svo við þurfum að gera allt sem við getum til að halda áfram,“ sagði O'Reilly. Taktískar og stöðubreytingar frá stjóranum City náði ekki að eiga skot á mark í fyrri hálfleik gegn Arsenal. Þeir voru mun betra liðið eftir hlé og eftir leikinn upplýsti O'Reilly að það hefðu verið breytingar Guardiola í hálfleik sem hjálpuðu City að ná yfirhöndinni. „Mér fannst við ráða lögum og lofum um leið og við komum út í seinni hálfleikinn. Við leyfðum þeim ekki að komast af sínum vallarhelmingi, nokkrar taktískar og stöðubreytingar frá stjóranum og það virkaði vel,“ sagði O'Reilly. Hefði ekki getað beðið um mikið meira Tvö mörk í úrslitaleiknum kórónuðu góða helgi fyrir O'Reilly, sem var valinn í enska landsliðið á föstudag og fagnaði 21 árs afmæli sínu á laugardag. „Fullkomin helgi, ég hefði ekki getað beðið um mikið meira. Nú getum við fagnað aðeins og gert okkur klár fyrir landsleikjahléið,“ sagði O'Reilly.
Enski boltinn Arsenal FC Manchester City Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Sjá meira