Madueke og Havertz sáu um að brjóta múrinn á síðustu stundu Sindri Sverrisson skrifar 11. mars 2026 17:16 Kai Havertz fagnar eftir markið mikilvæga í kvöld. Getty/Alexander Hassenstein Það er allt jafnt í einvígi Leverkusen og Arsenal, 1-1, eftir fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í Þýskalandi í kvöld. Gabriel Martinelli komst næst því að skora í fyrri hálfleiknum en þrumaði í þverslána úr fínu færi. Seinni hálfleikur var hins vegar rétt svo hafinn þegar Robert Andrich, fyrirliði Leverkusen, stangaði boltann í netið eftir hornspyrnu. Leverkusen hafði haldið marki sínu hreinu í síðustu þremur leikjum í röð í Meistaradeildinni og það var ekki fyrr en á 89. mínútu sem að Arsenal tókst að finna glufu, í formi vítaspyrnu. Varamaðurinn Noni Madueke fiskaði spyrnuna eftir lipran sprett inn í teiginn og Kai Havertz skoraði svo úr vítinu. Liðin mætast aftur í Lundúnum næsta þriðjudagskvöld. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Arsenal FC