Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hólmfríður Gísladóttir skrifar 2. mars 2026 06:27 Þúsundir flúðu heimili sín í Líbanon í nótt, eftir að Ísraelar hótuðu árásum á um 50 þorp í suðurhluta landsins, til að svara fyrir árásir Hezbollah. Getty/Mohamad Zanaty Háværar sprengingar heyrðust í Jerúsalem, Dúbaí, Doha og Manama í morgun, er Íranir héldu áfram að gera árásir á skotmörk til að hefna fyrir hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna og Ísrael.
Yfirvöld í Ísrael segja loftvarnakerfi landsins hafa skotið niður eldflaugar frá Íran og þá gerðu Ísraelsmenn árásir á skotmörk í Líbanon, til að svara árásum Hezbollah. AFP hefur eftir yfirvöldum í Líbanon að 31 sé látinn þar í landi og 149 særðir. Drónaárás var gerð á Akrotiri-herstöð Breta í Kýpur í nótt, aðeins klukkustundum eftir að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, greindi frá því að Bretar hefðu ákveðið að heimila Bandaríkjamönnum að nota breskar herstöðvar til að gera árásir á skotmörk í Íran. Engan sakaði í árásunum á herstöðina. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að ný forysta í Íran vildi ræða við Bandaríkjamenn og hann hefði samþykkt það. Ali Larijani, yfirmaður öryggismála og fyrrverandi ráðgjafi Ayatollah Ali Khamenei, sagði hins vegar að Íranir hefðu ekki í hyggju að ganga samningaborðinu með Bandaríkjamönnum. Blaðamaðurinn Jonathan Karl hjá ABC greindi frá því í nótt að Trump hefði sagt við hann að þeir kandídatar sem stjórnvöld vestanhafs hefðu séð fyrir sér sem mögulega arftaka Khamenei og klerkastjórnarinnar hefðu fallið í árásunum. Trump hafði áður sagt að 48 háttsettir embættismenn hefðu fallið á fyrstu tveimur dögunum og þá höfðu miðlar í Ísrael það eftir þarlendum embættismönnum að 30 leiðtogar Írana hefðu verið drepnir á fyrstu 30 sekúndum árásanna. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, mun halda blaðamannafund upp úr hádegi í dag að íslenskum tíma. Þá hefur verið greint frá því að hann og utanríkisráðherrann Marco Rubio muni eiga fundi með þingmönnum á morgun.
Íran Ísrael Líbanon Bandaríkin Hernaður Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sjá meira