Gyða semur tónlist fyrir kvikmynd Bad Bunny Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. febrúar 2026 13:28 Gyða mun semja tónlist við kvikmyndina Porto Rico með Bad Bunny í aðalhlutverki. Gyða Valtýsdóttir mun semja tónlistina við kvikmyndina Porto Rico í leikstjórn rapparans René „Residente“ Pérez Joglar. Stórstjarnan Benito Martinez Ocasio, betur þekktur sem Bad Bunny, fer með aðalhlutverkið og munu Viggo Mortensen, Edward Norton og Javier Bardem einnig leika í myndinni.
Kvikmyndin hefur verið í bígerð síðan í byrjun árs 2023 og skrifar René handritið með Alexander Dinelaris Jr. sem er þekktur fyrir samstarf sitt með mexíkóska leikstjóranum Alejandro González Iñárritu. Puerto Rico var fyrirferðarmikið í atriði Bad Bunny á Ofurskálinni.Getty Sögusviðið er pólitískt og tilfinningalegt landslag Puerto Rico á 19. öld og fjallar um frelsishetjuna og útlagann José Maldonado Román sem var kallaður El Aguila Blanca eða Hvíti örninn. Bad Bunny sem spilaði nýlega á Ofurskálinni og er einn vinsælasti tónlistarmaður heims verður hér í sínu fyrsta aðalhlutverki. Hann hefur áður verið í smærri hlutverkum í myndum á borð við Bullet Train (2022) og Caught Stealing (2025). Gyða Valtýsdóttir hefur samið tónlist við myndir á borð við Undir halastjörnu (2018) og Missi (2024) og spilað selló í tónlist fyrir myndir á borð við Nickel Boys (2024) og Knock at the Cabin (2023). Þetta verður þó hennar langstærsta kvikmyndaverkefni hennar til þessa. Gyða Valtýsdóttir hefur komið víða við. Gyða er klassískt menntaður sellóleikari, var einn af stofnemðlimum Múm, hefur fengist við eigin tónsköpun í fjölmörg ár og gefið frá sér fjórar plötur í fullri lengd, starfað með fjölbreyttum hópi tónlistarmanna og samið tónlist fyrir leikhús, sjónvarp og kvikmyndir. Hún hlaut Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 2019 fyrir tónlist sína en í umsögn dómnefndar sagði að sköpunarkraftur hennar brytist út með afgerandi rödd, frumlegum hljóðfæraleik og miklum persónutöfrum.
Tónlist Bíó og sjónvarp Bandaríkin Hollywood Tengdar fréttir „Mikill heiður og stór viðurkenning“ Íslenska tónlistarkonan Gyða Valtýsdóttir hlaut í gær tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs. Hún segir verðlaunin mikinn heiður og kveðst vona að þau kunni að opna fleiri dyr. 30. október 2019 13:45 Mest lesið Gísli Marteinn rís upp í krafti sýklalyfja Lífið Kelly Clarkson segist hvorki hafa fengið sigurféð né bílinn sem henni var lofað Lífið Rapparar slíðruðu sverðin á galaforsýningu Bíó og sjónvarp Teboð með Ryan Gosling og helstu skvísunum í Smárabíói Bíó og sjónvarp Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Lífið Trúlofun slitið, forræðisdeila hafin og lögreglu blandað í málið Lífið Fimmta dóttirin skírð Ozzy Lífið Flughræddur Dóri DNA fékk hrós frá flugfreyju Lífið Andar í burtu kvíðann og drekkur te til að slá á sykurþörfina Lífið Hollt að sinna húsverkum og fá engin hrós Tónlist Fleiri fréttir Teboð með Ryan Gosling og helstu skvísunum í Smárabíói Rapparar slíðruðu sverðin á galaforsýningu Stikla úr Jóhönnu af Örk Gagnrýndi Tarantino fyrir n-orðið og fékk gusuna yfir sig Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Síðasti þáttur Nágranna í loftið á Sýn og aðdáandi syrgir Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Borðtennisspaðar fóru tómhentir af BAFTA-hátíðinni Gyða semur tónlist fyrir kvikmynd Bad Bunny Hryllilega góð stemming á frumsýningu Röskunar Tæklar næst ítalskar kynlífskómedíur Nicolas Cage dularfullur köngulóarspæjari Múmían rís í fjórða sinn Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Meryl Streep verður Joni Mitchell Sjá meira
„Mikill heiður og stór viðurkenning“ Íslenska tónlistarkonan Gyða Valtýsdóttir hlaut í gær tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs. Hún segir verðlaunin mikinn heiður og kveðst vona að þau kunni að opna fleiri dyr. 30. október 2019 13:45