Orri hlýtur mikið lof og skákar Mbappé Aron Guðmundsson skrifar 9. febrúar 2026 20:00 Orri Steinn Óskarsson er mættur aftur inn á fótboltavöllinn eftir krefjandi meiðsli og er strax farinn að skora mikilvæg mörk fyrir Real Sociedad Vísir/Getty Íslenski landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson hlýtur mikið lof í spænska miðlinum Mundo Deportivo í dag. Orri hefur komið inn af krafti í lið Real Sociedad eftir krefjandi meiðsli og í grein miðilsins er sjónum beint að áhugaverðri tölfræði þar sem Íslendingurinn skákar Kylian Mbappé.
Orri er nú kominn á fullt með Real Sociedad og hefur nú skorað í tveimur leikjum í röð þar sem að hann hefur í bæði skiptin komið inn á sem varamaður. Landsliðsfyrirliðinn tryggði Sociedad sigur og sæti í undanúrslitum spænska bikarsins gegn Deportivo Alavés og um nýliðna helgi innsiglaði hann 3-1 sigur síns liðs gegn Elche í spænsku úrvalsdeildinni. Orri er því að minna rækilega á sig í augum Pellegrino Matarazzo sem að tók við stjórnartaumunum hjá Sociedad í desember á síðasta ári og er Bandaríkjamaðurinn því að njóta krafta Orra í fyrsta sinn almennilega sem þjálfari Sociedad. Í grein á spænska miðlinum Mundo Deportivo bendir blaðamaðurinn Unai Valverde á að Orri Steinn sé nú sá leikmaður liðs í spænsku úrvalsdeildinni sem sé með fæstar spilaðar mínútur að meðaltali á milli marka hjá sér í öllum keppnum þessa stundina og skáki þar stórstjörnu Real Madrid, Kylian Mbappé. Að jafnaði líða aðeins 52 spilaðar mínútur á milli marka hjá landsliðsfyrirliðanum á þessu tímabili, 72 spilaðar mínútur hjá Mbappé sem hefur skorað 38 mörk á tímabilinu en mörkin eru, sökum meiðsla Orra, aðeins orðin þrjú talsins hjá Íslendingnum en í níu leikjum sem hann hefur komið við sögu í. Unai segir þessa tölfræði kannski meira áhugaverð frekar en mikilvæg. „En raunveruleikinn er sá að íslenski framherjinn hefur varla spilað á tímabilinu en er samt kominn með þrjú mörk, öll gegn liðum sem spila í efstu deild í krefjandi leikjum og mikilvægum aðstæðum.“ Fyrsta mark Orra á tímabilinu kom gegn Espanyol, markið tryggði Sociedad 2-2 jafntefli eftir að liðið hafði lent tveimur mörkum undir. Fyrr í greininni sögðum við frá hinum tveimur mörkum hans á tímabilinu. „Öll þessi mörk bera þess vitni hversu góð hreyfing hans er fram á við og að hann hafi markanef. Ekki slæmt ef maður hefur í huga meiðslin sem hann hefur þurft að glíma við og hversu mikill óstöðugleiki hefur verið á spilatíma hans sökum þessa.“
Spænski boltinn Landslið karla í fótbolta Fótbolti Íslendingar erlendis Mest lesið Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn „Það var ekkert í heiminum að fara breytast“ Sport Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Real Madrid goðsögn fallin frá Fótbolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ Handbolti Fleiri fréttir „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ „Þeir geta tekið þetta með sér“ Oliver keyptur til KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Gylfi eftirlitsmaður hjá Arsenal í Meistaradeildinni „Svo margir dómar hafa fallið gegn okkur“ Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Isak byrjar hjá Liverpool en Salah er aftur á bekknum Hættur að þjálfa Messi fjórum mánuðum eftir titilinn Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkar nældu í þrjú stig Thelma Karen í byrjunarliðinu „Þau gefa okkur ótrúlega mikið með því að sýna okkur áhuga“ Iraola yfirgefur Bournemouth Vill sjá styttri leiki með engum spjöldum og fleiri mörkum „Trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt“ Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Sjá meira