Orri ná­lægt sigurmarki á 90 sekúndum

Sindri Sverrisson skrifar
Benat Turrientes fagnar markinu sínu fyrir Real Sociedad í Belgíu í kvöld.
Benat Turrientes fagnar markinu sínu fyrir Real Sociedad í Belgíu í kvöld. Getty/Marcel Bonte

Orri Steinn Óskarsson fékk aðeins eina og hálfa mínútu til að láta til sín taka með Real Sociedad í Belgíu í kvöld en var samt nálægt því að skora sigurmark þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Union SG í Evrópudeildinni.

Staðan var markalaus eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik en Beñat Turrientes kom inná hjá Real Sociedad í upphafi seinni hálfleiks og nýtti sér skelfileg mistök til að skora nokkrum sekúndum síðar.

Orri fylgdist enn með af varamannabekknum þegar Sekou Keita náði að jafna fyrir heimamenn á 88. mínútu en fékk svo loks að spreyta sig í uppbótartíma.

Minnstu munaði að Real Sociedad skoraði sigurmark eftir það en eftir marktilraun rúllaði boltinn alveg á marklínuna áður en Massire Sylla náði að renna sér og koma í veg fyrir mark með ævintýralegum hætti. Orri var nálægt því að fá spyrnu Sylla til sín í dauðafæri en náði ekki til boltans.

Real Sociedad er því með aðeins eitt stig eftir fyrstu tvo leiki sína en USG með fjögur stig.

Af öðrum úrslitum fyrri leikja dagsins má nefna að Lyon vann Crystal Palace 3-2 í Frakklandi, Leverkusen vann 4-0 útisigur gegn Lech Poznan og AC Milan sömuleiðis gegn RB Salzburg. Þá vann Sunderland 2-1 útisigur gegn Torreense í Portúgal með sigurmarki Noah Sadiki í uppbótartíma.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira