Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Samúel Karl Ólason skrifar 18. janúar 2026 10:01 Pete Hegseth er varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Hann hefur sett töluverðan fjölda hermanna í Alaska í viðbragðsstöðu, ákveði Bandaríkjaforseti að senda hermenn til Minnesota. AP/Kevin Wolf/ Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur sett 1.500 fallhlífarhermenn í viðbragðsstöðu vegna mögulegra aðgerða í Minnesota. Það er ef Donald Trump, forseti, stendur við hótun sína um að beita gömlum uppreisnarlögum til að siga hernum á mótmælendur í ríkinu en þar hafa umfangsmikil mótmæli gegn starfsemi Innflytjenda- og tollaeftirlits Bandaríkjanna (ICE) átt sér stað.
Mikil óreiða ríkir í Minnesota en þangað hefur ríkisstjórn Trumps sent þúsundir útsendara alríkisins. Þar er þeim ætlað að finna fólk sem dvelur ólöglega í Bandaríkjunum og rannsaka spillingu. Trump hefur einblínt mjög á Minnesota á undanförnum vikum og jafnvel mánuðum og er það að miklu leyti vegna umfangsmikilla fjársvikamála þar. Ítrekað hefur komið til mótmæla í borgum og bæjum Minneapolis á undanförnum vikum og hafa útsendarar heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna beitt táragasi og hvellsprengjum gegn mótmælendum. Tump og embættismenn hans hafa staðhæft að mótmælendur séu „atvinnu-æsingarmenn“ og jafnvel uppreisnarmenn. Hann hótaði á dögunum að beita lögum sem á ensku kallast „Insurrection act“ og voru samin árið 1792, til að senda hermenn til Minnesota og þannig binda fljótt enda á mótmælin. Á föstudaginn virtist hann svo draga aðeins í land og sagði að ekki væri tilefni til að beita uppreisnarlögunum að svo stöddu. Trump bætti við að hann gæti enn notað þau og sent hermenn til Minnesota. Washington Post hefur eftir heimildarmönnum sínum í varnarmálaráðuneytinu að um 1.500 hermenn úr elleftu fallhlífaherdeildinni í Alaska hafi verið settir í viðbragðsstöðu, ef ástandið í Minnesota skyldi versna enn frekar. Hvíta húsið staðfesti að svo væri og sagði það eðlilegt að ráðuneytið væri undirbúið fyrir þær ákvarðanir sem Trump gæti tekið. Að öðru leyti vildu talsmenn Trumps ekki tjá sig um málið. Til átaka kom milli tveggja hópa mótmælenda í Minneapolis í gær. Annar hópurinn mótmælti aðgerðum ríkisstjórnarinnar í ríkinu en hinn hópurinn, sem innihélt meðal annars menn sem Trump náðaði vegna árásarinnar á þinghúsið 6. janúar 2021, voru á svæðinu til að lýsa yfir stuðningi við ríkisstjórnina. Síðarnefndi hópurinn þurfti frá að hverfa eftir að til átaka kom.
Bandaríkin Donald Trump Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira