Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Atli Ísleifsson skrifar 16. janúar 2026 07:10 Síðdegis á morgun er því spáð vaxandi suðaustanátt. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir minnkandi norðlæga átt í dag þar sem búast megi við slyddu eða snjókomu með köflum fyrir norðan og jafnvel rigningu úti við sjóinn.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði þurrt sunnantil og að hiti á landinu verði kringum frostmark. Það mun svo kólna heldur í kvöld. „Í fyrramálið eru horfur á rólegu og þurru veðri á landinu og frost yfirleitt á bilinu 0 til 5 stig. Á morgun er djúpri lægð spáð við suðurodda Grænlands og áhrifa hennar fer að gæta hér á landi þegar kemur fram á daginn. Síðdegis á morgun er því spáð vaxandi suðaustanátt, 10-18 m/s sunnan- og vestanlands undir kvöld með hlýnandi veðri þar og lítilsháttar slyddu eða rigningu. Aðfaranótt sunnudags bætir síðan meira í vind og regnsvæði frá lægðinni kemur inn á landið. Á sunnudag er útlit fyrir stífa suðaustanátt með rigningu, en Norðurland ætti að haldast þurrt,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Breytileg átt 3-8 m/s, þurrt að mestu og frost 0 til 5 stig. Vaxandi suðaustanátt síðdegis, 10-18 sunnan- og vestanlands undir kvöld með hlýnandi veðri þar og dálítilli slyddu eða rigningu. Á sunnudag: Suðaustan 13-20 framan af degi, en 10-18 eftir hádegi, hvassast vestanlands. Þurrt að kalla á Norður- og Norðausturlandi, annars víða rigning. Hiti 2 til 7 stig. Á mánudag: Suðaustlæg eða breytileg átt og rigning eða slydda með köflum, en úrkomulítið norðantil. Heldur kólnandi. Á þriðjudag: Austlæg átt með éljum eða skúrum og hita 0 til 5 stig, en yfirleitt þurrt á norðanverðu landinu með vægu frosti. Á miðvikudag: Austan- og norðaustanátt og rigning eða slydda, en úrkomulítið um landið vestanvert. Hiti 0 til 5 stig. Á fimmtudag: Suðaustlæg eða breytileg átt og rigning eða slydda með köflum, einkum sunnantil. Hiti breytist litið.
Veður Mest lesið Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Fleiri fréttir Suðvestanátt með skúrum í dag Austanátt og úrkomulítið Lægðadrag nálgast landið með rigningu og súld Milt, bjart og hlýtt á Suðvesturlandi í dag Allt að tólf stiga hiti í dag og gæti náð sextán stigum á morgun Stöku skúr síðdegis sunnan- og vestanlands Hæglætisveður eftir annasama kosninganótt Hvasst og blautt víða Milt veður en bætir í úrkomu þegar líður á daginn Útlit fyrir austanátt á kjördag Engin ávísun á sól og blíðu Víða strekkingsvindur og allnokkur úrkoma norðantil Suðvestanátt og væta í flestum landshlutum Skýjað með köflum en styttir svo upp Spáir mildu áfram en útlit fyrir rigningu Víða þurrt en skúrir eða él vestast á landinu Svalri norðlægri átt beint til landsins Áfram él norðan- og austantil en bjart annars staðar Hvít jörð blasti við: „Sálfræðilegt og andlegt gjaldþrot“ Bjart suðvestantil en él norðan- og austanlands Útlit fyrir kalda norðanátt fram eftir viku Áframhaldandi norðanátt og stöku él Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Bjart og fallegt verkalýðsdagsveður Suðvestanátt með skúrum og slydduéljum Skúrir og slydduél en léttskýjað á Norður- og Austurlandi Súld eða rigning og milt veður Allhvöss sunnanátt með rigningu Enn má búast við slyddu eða snjókomu Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Sjá meira