Solskjær hittir forráðamenn Man. Utd Sindri Sverrisson skrifar 9. janúar 2026 23:00 Ole Gunnar Solskjær verður alltaf goðsögn hjá Manchester United eftir feril sinn sem leikmaður. Nú gæti hann verið að taka við liðinu í annað sinn á þjálfaraferlinum. Getty/Rasid Necati Aslim Manchester United færist sífellt nær því að ráða nýjan aðalþjálfara til bráðabirgða eftir að Rúben Amorim var rekinn á mánudaginn. Ole Gunnar Solskjær mun hitta forráðamenn félagsins á morgun og funda með þeim.
Enskir fjölmiðlar, þar á meðal BBC, fjalla um þetta og segja að eigendur United rói að því öllum árum að ráða inn nýjan mann tímanlega fyrir Manchester-slaginn sem fram fer í hádeginu á laugardag eftir rúma viku. Darren Fletcher stýrði United í 2-2 jafnteflinu við Burnley á miðvikudaginn og verður við stjórnvölinn á sunnudag í bikarleiknum gegn Brighton. Að því loknu gæti Solskjær mögulega tekið við en það er spurning hvort fundurinn á morgun ráði einhverju um það. Samkvæmt BBC hafa forráðamenn United þegar fundað með Michael Carrick og samkvæmt heimildamönnum miðilsins innan félagsins er hugmyndin ekki sú að þeir stýri liðinu saman, þó að þeir hafi starfað saman eftir að Jose Mourinho var rekinn frá United árið 2018. Ole Gunnar Solskjær og Michael Carrick íbyggnir á svip á þeim tíma sem þeir stýrðu United eftir brottrekstur Jose Mourinho.Getty/Matthew Peters Þegar Solskjær tók síðast við til bráðabirgða fékk hann langtímasamning í mars 2019, eftir að hafa skilað góðum úrslitum, en var svo rekinn í nóvember 2021. Hann stýrði síðast Besiktas í Tyrklandi en var rekinn þaðan í ágúst eftir töp í umspili um sæti í bæði Evrópudeildinni og svo í Sambandsdeildinni. Fletcher segist ekki vita hvað taki við Fletcher sagði fyrr í dag að ekkert hefði verið rætt um hvað tæki við hjá honum eftir bikarleikinn á sunnudaginn. Hann hefur verið þjálfari U18-liðs United og gæti mögulega snúið aftur í það starf. „Það hefur ekkert verið rætt eða spáð í mína framtíð,“ sagði Fletcher og kvaðst hafa fengið fullt traust til að taka sínar ákvarðanir varðandi leikina tvo sem hann er við stjórnvölinn. BBC segir hann hafa heillað háttsetta menn hjá United með framgöngu sinni í vikunni og því hvernig hann hefur höndlað utanaðkomandi pressuna sem fylgir starfinu.
Enski boltinn Mest lesið Frakkland - Ísland | Hita upp gegn Evrópumeisturunum Handbolti Miðvarðaæði Liverpool Enski boltinn Ljósmyndari pompaði á rassinn eftir öskur Kane Körfubolti Gekk í skrokk á liðsfélaga í miðjum leik Fótbolti Martinelli og hornspyrnur hetjurnar Enski boltinn „Elli“ gerði Alfreð og hans mönnum lífið leitt Handbolti Man. United - Brighton | Tækifæri til að lýsa upp myrkrið í Manchester Enski boltinn Minntust nýlátins félaga og foreldrarnir mættu í klefann Enski boltinn Dagskráin: Arsenal og Man. Utd á ferð og NFL-veislan heldur áfram Sport Þriðji Kaninn mættur til bjargar nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Man. United - Brighton | Tækifæri til að lýsa upp myrkrið í Manchester Martinelli og hornspyrnur hetjurnar Bradley frá út tímabilið | Fer Liverpool á markaðinn? Viðsnúningur hjá Leeds sem fer áfram Miðvarðaæði Liverpool Minntust nýlátins félaga og foreldrarnir mættu í klefann Nýr stjóri Chelsea fékk óskabyrjun Draumur Villa lifir en eru dagar Franks taldir? Draumaprinsinn Benoný sendi aðdáendum kveðju Semenyo skoraði eitt af tíu og Hákon hélt hreinu Newcastle áfram eftir bráðabana og mikla dramatík Varði öll þrjú vítin og Sunderland áfram Stoltur af litla bróður eftir sögulegt afrek Benoný tryggði sigurinn á ögurstundu Utandeildarlið henti meisturunum úr keppni Dyche æfur eftir tapið Utan vallar: Dauði knattspyrnustjórans Solskjær hittir forráðamenn Man. Utd Hollywood-endir þegar Forest féll úr bikarnum Tottenham fær brasilískan bakvörð Dómarar lyfjaprófaðir vegna kókaínneyslu Coote Saka skrifar undir nýjan langtímasamning við Arsenal „Við erum aðhlátursefni,“ segja stuðningsmenn Man Utd Bað Liverpool-leikmanninn afsökunar Semenyo tekur treyjunúmer Yaya Touré Svona var stórleikurinn: Átti Liverpool að fá víti? „Gabi vildi ekki gera honum neitt slæmt“ Sjáðu lætin í lokin: „Þetta var algjörlega til skammar“ Arsenal með sex stiga forskot eftir blautan slag Lið Arsenal og Liverpool: Enginn Ekitike í stórleiknum Sjá meira