Neymar montar sig af einkaflugvél, þyrlu og leðurblökubíl Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. janúar 2026 16:02 Neymar hefur þénað vel á fótboltaferli sínum og hefur efni á því að safna að sér rándýrum farartækjum af öllum mögulegum gerðum. Getty/Marco Buenavista Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar hefur þénað vel á fótboltaferli sínum og hefur efni á því að ferðast á milli staða með glæsibrag.
Neymar hefur ákveðið að gera nýjan samning við Santos út þetta ár og spila áfram í brasilísku deildinni. Hann þurfti að fara í aðgerð eftir síðasta tímabil sem gæti komið í veg fyrir þátttöku hans á HM næsta sumar. „Santos er heimili mitt, það er hér sem ég er hamingjusamur. Það er með Santos sem ég vil elta þá drauma sem ég hef ekki enn náð,“ sagði Neymar í skilaboðum til stuðningsmanna eftir samningsframlenginguna. Það hefur ekki dregið úr löngun hans til að spila meira fyrir land sitt. Neymar er markahæsti leikmaður Brasilíu frá upphafi með 79 mörk í 128 leikjum, en hefur ekki spilað með landsliðinu síðan í október 2023. Landsliðsþjálfarinn Carlo Ancelotti hefur sagt að Neymar verði að vera alveg laus við meiðsli áður en hann getur snúið aftur í landsliðið. Ele fica. pic.twitter.com/ZZIdHmhIr3— Santos FC (@SantosFC) January 6, 2026 Ein nýjasta samfélagsmiðlafærsla Neymars fór í það að monta sig aðeins af þessum glæsilegustu fjaraskjótum sínum. Neymar getur nefnilega valið á milli þess að fara í einkaþotu, leðurblökuþyrlu og leðurblökubíl. Neymar sýnir farartækin sín á samfélagsmiðlum með skilaboðunum: „Draumar geta ræst“. Eftirlíkingin af Leðurblökubílnum, sem tók fimmtíu manna teymi þrjú ár að smíða, var flutt í einkabílskúr Neymars frá Dream Car Museum nálægt Sao Paulo. Þessi sérstaki bíll kostaði meira en 170 milljónir króna þrátt fyrir að vera ekki einu sinni löglegur til aksturs á vegum. Markahæsti landsliðsmaður Brasilíu frá upphafi er mikill aðdáandi Leðurblökumannsins en hann var myndaður á frumsýningu „The Batman“ í París árið 2022 með leikurunum Robert Pattinson og Zoe Kravitz. Ásamt leðurblökuþyrlunni sinni, sem er sögð vera tíu milljóna punda virði, og Dassault Falcon 900LX einkaþotunni sinni – sem er sögð vera 37 milljóna punda virði – hækkar nýi leðurblökubíll Neymars verðmæti þess hluta safnsins í tæplega fimmtíu milljónir punda samtals, sem gera meira en 8,5 milljarða í íslenskum krónum. Þetta er samt aðeins toppurinn á ísjakanum. Neymar státar af ótrúlegu úrvali bíla, þar á meðal Rolls-Royce Ghost að verðmæti þrjú hundruð þúsund pund, 51 milljón króna, sem hann keypti á síðasta ári. View this post on Instagram A post shared by La Gazzetta dello Sport (@gazzettadellosport) Hann hefur einnig sést aka meðal annars Bentley Continental GT, Aston Martin DBX, Lamborghini Huracan, Mercedes G Wagon og Maserati MC12 sem eru allt miklar glæsikerrur. Neymar tryggði sér fjárhagslegt öryggi með því að verða einn af bestu leikmönnum heims hjá Santos, Barcelona og síðan Paris Saint-Germain. En bankareikningur hans tók stökk upp á við eftir að hann skrifaði undir ábatasaman samning við sádiarabíska liðið Al-Hilal árið 2023. Þeir greiddu honum svimandi 2,5 milljónir punda á viku á einu og hálfu ári þar sem hann spilaði aðeins sjö leiki. Það gerir hvorki meira né minna en 193,8 milljónir punda samtals og 38,7 milljónir punda fyrir hvern leik eða 6,6 milljarða króna. Neymar tók á sig gríðarlega launalækkun til að fara aftur til uppeldisfélags síns Santos á síðasta ári en hann státar samt af ótrúlegri eign upp á rúmlega 330 milljónir punda eða 56 milljarða króna. View this post on Instagram A post shared by Neymar Jr (@neymarjr)
Brasilía Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Fleiri fréttir Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti Veik byrjun Vålerenga Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli Sjá meira