Béla Tarr er látinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 6. janúar 2026 14:51 Béla Tarr var einn þekktasti kvikmyndagerðarmaður Ungverja. Getty Ungverski leikstjórinn Béla Tarr, sem er þekktastur fyrir myndirnar Sátántangó og Turin-hestinn, er látinn sjötíu ára að aldri.
Samtök ungverskra kvikmyndagerðarmanna greindu frá því að „eftir löng og erfið veikindi“ hefði Tarr látist í morgun. Fréttamiðillinn AP greinir frá. Tarr fæddist 20. júlí 1955 í Pécs en ólst upp í Búdapest. Hann var af mikilli listafjölskyldu, faðir hans var leikmyndahönnuður í kvikmyndum og leikhúsi, móðir hans vann sem hvíslari í leikhúsi og bróðir hans var listmálari. Tarr fékk 8mm myndavél í fjórtán ára afmælisgjöf frá föður sínum og stofnaði kvikmyndagerðarhóp þegar hann var sextán ára. Tarr ætlaði að læra heimspeki í háskóla en komst ekki að þannig hann vann við ýmiss störf samhliða því að gera heimagerðar kvikmyndir. Langar, hægar og svarthvítar Fyrsta mynd Tarr í fullri lengd var svarthvíta dramað Családi tűzfészek (1979) eða Fjölskylduhreiðrið. Næstu fjóra áratugina leikstýrði Tarr átta kvikmyndum til viðbótar, þar á meðal Sátántangó (1994), Werckmeister harmóniák (2000) og A torinói ló (2011). Tarr var margverðlaunaður fyrir kvikmyndir sínar, þar á meðal á kvikmyndahátíðinni í Cannes, í Berlín og Bergamo og svo var hann gerður að heiðursprófessor við Wuhan-háskóla árið 2017. Tarr bjó yfir afgerandi stíl, gerði jafnan langar svarthvítar myndir sem einkenndust af hægri framvindu, löngum dáleiðandi skotum og takmarkaðri framvindu á kostnað drungalegrar stemmingar. Tarr settist í helgan stein árið 2011, flutti til Sarajevo og stofnaði kvikmyndaskólann film.factory.
Andlát Bíó og sjónvarp Ungverjaland Hollywood Menning Mest lesið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Megas er látinn Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Geirvörtur og latex vekja athygli í París Tíska og hönnun Fleiri fréttir Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira