Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 1. janúar 2026 16:02 Þessir tónlistarmenn stóðu upp úr á Bylgjunni 2025. Vísir/Grafík Tónlistin er gríðarlega mikilvægur hluti af íslensku menningarlífi og síðastliðið ár var mjög gjöfult í íslenskri tónlistarsenu, hvað varðar bæði útgáfu og tónleikahald.
Hljómsveitin Kaleo stóð meðal annars fyrir stórtónleikum í Vaglaskógi, rapparinn Birnir fyllti Laugardalshöll, danssveitin GusGus tryllti landsmenn í höllinni tvisvar, rísandi stjarnan Ásdís kom fram á stórum hátíðum erlendis og Laufey heldur auðvitað áfram að sigra heiminn. Bylgjan afhjúpar hér vinsælustu lög sín frá liðnu ári og fjölbreytt músík íslensk og erlend einkennir listann. Af efstu tuttugu lögunum eru tólf þeirra eftir íslenskt tónlistarfólk. Skemmtilega tvíeykið Jón Jónsson og Una Torfa skipa fimmta sæti listans með lagið Vertu hjá mér. Annað dúó skipar fjórða sætið, þeir Friðrik Dór og Bubbi Morthens með lagið Til hvers að segja satt. Breska goðsögnin Robbie Williams situr í þriðja sæti með lagið Forbidden Road en hann fór á gríðar vinsælt tónleikaferðalag í sumar og sló algjörlega í gegn. Í öðru sæti er svo Alex Warren með ofursmellinn Ordinary sem er lag sem nær vel til allra kynslóða. Íslensku stórstjörnurnar í Kaleo sitja svo öflugir á toppnum með stórsmellinn Bloodline. Hér má sjá efstu tuttugu lög Bylgjulistans fyrir árið 2025: 1 Bloodline - Kaleo 2 Ordinary - Alex Warren 3 Forbidden Road - Robbie Williams 4 Til hvers þá að segja satt? - Friðrik Dór og Bubbi Morthens 5 Vertu hjá mér - Jón Jónsson og Una Torfa 6 Touch Me - Ásdís 7 I Don't Wanna Talk - Daði Freyr 8 Hugmyndir - Friðrik Dór 9 Við eldana - Stuðlabandið 10 Sorry, I'm Here For Someone Else - Benson Boom 11 Þurfum ekki neitt - Una Torfa og Haffi Ceasetone 12 Survive - Lewis Capaldi 13 That's So True - Gracie Abrams 14 Snow White - Laufey 15 APT. - ROSÉ & Bruno Mars 16 Fyrstu laufin - Á móti sól 17 Blágræn - Kristmundur Axel og GDRN 18 undressed - sombr 19 End Of The World - Miley Cyrus 20 Allt í lagi - Páll Óskar og Benni Hemm Hemm
Tónlist Bylgjan Fréttir ársins 2025 Mest lesið Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Nýársbingó Blökastsins á rólegasta degi ársins Lífið Króli og Birta eignuðust lítinn prins Lífið Opnar sig um augnlokaaðgerðina Lífið Þetta fengu ráðherrarnir gefins Lífið Þórdís Elva bað poppstjörnunnar Lífið Maður geti þurft að díla við „konu sem er á túr“ og í vondu skapi Lífið Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Tónlist Fékk útskýringu frá ChatGPT eftir áratugaleit að svörum Lífið Í leyfi frá skjánum til að styðja eiginmanninn í veikindum Lífið Fleiri fréttir Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Heitustu lögin á FM árið 2025 Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Prikið vekur athygli út fyrir landsteinana Abba skilar 350 milljörðum í kassann Ísraelar fá að vera með í Eurovision Halda aðra tónleika á Íslandi fyrir þá sem misstu af Allt alltaf alls staðar í allra besta lagi Miley Cyrus trúlofuð Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Sjá meira