Leik lokið: Kefla­vík - Njarð­vík 1-2 | Njarð­vík leiðir Suðurnesjaslag en missir Oumar út

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Oumar Diouck fékk að líta rautt spjald og missir af seinni leik einvígisins.
Oumar Diouck fékk að líta rautt spjald og missir af seinni leik einvígisins.

Keflavík lenti tveimur mörkum undir en tókst að minnka muninn gegn Njarðvík í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaeinvígi umspilsins um sæti í Bestu deildinni.

Njarðvík leiðir því einvígið 2-1 en verður án Omars Diouck í næsta leik því hann fékk sitt seinna gula spjald í uppbótartímanum fyrir að sparka boltanum burt eftir flaut.

Omar skoraði fyrra mark Njarðvíkur í leiknum, Tómas Bjarki Jónsson tvöfaldaði síðan forystuna úr vítaspyrnu áður en Stefan Ljubicic minnkaði muninn fyrir Keflavík.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira