Fótbolti

Að­eins átta hundruð manns sjá Ís­land mæta Ísrael

Sindri Sverrisson skrifar
Íslendingar sóttu stig til Haifa sumarið 2022, með 2-2 jafntefli við Ísrael í Þjóðadeildinni. Nú verður hins vegar leikið í Ungverjalandi.
Íslendingar sóttu stig til Haifa sumarið 2022, með 2-2 jafntefli við Ísrael í Þjóðadeildinni. Nú verður hins vegar leikið í Ungverjalandi. Getty/Ahmad Mora

Segja má að hvorugt liðanna verði á heimavelli á morgun, þegar Ísland mætir Ísrael í undanúrslitum umspilsins mikilvæga um sæti á EM karla í fótbolta.

Þessi staðreynd hefur sín áhrif á aðsókn á leiknum en hann fer fram í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, vegna stríðsátakanna á Gasa. 

Ísraelar höfðu unnið sér inn heimaleikinn í þessu einvígi, með betri árangri í Þjóðadeildinni, en varð ekki að ósk sinni um að leikurinn færi fram í Ísrael. Í stað þess að mörg þúsund Ísraelar hvetji lið sitt til að komast nær fyrsta Evrópumóti sínu verða því innan við þúsund manns á leiknum.

Samkvæmt upplýsingum Vísis seldu Ísraelar um 600 miða á leikinn og alls er búist við því að um 800 áhorfendur verði á honum. Leikið er á Szusza Ferenc Stadion, heimavelli Újpest, sem samkvæmt Wikipedia tekur 12.670 manns í sæti.

Ómar Smárason, samskiptastjóri KSÍ, segir við Vísi að búist sé við á bilinu 50-100 Íslendingum í stúkunni en erfitt sé að segja nákvæmlega til um það.

Leikurinn verður að sjálfsögðu einnig sýndur í sjónvarpi og hér á Íslandi verður hægt að horfa á hann á Stöð 2 Sport. Hann hefst klukkan 19:45 annað kvöld en bein útsending hefst klukkan 19:10.


Leikur Ísraels og Íslands verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport fimmtudaginn 21. mars 2024. Leikurinn hefst klukkan 19.45 en upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 19.10.


Tengdar fréttir

Bein útsending: Fundur KSÍ fyrir EM-umspilið

Åge Hareide landsliðsþjálfari og fyrirliðinn Jóhann Berg Guðmundsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í Búdapest, daginn fyrir leik Íslands við Ísrael í umspilinu um sæti á EM í fótbolta. Fundurinn var í beinni útsendingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×