Fótbolti

Sjáðu mörkin úr sigrinum á Hondrúas

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Brynjólfur Andersen Willumsson opnaði markareikning sinn með íslenska landsliðinu í nótt.
Brynjólfur Andersen Willumsson opnaði markareikning sinn með íslenska landsliðinu í nótt. vísir/hulda margrét

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta vann 2-0 sigur á Hondúras í seinni vináttulandsleik sínum í Flórída í Bandaríkjunum.

Bæði mörk leiksins komu í seinni hálfleik. Þau skoruðu Andri Lucas Guðjohnsen og Brynjólfur Andersen Willumsson.

Í upphafi seinni hálfleiks fiskaði Kolbeinn Þórðarson vítaspyrnu sem Andri Lucas skoraði úr af öryggi, sitt sjötta mark í tuttugu A-landsleikjum.

Á 58. mínútu jók Brynjólfur muninn í 2-0 með laglegu marki eftir flottan snúning og sendingu Jasons Daða Svanþórssonar. Þetta var fyrsta landsliðsmark Brynjólfs. Fleiri urðu mörkin í leiknum hins vegar ekki og Ísland fagnaði 2-0 sigri.

Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Ísland 2-0 Hondúras

Næsti leikur íslands er gegn Ísrael í EM-umspili í mars. Sigurvegarinn úr þeim leik mætir annað hvort Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti í lokakeppni EM 2024.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×