Menning

Frasa­bókin er svarti foli þessarar ver­tíðar

Jakob Bjarnar skrifar
Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson eru þeir sem helst hafa komið á óvart með sinni Frasabók.
Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson eru þeir sem helst hafa komið á óvart með sinni Frasabók. vísir/bjarki

Ef pakkinn þinn líkist bók þá eru mestar líkur á að í honum leynist Arnaldur, Yrsa eða Ólafur Jóhann. Þessi þrjú eiga mest seldu skáldverk ársins samkvæmt Bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda.

Þetta segir Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda en Vísir birtir nú fjórða metsölulista ársins og kannski þann sem mestu máli skiptir.

Vandið valið

Nú er baráttan um athygli bókakaupenda að harðna og taugar höfunda og útgefenda þandar. En Bryndís setur sig í heimspekilegar stellingar þegar hún rýnir í listann eins og hann liggur fyrir.

„Ég veit ekki til þess að gerðar hafi verið rannsóknir á vægi metsölulista á kauphegðun. Við lifum auðvitað á algóritmiskum tímum þar sem þjónusta gengur út á að koma söluvöru með sem allra fljótlegasta hætti í hendur viðskiptavina svo það eina sem þeir þurfi að hugsa út í sé að ganga frá greiðslu,“ segir Bryndís. 

Hún er reyndar óstöðvandi og það er erfitt að skauta hjá því að í orðum hennar gæti örlítillar bölsýni:

„Mannleg samskipti eru hverfandi og vöruuppstillingar, hvort sem er í verslunum eða á vefsíðum miða allar í þessa átt. En þeir eru sem betur fer enn til, þessir eftirsóttu ástvinir sem snúa á kerfið, dvelja drjúga stund við bókaborðin, laumast til að lesa svolítið í stökum bókum, jafnvel heilu kaflana og leggja sig verulega fram við að velja bók sem telja megi að muni geðjast hinum heppna lesanda en koma honum þó jafnframt á óvart og víkka þannig sjóndeildahring viðkomandi.“

Aldrei meira gefið út

En hvað er svo títt? Frasabókin og Bílar í lífi þjóðar teljast til hinna svörtu fola í ár, að sögn Bryndísar; það eru þær bækur sem helst koma á óvart á bóksölulistanum. En þær ná þó ekki að ógna þrítugustu Útkallsbók Óttars Sveinssonar, sem líkt og svo ótal oft áður er mest selda bókin í flokki fræðirita og frásagna.

Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda setur sig í heimspekilegar stellingar og spáir í spilin. Nú er svo stutt til jóla að búast má við því að þessir listar sem hér birtast kunni að hafa nokkur áhrif á hvernig fer þegar upp verður staðið.vísir/vilhelm

„Stefán Máni, Eva Björg, Vilborg Davíðsdóttir og Eiríkur Örn eru öll að stækka lesendahóp sinn umtalsvert þetta árið en hafa ber í huga að útgáfa íslenskra skáldverka var með fjörugasta móti, líklega milli 80 og 90 verk þegar allt er talið, svo samkeppnin hefur verið hörð. Að auki eru svo að koma út margar skotheldar þýðingar sem enginn alvöru bókaunnandi ætti að láta fram hjá sér fara.“

Skorar á fyrirtæki og jólasveina

Bryndís lýkur orðum sínum á því að skora á íslensk fyrirtæki, að bæta nú bókum við jólapakka starfsfólks. 

„Það er góð þyngd í þeim, þær pakkast vel og svo styður lesturinn auðvitað við framgang og þróun íslenskrar tungu. Þá er mjög mikilvægt að hafa í huga að gefa ekki öllum sömu bókina, gera frekar svolítið lottó úr þessu þannig að einhver spenna verði við tréið á sunnudaginn. Skáldverk, þýðingar, fræðibækur, ljóð, matreiðslubækur, fjölskyldubækur, tarot lestur og ævisögur.“

Bryndís vill bæta við þessa áskorun sína jólasveinum, að þeir verði djarfhuga í vali sínu. „Starfsfólk getur svo skipst á bókunum og rætt í kaffitímum langt fram á næsta ár. Já og svo það sé sagt, það er ekkert að því að gefa körlum bækur eftir konur.“


20 mest seldu bækurnar 11.-17. desember

  1. Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
  2. Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson
  3. Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
  4. Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson
  5. Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson
  6. Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  7. Hvítalogn - Ragnar Jónasson
  8. Borg hinna dauðu - Stefán Máni
  9. Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
  10. Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  11. Heim fyrir myrkur - Eva Björg Ægisdóttir
  12. Bílar í lífi þjóðar - Örn Sigurðsson
  13. Bannað að drepa - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
  14. Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. A. Aleqsanian og E. Nazaryan
  15. Aðeins fleiri Pabbabrandarar - Þorkell Guðmundsson
  16. Blæja (Bluey) - Góða nótt leðurblaka - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  17. Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson
  18. Gleðilega jólahátið, þrautabók – Unga ástin mín
  19. Land næturinnar - Vilborg Davíðsdóttir
  20. Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir

Skáldverk

  1. Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
  2. Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson
  4. Hvítalogn - Ragnar Jónasson
  5. Borg hinna dauðu - Stefán Máni
  6. Heim fyrir myrkur - Eva Björg Ægisdóttir
  7. Land næturinnar - Vilborg Davíðsdóttir
  8. Náttúrulögmálin - Eiríkur Örn Norðdahl
  9. DJ Bambi - Auður Ava Ólafsdóttir
  10. Valskan - Nanna Rögnvaldardóttir
  11. Deus - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
  12. Duft - Söfnuður fallega fólksins - Bergþóra Snæbjörnsdóttir
  13. Ból - Steinunn Sigurðardóttir
  14. -15. Dauðadjúp sprunga - Lilja Sigurðardóttir
  15. -15. Maðurinn frá São Paulo - Skúli Sigurðsson
  16. Jólabókaklúbburinn - Sarah Morgan, þýð. Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir
  17. Miðnætti í Litlu jólabókabúðinni - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
  18. Til hamingju með að vera mannleg - Sigríður Soffía Níelsdóttir
  19. Heimsmeistari - Einar Kárason
  20. Kjöt - Bragi Páll Sigurðarson

Fræðirit, handbækur og ævisögur

  1. Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson
  2. Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
  3. Bílar í lífi þjóðar - Örn Sigurðsson
  4. Aðeins fleiri Pabbabrandarar - Þorkell Guðmundsson
  5. Afi minn stríðsfanginn - Elín Hirst
  6. Forystufé og fólkið í landinu - Guðjón Ragnar Jónasson og Daníel Hansen
  7. Í eldhúsinu með Hrefnu Sætran - Hrefna Sætran
  8. Ullaræði: Villahullu - Heli Nikula, þýð. Guðrún Hannele Henttinen
  9. Kynlegt stríð - Ástandið í nýju ljósi - Bára Baldursdóttir
  10. Morðin í Dillonshúsi - Sigríður Dúa Goldsworthy
  11. Björn Pálsson: Flugmaður og þjóðsagnapersóna - Jóhannes Tómasson
  12. Hekla - Elsa Harðardóttir
  13. Heiðarprjón - Lene Holme Samsøe, myndh. K. Rohrberg, þýð. Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórsdóttir
  14. Hetjudáðir á hafi úti - Steinar J. Lúðvíksson
  15. Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg - Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
  16. Jökulsævintýrið - Jakob F. Ásgeirsson
  17. Gangandi bassi Endurminningar djassmanns - Tómas R. Einarsson
  18. Hugrekki til að hafa áhrif - Halla Tómasdóttir
  19. Helvítis matreiðslubókin - Ívar Örn Hansen og Þórey Hafliðadóttir
  20. Krossgátur Morgunblaðið bók 14 - Edda útgáfa

Barna- og ungmennabækur

  1. Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson
  2. Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  3. Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  4. Bannað að drepa - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
  5. Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. A. Aleqsanian og E. Nazaryan
  6. Blæja (Bluey) - Góða nótt leðurblaka - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  7. Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson
  8. Gleðilega jólahátið, þrautabók - Unga ástin mín
  9. Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir
  10. Jólasyrpa 2023 - Walt Disney
  11. Dagbók Kidda klaufa 17 - Rokkarinn reddar öllu - Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson
  12. Fótboltastjörnur - Messi er frábær! - Simon Mugford, þýð. Guðni Kolbeinsson
  13. Blæja (Bluey) -Límum þetta! - Límmiðabók
  14. Risaeðlugengið 5 - Sæskrímslið - Lars Mæhle, myndh. Lars Rudebjer
  15. Fótboltaspurningar 2023 - Guðjón Ingi Eiríksson
  16. Eldur - Björk Jakobsdóttir, myndh. Freydís Kristjánsdóttir
  17. Verstu gæludýr í heimi - David Walliams
  18. Skólaslit 2 - Dauð viðvörun - Ævar Þór Benediktsson, myndh. Ari H.G. Yates
  19. Snúum og leikum, teningaspil - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  20. Fótboltastjörnur - Mbappé er frábær! - Simon Mugford, þýð. Guðni Kolbeinsson

Uppsafnaður listi frá áramótum

  1. Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
  2. Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson
  4. Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  5. Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  6. Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson
  7. Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson
  8. Hvítalogn - Ragnar Jónasson
  9. Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
  10. Borg hinna dauðu - Stefán Máni
  11. Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. A. Aleqsanian og E. Nazaryan
  12. Líkaminn geymir allt: hugur, heili, líkami og batinn eftir á - Bessel van der Kolk, þýð. Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir og Arnþór Jónsson
  13. Bílar í lífi þjóðar - Örn Sigurðsson
  14. Bannað að drepa - Gunnar Helgason
  15. Hugrekki til að hafa áhrif - Halla Tómasdóttir
  16. Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir
  17. Heim fyrir myrkur - Eva Björg Ægisdóttir
  18. Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson
  19. Blóðsykursbyltingin - Jessie Inchauspé, þýð. Nanna Rögnvaldardóttir
  20. Blæja (Bluey) - Góða nótt leðurblaka - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson

Tengdar fréttir

Orri óstöðvandi sækir að kónginum

Nýr bóksölulisti lítur dagsins ljós. Menn eru að koma sér fyrir. Eins og oft áður er Arnaldur Indriðason efstur, bæði í sölu þeirrar viku sem listinn tekur til sem og á uppsöfnuðum lista frá áramótum. En rithöfundar eru að koma sér fyrir á listum og skapa sér vígstöðu.

Arnaldur á toppnum og fátt fær því breytt

Þá lítur fyrsti jóla-bóksölulisti Félags íslenskra bókaútgefenda ljós. Listi vikunnar nær yfir tímabilið 1.-26. nóvember en fram að jólum verður listinn svo tekinn saman vikulega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×