Fótbolti

Þórir Jóhann lánaður til Þýska­lands

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þórir Jóhann er mættur til Þýskalands.
Þórir Jóhann er mættur til Þýskalands. Twitter@EintrachtBSNews

Knattspyrnumaðurinn Þórir Jóhann Helgason hefur verið lánaður frá ítalska úrvalsdeildarliðinu Lecce til Eintracht Braunschweig í þýsku B-deildinni.

Hinn 22 ára gamli Þórir Jóhann hefur ekki verið í stóru hlutverki hjá Lecce í Serie A en liðið lék í B-deildinni á Ítalíu þegar hann gekk í raðir þess árið 2021. Alls hefur hann spilað 41 leik fyrir Lecce en er nú mættur til Þýskalands.

Þórir Jóhann er annar íslenski miðjumaðurinn sem er lánaður í þýsku B-deildina á stuttum tíma en Ísak Bergmann Jóhannesson gekk nýverið í raðir Fortuna Dusseldorf.

Þórir Jóhann á að baki 16 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og hefur skorað í þeim tvö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×