Fótbolti

Benzema mætti til leiks og Mitrovic skoraði í fyrsta leik

Smári Jökull Jónsson skrifar
Karim Benzema skoraði í kvöld.
Karim Benzema skoraði í kvöld. Vísir/Getty

Karim Benzema var í liði Al Ittihad sem vann öruggan sigur í sádiarabísku deildinni í knattspyrnu í kvöld. Aleksandar Mitrovic var á skotskónum fyrir Al-Hilal í sínum fyrsta leik fyrir félagið.

Karim Benzema var í byrjunarliði Al-Ittihad gegn Al-Riyadh í kvöld. Sögusagnir hafa verið uppi um ósætti milli Benzema og þjálfarans Nuno Espirito Santo en Benzema lét þær sögur sem vind um eyru þjóta og skoraði fyrsta mark liðsins í 4-0 sigri.

Al-Ittihad er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir í Sádi Arabíu.

Lærisveinar Steven Gerrard í Al-Ettifaq töpuðu sínum fyrstu stigum þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Khaleej Club á heimavelli. Victor Dos Santos skoraði jöfnunarmark fyrir Al-Ettifaq í síðari hálfleik en Jordan Henderson lék allan leikinn fyrir liðið í kvöld.

Aleksandar Mitrovic var ekki lengi að setja mark sitt á lið Al-Hilal því hann skoraði fyrsta mark liðsins á 42. mínútu leiksins gegn Al-Raed. Al-Hilal vann 4-0 sigur og fékk Sergej Milinkovic-Savic rautt spjald í liði Al-Hilal í síðari hálfleiknum.

Þá tryggði Franck Kessie Al-Ahli sætan 1-0 sigur á Al-Okhdood með marki á fimmtu mínútu uppbótartíma. Roberto Firmino og Riyad Mahrez voru báðir í byrjunarliði Al-Ahli sem er með fullt hús stiga líkt og Al-Ittihad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×