Fótbolti

Patrik í markinu þegar Viking vann toppslaginn

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Patrik Sigurður Gunnarsson.
Patrik Sigurður Gunnarsson. Twitter@vikingfotball

Tvö efstu lið norsku úrvalsdeildarinnar mættust í kvöld þegar Viking fékk Bodo/Glimt í heimsókn í Stavanger.

Patrik Sigurður Gunnarsson var á sínum stað á milli stanganna hjá Viking og byrjuðu heimamenn leikinn frábærlega þar sem staðan var orðin 2-0 fyrir Viking eftir átta mínútna leik.

Gestirnir frá Bodo náðu að rétta sinn hlut fyrir leikhlé og var staðan í hálfleik 2-2.

Zlatko Tripic skoraði það sem reyndist sigurmark leiksins fyrir Viking á 75.mínútu og tryggði heimamönnum mikilvægan sigur.

Birkir Bjarnason kom inn af bekknum hjá Viking á 85.mínútu.

Viking er þremur stigum á eftir toppliði Bodo/Glimt en eiga leik til góða þegar deildarkeppnin í Noregi er rétt rúmlega hálfnuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×