Innlent

Leitað að teikningu Kjarvals vegna smíði brúar yfir Skaftá

Kristján Már Unnarsson skrifar
Fyrirhuguð göngubrú á að tengja Kirkjubæjarklaustur og gestastofuna, sem er í smíðum neðst til hægri.
Fyrirhuguð göngubrú á að tengja Kirkjubæjarklaustur og gestastofuna, sem er í smíðum neðst til hægri. Einar Árnason

Leit stendur yfir að blýantsteikningu eftir Jóhannes Kjarval af brú sem listmálarann dreymdi um að yrði lögð yfir Skaftá hjá Kirkjubæjarklaustri. Menn vonast til að hugmynd Kjarvals geti orðið fyrirmynd að göngubrú sem myndi tengja nýja gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs við Klaustur.

„Þetta er ævintýrið okkar hérna í Skaftárhreppi,“ sagði þáverandi oddviti um gestastofuna í beinni útsendingu frá Klaustri fyrir þremur árum. Núna er það að raungerast. Ný gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs er að verða tilbúin, eins og sjá mátti í frétt Stöðvar 2.

Benedikt Traustason, sérfræðingur hjá Vatnajökulsþjóðgarði, segir frá nýju gestastofunni.Einar Árnason

„Við vonumst til þess að fá húsnæðið afhent í júlí og að við getum síðan flutt inn í ágúst og byrjað að taka á móti gestum,“ segir Benedikt Traustason, sérfræðingur hjá Vatnajökulsþjóðgarði.

Húsið rís á suðurbakka Skaftár á þeim stað sem Jóhannes Kjarval listmálari taldi bjóða upp á besta útsýnið til Klausturs.

„Það verður útsýnispallur á nýju gestastofunni þar sem fólk getur séð yfir Systrafoss, Systrastapa og Öræfajökul, sýnina yfir í Vatnajökulsþjóðgarð,“ segir Benedikt.

Gönguleið verður upp á útsýnispall á þaki gestastofunnar.Arkís arkitektar

Gestastofuna teiknaði Birgir Teitsson hjá Arkís arkitektum.

„Þetta er frábær arkitektúr að mínu mati. Staðsetningin var valin vegna þess að Magnús í Hæðargarði gaf okkur þessa rausnarlegu gjöf, sem er landið hér.

Til vesturs sér til Systrastapa. Gestastofan fyrir miðri mynd.Einar Árnason

Og það sem í raun varð ofan á við staðarvalið er að hér á að byggja göngubrú frá gestastofunni yfir á Kirkjubæjarklaustur,“ segir Benedikt.

Vegna brúarsmíðinnar stendur núna yfir leit að blýantsteikningu sem Jóhannes Kjarval rissaði upp af brú á þessum stað en Lilja Magnúsdóttir í Kirkjubæ fer fyrir leitinni. Kjarval var fæddur í sveitinni árið 1885, á bænum Efri Ey í Meðallandi, en hann lést árið 1972.

Lilja Magnúsdóttir fer fyrir leitinni að blýantsteikningu Jóhannesar Kjarvals af brú sem hann dreymdi um að yrði reist yfir Skaftá á móts við Systrafoss.Einar Árnason

Lilja segir að teikningin hafi lengi verið uppi á vegg í kompu við hlið gamla sláturhússins á Klaustri. Meðan teikningin finnst ekki hafa eldri íbúar sem muna eftir henni verið beðnir um að rissa upp brú Kjarvals eftir mynni í von um hún geti orðið fyrirmynd.

Gestastofan verður vinnustaður fimm til sex starfsmanna Vatnajökulsþjóðgarðs en Benedikt undirbýr sýningarhlutann.

Til austurs sér til Lómagnúps og Öræfajökuls.Einar Árnason

„Við höfum verið í bráðabirgðahúsnæði eiginlega frá því þjóðgarðurinn var stofnaður, í fimmtán ár, og við getum bara ekki beðið með að flytja inn í nýju gestastofuna.

Markmið okkar er að taka á móti þeim gestum sem eiga leið um Skaftárhrepp, reyna að hægja á þeim. Fá þá til að skoða svæðin hér í kring.

Þannig eru þeir líklegri til þess að nýta sér þá þjónustu sem hér er í boði,“ segir sérfræðingur Vatnajökulsþjóðgarðs.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:

Hér má sjá útsendingu Stöðvar 2 frá bökkum Skaftár sumarið 2020:


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×