Fótbolti

Fé­laga­skipta­gluggi Eng­lands opnaður: Stór nöfn gætu verið á far­alds­fæti

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Einn af þessum þremur hefur nú þegar skipt um lið.
Einn af þessum þremur hefur nú þegar skipt um lið. EPA-EFE/VINCE MIGNOT/FRANCK FIFE/FRIEDEMANN VOGEL

Félagaskiptagluggi ensku úrvalsdeilda karla og kvenna í knattspyrnu hefur verið opnaður og má búast við flugeldum. Fjöldi stórra nafna mun skipta um lið í sumar fyrir upphæðir með svo mörgum núllum að við almúginn skiljum þær varla. Í tilefni þess tók Sky Sports saman hvaða 50 leikmenn er vert að fylgjast sérstaklega með í sumar.

Hér að neðan má sjá helstu nöfnin á listanum, hvar leikmennirnir spila í dag og hvert þeir gætu verið að fara.

Listinn var skrifaður að morgni 14. júní og nú þegar hefur Jude Bellingham skipt um lið. Hann er genginn til liðs við Real Madríd.

Kylian Mbappé, 24 ára

Annað sumarið í röð er Mappé í haltu mér, slepptu mér leik við París Saint-Germain. Hann segist vilja spila fyrir félagið þangað til samningur hans rennur út næsta sumar en PSG er ekki tilbúið að leyfa honum að fara frítt. Annað hvort verður hann seldur í sumar eða hann fær enn eina launahækkunina.

Harry Kane, 29 ára

Skoraði 30 mörk í ensku úrvalsdeildinni fyrir frekar slakt lið Tottenham Hotspurs. Vitað er af áhuga Manchester United, Real Madríd og Bayern München. Talið ólíklegt að Tottenham vilji selja innan Englands en að sama skapi ekki talið líklegt að Kane vilji fara erlendis.

Jude Bellingham, 19 ára

Miðjumaðurinn virðist svo gott sem kominn til Real Madríd en er sem stendur leikmaður Borussia Dortmund. Er genginn í raðir Real Madríd frá og með deginum í dag.

Lionel Messi, 35 ára

Framtíð eins besta fótboltamanns í heimi er ráðin. Hann mun yfirgefa París og halda til Miami þar sem hann mun gera sitt besta til að lyfta MLS-deildinni upp á hærra plan.

İlkay Gündoğan, 32 ára

Lykilmaður í þrennuliði Manchester City en er að renna út á samning og virðist ekki sem hann verði áfram í Manchester. Hefur verið orðaður við Barcelona, Arsenal og fjölda annarra liða.

Mateo Kovačić, 29 ára

Hefur spilað með Chelsea undanfarin fimm ár en virðist eiga að fylla skarð Gündoğan hjá Man City. Lundúnaliðið þarf að selja leikmenn og því talið líklegt að Króatinn fái að færa sig til Manchester.

Mason Mount, 24 ára

Annar miðjumaður sem er orðaður frá Chelsea. Á ár eftir af samningi sínum en vill losna í sumar. Hefur náð samkomulagi við Manchester United samkvæmt fréttamiðlum erlendis en Man United á enn eftir að semja við Chelsea.

Alphonso Davies, 22 ára

Hinn öskufljóti Davies er leikmaður Bayern München en virðist á förum frá félaginu. Hefur verið orðaður við Real Madríd.

Declan Rice, 24 ára

Miðjumaður West Ham United og enska landsliðsins. Vill komast í lið sem berst um stærri titla en Sambandsdeild Evrópu. Talinn hafa náð samkomulagi við Arsenal en einnig verið orðaður við fjölda annarra liða.

Ona Batlle, 24 ára

Hægri bakvörður Manchester United og einn allra besti leikmaður úrvalsdeildar kvenna á síðustu leiktíð. Hefur ekki enn samþykkt nýjan samning í Manchester og gæti verið á leið til uppeldisfélagsins Barcelona.

João Cancelo, 29 ára

Hóf síðasta tímabil hjá Manchester City en var lánaður til Bayern München á þessu ári. Bæjarar vilja ekki kaupa hann og Pep Guardiola vill ekki halda honum hjá Man City. Hefur verið orðaður við Arsenal.

Harry Maguire, 30 ára

Tími fyrirliða Manchester United virðist liðinn. Hann er fjórði í goggunarröðinni og félagið vill selja hann meðan enn er hægt að fá eitthvað fyrir hann. Tottenham Hotspur og West Ham United hafa sýnt áhuga.

Kalvin Phillips, 27 ára

Keyptur til Man City á fúlgur fjár síðasta sumar. Hefur engan veginn staðist væntingar og talið að Guardiola sé tilbúinn að selja hann nú þegar.

Alessia Russo, 24 ára

Manchester United neitaði tilboði í Russo í janúar sem hefði gert hana að dýrasta leikmanni í sögu kvennaboltans. Hún verður hins vegar samningslaus í sumar og hefur ekki enn samið við Man United á nýjan leik. Eftirsótt af flestöllum stærstu liðum heims.

Pierre-Emerick Aubameyang, 33 ára

Er í dag leikmaður Chelsea en hefur ekki átt sjö dagana sæla. Er ekki hluti af framtíðarplönum liðsins og gæti snúið aftur til Barcelona þar sem hann lék um stund á síðasta ári. Einnig orðaður við Sádi-Arabíu.

Mary Earps, 30 ára

Besti markvörður úrvalsdeildar kvenna á Englandi á liðnu tímabili og var sömuleiðis valin besti markvörður heims. Þó hún sé samningsbundin Manchester United í ár til viðbótar er talið að fjöldi liða um allan heim vilji fá landsliðsmarkvörð Englands í sínar raðir.

Aðrir leikmenn á listanum

  • Folarin Balogun - 21 árs, leikmaður Arsenal í dag
  • Harvey Barnes - 25 ára, Leicester City
  • Moises Caicedo - 21 árs, Brighton & Hove Albion
  • Philippe Coutinho - 31 árs, Aston Villa
  • David De Gea - 32 ára, Manchester United/samningslaus 1. júlí
  • Moussa Diaby - 23 ára, Bayer Leverkusen
  • Roberto Firmino - 31 árs, Liverpool/samningslaus 1. júlí
  • Grace Fisk - 25 ára, West Ham United/samningslaus 1. júlí
  • Kyogo Furuhashi - 28 ára, Celtic
  • Jack Harrisson - 26 ára, Leeds United
  • Reo Hatate - 25 ára, Celtic
  • N‘Golo Kante - 32 ára, Chelsea/samningslaus 1. júlí
  • Kerolin - 23 ára, North Carolina Courage
  • Hannah Hampton - 22 ára, Aston Villa/samningslaus 1. júlí
  • Rasmus Höjlund - 20 ára, Atalanta
  • Roméo Lavia - 19 ára, Southampton
  • Hugo Lloris - 36 ára, Tottenham Hotspur
  • James Maddison - 26 ára, Leicester City
  • Sadio Mané - 31 árs, Bayern München
  • Anthony Martial - 27 ára, Manchester United
  • Joël Matip - 31 árs, Liverpool
  • Katie McCabe - 27 ára, Arsenal
  • Neymar - 31 árs, París Saint-Germain
  • Alex Oxlade-Chamberlain, 29 ára, Liverpool/samningslaus 1. júlí
  • João Palhinha - 27 ára, Fulham
  • Anna Patten - 24 ára, Arsenal
  • Christian Pulisic - 24 ára, Chelsea
  • David Raya - 27 ára, Brentford
  • Emile Smith Rowe - 22 ára, Arsenal
  • Kieran Tierney - 26 ára, Arsenal
  • Manuel Ugarte - 22 ára, Sporting
  • James Ward-Prowse - 28 ára, Southampton
  • Granit Xhaka - 30 ára, Arsenal
  • Wilf Zaha - 30 ára, Crystal Palace/samningslaus 1. júlí
  • Hakim Ziyech - 30 ára, Chelsea

Sky Sports tók einnig saman 20 leikmenn sem renna út á samning í sumar. Þar eru nokkur af sömu nöfnunum hér að ofan en einnig nokkur ný.


Tengdar fréttir

Tuchel vill selja Mané og Sané

Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Bayern München, ætlar að hrista verulega upp í leikmannahópi Þýskalandsmeistaranna í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×