Fótbolti

KSÍ tjáir sig ekki um mál Gylfa strax

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson á leik Íslands og ítalíu á EM kvenna á Englandi síðasta sumar.
Gylfi Þór Sigurðsson á leik Íslands og ítalíu á EM kvenna á Englandi síðasta sumar. vísir/vilhelm

KSÍ ætlar ekki að tjá sig um mál Gylfa Þórs Sigurðssonar að svo stöddu. Í dag var greint frá því að hann yrði ekki ákærður vegna meintra brota gegn ólögráða einstaklingi.

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, sagði í samtali við fréttastofu að hún sé búin að frétta af vendingum í máli Gylfa líkt og aðrir, en að hún hefði ekki náð að kynna sér málið í þaula og vildi því ekki tjá sig um svo viðkvæmt mál að svo stöddu.

Í yfirlýsingu frá lögreglunni í Manchester sem Vísir hefur undir höndum segir: 

Hinn 33 ára maður sem handtekinn var í tengslum við rannsókn sem hófst í júní 2021 er laus allra mála. Rannsóknarteymið og saksóknarembætti krúnunnar hafa unnið saman og komist að þeirri niðurstöðu að þau sönnunargögn sem liggi fyrir á þessum tímapunkti nái ekki þeim þröskuldi sem fellur að reglum saksóknara krúnunnar.

Gylfi var handtekinn á heimili sínu í Manchester 16. júlí 2021. Hann var þá leikmaður Everton og breskir fjölmiðlar greindu nokkrum dögum síðar frá því að 31 árs gamall leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar hefði verið handtekinn, grunaður um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi, og síðar sleppt gegn tryggingu.

Gylfi var nafngreindur í íslenskum fjölmiðlum 20. júlí 2021. Degi síðar birtust fréttir þess efnis að hann harðneitaði þeim ásökunum sem bornar voru á hann. Fjórtánda ágúst sama ár var greint frá því að Gylfi yrði áfram laus gegn tryggingu og hann settur í farbann. Það var ítrekað framlengt.

Gylfi hefur ekki spilað fótbolta frá vorinu 2021 og hann yfirgaf Everton þegar samningur hans við félagið rann út eftir síðasta tímabil.

Í júlí í fyrra sást Gylfi í fyrsta sinn á almannafæri síðan hann var handtekinn. Hann mætti á leik Íslands og Ítalíu á Evrópumóti kvenna í fótbolta sem fór fram í Manchester. Þar fylgdist hann með Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur, frænku sinni, sem spilar með íslenska landsliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×