Lífið

Stranger Things stjarna trú­lofuð syni Bon Jovi

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Jake Bongiovi og Millie Bobby Brown hafa verið saman í um tvö ár.
Jake Bongiovi og Millie Bobby Brown hafa verið saman í um tvö ár. Getty/Taylor Hill

Leikkonan Millie Bobby Brown og leikarinn Jake Bongiovi eru trúlofuð ef marka má nýja Instagram færslu Brown. 

Brown var aðeins tólf ára gömul þegar hún skaust upp á stjörnuhimininn í hlutverki Eleven í Netflix-þáttunum Stranger Things. Árið 2018 komst hún á lista tímaritsins Time yfir áhrifamestu einstaklinga heims en þá var hún aðeins fjórtán ára gömul.

Í dag er Brown nítján ára og hefur síðustu tvö ár átt í ástarsambandi við hinn tvítuga leikara Jake Bongiovi. Bongiovi er jafnframt yngsta barn tónlistarmannsins Bon Jovi.

Fyrr í dag deildi Brown fallegri mynd af parinu á Instagram þar sem mátti sjá demantshring á vinstri baugfingri hennar. Aðdáendur reikna greinilega með því að hér sé um að ræða trúlofunarhring því hamingjuóskum rignir yfir parið í athugasemdakerfi undir myndinni.


Tengdar fréttir

Hvernig börnin fengu hlutverkin sín í Stranger Things

Netflix þættirnir Stranger Things fóru í loftið árið 2016 en áður en þeir slógu í gegn voru aðalleikarar þáttanna börn sem voru valin úr fjölda umsækjenda í þetta stóra ævintýri. Carmen Cuba er konan á bak við leikaravalið og fer hún yfir ferlið við það að velja tilvonandi stjörnurnar í viðtali hjá Vanity Fair.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×