Fótbolti

Sara Björk skoraði þegar Juventus tryggði sig í bikarúrslit

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sara Björk og stöllur á leið í bikarúrslit.
Sara Björk og stöllur á leið í bikarúrslit. Vísir/Getty

Juventus er komið áfram í ítalska bikarnum í fótbolta eftir sigur á Inter í framlengdum leik í undanúrslitum í dag.

Sara Björk Gunnarsdóttir var í byrjunarlið Juventus og náði forystunni með skallamarki strax á 2.mínútu. Inter jafnaði metin skömmu fyrir leikslok og því þurfti að framlengja þar sem fyrri leikur liðanna fór einnig 1-1.

Í framlengingunni gerði hin hollenska Lineth Beerensteyn eina markið fyrir Juventus og skaut liðinu áfram en Söru var skipt af velli á 108.mínútu.

Anna Björk Kristjánsdóttir sat allan tímann á varamannabekk Inter.

Á sama tíma féll AC Milan úr keppni eftir 3-1 tap gegn Roma. Guðný Árnadóttir hóf leik á varamannabekk AC Milan en kom inná eftir rúmlega klukkutíma leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×