Fyrsti sigur Chelsea í 59 daga

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Wesley Fofana skoraði sigurmark Chelsea í dag.
Wesley Fofana skoraði sigurmark Chelsea í dag. Vísir/Getty

Chelsea hefur byrjað nýtt ár skelfilega og fyrir daginn í dag hafði liðið aðeins unnið einn leik í öllum keppnum síðan nýtt ár gekk í garð. Liðið vann þó loksins langþráðan 1-0 sigur gegn Leeds í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Það var Wesley Fofana sem skoraði eina mark leiksins á 53. mínútu eftir stoðsendingu frá Ben Chilwell og niðurstaðan því 1-0 sigur Chelsea. Þetta var fyrsti sigur Chelsea síðan liðið vann 1-0 sigur gegn Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni þann 15. janúar síðastliðinn.

Eins og áður segir hefur gengi Chelsea undanfarnar vikur og mánuði ekki verið upp á marga fiska, en með seigrinum í dag meðtöldum hefur liðið aðeins unnið þrjá leiki af seinustu 17 í öllum keppnum.

Chelsea situr nú í tíunda sæti deildarinnar með 34 stig eftir 25 leiki, ellefu stigum á eftir Tottenham sem situr í fjórða og seinasta Meistaradeildarsætinu. Leeds situr hins vegar í 17. sæti með 22 stig, einu stigi fyrir ofan fallsvæðið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira