Markalaust hjá Liverpool og Crystal Palace

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Cody Gakpo að klúðra besta færi leiksins.
Cody Gakpo að klúðra besta færi leiksins. vísir/Getty

Síðasti leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni var í rólegri kantinum og lauk með markalausu jafntefli þar sem Liverpool var í heimsókn hjá Crystal Palace.

Heimamenn komust næst því að skora mark í fyrri hálfleik þegar Jean Philippe Mateta átti skalla sem hafnaði í slánni. 

Gestirnir frá Liverpool sóttu meira í síðari hálfleik og bæði Mohamed Salah og Cody Gakpo fengu góð færi til að gera út um leikinn. Allt kom fyrir ekki og lokatölur því 0-0.

Liverpool lyftir sér þar með upp í sjöunda sæti deildarinnar, um stundarsakir hið minnsta en lærisveinar Jurgen Klopp eru sex stigum frá fjórða sætinu eftirsótta sem veitir keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira