Man City rúllaði yfir Bournemouth

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Marki fagnað.
Marki fagnað. vísir/Getty

Manchester City átti ekki í teljandi vandræðum með Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Julian Alvarez fékk tækifæri í byrjunarliðinu í dag og lék með Erling Haaland í fremstu víglínunni og þeir skoruðu sitt markið hvor á fyrsta hálftímanum áður en Phil Foden kom sér á markalistann á lokaandartökum fyrri hálfleiks og staðan í leikhléi því 0-3 fyrir Man City.

Snemma í síðari hálfleik skoraði Chris Mepham, varnarmaður Bournemouth, sjálfsmark og staðan orðin 0-4.

Heimamenn náðu þó að klóra í bakkann áður en yfir lauk því Jefferson Lerma minnkaði muninn í 1-4 á 83.mínútu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira