Arsenal tapaði tveimur stigum í titilbaráttunni

Hjörvar Ólafsson skrifar
Ivan Toney fagnar jöfnunarmarki Brentford í leik liðsins gegn Arsenal í dag. 
Ivan Toney fagnar jöfnunarmarki Brentford í leik liðsins gegn Arsenal í dag.  Vísir/Getty

Leandro Trossard, sem kom frá Brighton í janúarglugganum, kom Arsenal yfir um miðbik seinni hálfleiks skömmu eftir að hafa komið inná sem varamaður. 

Ivan Toney jafnaði hins vegar metin þegar rúmur stundarfjórðungur var eftir af leiknum og jafntefli niðurstaðan. 

Arsenal, sem laut í lægra haldi gegn Everton í síðustu umferð deildarinnar, hefur nú sex stiga forystu á ríkjandi Englandsmeistara, Manchester City, þegar bæði lið hafa spilað 21 leik. 

Manchester City fær Aston Villa í heimsókn á morgun og getur þar minnkað forskot Skyttanna með hagstæðum úrslitum í þeim leik. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira