Fótbolti

Tvær milljónir manna vildu miða á fyrsta leik Cristiano Ronaldo

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það vilja mjög margir sjá Cristiano Ronaldo spila í Sádí Arabíu og hann gæti þar spilað á móti Lionel Messi.
Það vilja mjög margir sjá Cristiano Ronaldo spila í Sádí Arabíu og hann gæti þar spilað á móti Lionel Messi. AP/Amr Nabil

Cristiano Ronaldo mun spila fyrsta leikinn sinn á Arabíuskaganum þegar Al Nassr mætir franska félaginu Paris Saint Germain í vináttuleik í næstu viku. Það er óhætt að segja að það sé áhugi á leiknum í Sádí Arabíu.

Ronaldo skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við Al Nassr um áramótin þar sem hann fær tíu milljarða íslenskra króna í árslaun.

Samningurinn var undirritaður fyrir áramót en Ronaldo hefur þegar misst af leikjum Al Nassr af því að hann þurfti að taka út leikbann síðan hann spilaði með Manchester United á Englandi.

Ronaldo fékk bannið fyrir að slá síma úr hendi stuðningsmann á leið sinni til búningsklefa á leik á móti Everton á síðasta tímabili. Ronaldo missir líka af næsta leik Al Nassr sem er deildarleikur á móti Al Shabab á laugardaginn.

Fyrsti leikur Ronaldo verður því þessi æfingarleikur við PSG 19. janúar næstkomandi. Þetta er ekki bara lið Al Nassr heldur úrvalslið frá Al Nassr og meistaraliði Al Hilal.

Það væri vissulega gaman að sjá hann mæta þar köppum eins og þeim Lionel Messi, Kylian Mbappe og Neymar en ekki er víst hvort að þeir taki allir þátt í leiknum. ESPN segir frá því að tvær milljónir manna vildu frá miða á leikinn þegar netsalan hófst.

Leikurinn við PSG fer fram á 68 þúsund manna leikvanginum sem er nefndur eftir Fahd kóngi og er í höfuðborginni Riyadh. Það seldist upp á leikinn á nokkrum mínútum.

Tvær milljónir voru um tíma að bíða í röð á netinu eftir að geta keypt miða og áhuginn því rosalegur.

Ronaldo og Messi hafa mæst 36 sinnum á ferlinum með félagið eða landsliði. Messi hefur unnið sextán leiki en Ronaldo ellefu. Messi hefur líka skorað 22 mörk á móti 21 frá Ronaldo.

Þessi markatala um þó ekki breytast í opinberum göngum því leikurinn er titlaður sem vináttuleikur en ekki keppnisleikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×