Enski boltinn

Ó­borgan­legur svipur á Gary N­evil­le þegar Carra fór að tala um eig­endur Liver­pool

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gary Neville var frekar hissa á kollega sínum Jamie Carragher.
Gary Neville var frekar hissa á kollega sínum Jamie Carragher. Getty/Christopher Furlong

Gary Neville og Jamie Carragher eru oft ósammála og ekki síst þegar kemur að uppáhaldsliðum þeirra Manchester United og Liverpool.

Það þýðir auðvitað toppsjónvarp þegar þeir fara að ræða málefni þessara tveggja vinsælu og sigursælu félaga. Þeir rífast oft og reglulega og sjá leikinn gegnum liðsgleraugun.

Nú síðast var Neville mjög hneykslaður á skoðun Carragher á nýjum eigendum Liverpool.

Ein af stóru fréttum tímabilsins var að eigendur Liverpool tilkynntu að félagið væri til sölu.

Stuðningsmenn United hafa vonast eftir nýjum eigendum en það hefur ekki verið mikil pressa á það hjá Liverpool.

Carragher var á því að Liverpool þurfi ekki á nýjum eigendum að halda og vann sér um leið inn óborganlegan svip frá Gary Neville eins og sjá má hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×